Innlent

Lést þegar kviknaði í húsbíl í Hafnarfirði

Lillý Valgerður Pétursdóttir skrifar
Húsbílnum var lagt við Lónsbraut í Hafnarfirði.
Húsbílnum var lagt við Lónsbraut í Hafnarfirði. Vísir/Egill

Karlmaður lést þegar kviknaði í húsbíl við Lónsbraut í Hafnarfirði snemma í morgun. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.

Lögreglunni barst tilkynning um málið um klukkan sex í morgun. Hún ásamt slökkviliði fór þá strax á staðinn. Þá var bílinn alelda. 

Tæknideild lögreglu annast vettvangsrannsókn en óvíst er hver eldsupptök voru. Hinn látni var einn í bílnum þegar eldurinn kom upp.

Lögreglu barst tilkynning um brunann snemma í morgun.Vísir/Egill



Fleiri fréttir

Sjá meira


×