Menning

„Uppskera og lokahóf menningarársins“

Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar
Hópurinn á bak við jólasýningu Gallery Ports. Frá vinstri: Natka Klimowicz, Dóra Hrund Gísladóttir, Joe Keys, Skarphéðinn Bergþóruson, Árni Már og Julie Sjöfn Gasiglia.
Hópurinn á bak við jólasýningu Gallery Ports. Frá vinstri: Natka Klimowicz, Dóra Hrund Gísladóttir, Joe Keys, Skarphéðinn Bergþóruson, Árni Már og Julie Sjöfn Gasiglia. Aðsend

Gallery Port stendur fyrir samsýningunum Jólagestir Gallery Port og Laufabrauð sjöundu jólin í röð en sýningin opnar næstkomandi laugardag. Þar gefst gestum og gangandi tækifæri á að sjá og upplifa verk einhverra fremstu listamanna landsins en sýningin er jafnframt sölusýning.

Sýningarnar fara fram í húsnæði Gallery Ports á Laugavegi 32 en þeir sem festa kaup á verkum taka þau samdægurs með sér heim.

„Þannig geta verkin ratað tímanlega í jólapakka og ný verk tekið þeirra stað á veggjum gallerísins. Munu sýningarnar því þróast dag frá degi eftir því sem líður á aðventuna,“ segir Árni Már eigandi Gallery Ports.

Að þessu sinni bætist við önnur smærri samsýning, Laufabrauð, í innra rými Portsins. Þar sýningarstýrir myndlistarmaðurinn Joe Keys grasrótinni í íslenskri myndlist og teflir fram íslenskum og erlendum listamönnum sem margir eru að stíga sín fyrstu spor í sýningarhaldi.

„Samsuða þessara fjölbreyttu listaverka eftir hátt í 80 ólíka listamenn er orðin að árlegri hefð, hún eflir og bætir hátíðarskapið og er uppskera og lokahóf menningarársins alls,“ 

segir í fréttatilkynningu frá Portinu.

Aðspurður um hvort vinsældir myndlistar hérlendis fari vaxandi segir Árni Már:

„Myndlist er alltaf að verða vinsælli hjá ungu fólki. Það er farið að skipta ungt fólk meira máli að eignast alvöru verk, hvort sem það er jólagjöf eða fyrir heimilið. Fólk er mikið að versla fyrir sjálft sig í desember, margir sleppa því að gefa makanum sínum gjöf og þau koma og velja sér verk í staðinn.“

Opnunin stendur milli klukkan 14:00 og 20:00 nú á laugardag 3. desember en sýningin sjálf til og með 7. janúar. Almennur opnunartími fyrst um sinn verður á milli klukkan 12:00 og 17:00 en lengri opnunartími verður kynntur þegar nær dregur að jólum.


Tengdar fréttir

Tímamóta listasýning: „Breytingar eru alltaf til góðs“

Sjórinn hefur verið listamanninum Árna Má Erlingssyni hugleikinn bæði í verkum hans og eins lífi. Hann opnar tímamóta sýninguna Öldur aldanna - Útfjara í dag klukkan 16:00 í Listamönnum við Skúlagötu 32. Blaðamaður tók púlsinn á Árna Má.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×