Bíó og sjónvarp

Ís­lensku stjörnurnar skinu skært í Tallinn

Elma Rut Valtýsdóttir skrifar
Þau Svandís Dóra, Ólafur Darri, Sara Dögg og Sveinn Ólafur úr leikhóp myndarinnar skinu skært á kvikmyndahátíðinni í Tallinn.
Þau Svandís Dóra, Ólafur Darri, Sara Dögg og Sveinn Ólafur úr leikhóp myndarinnar skinu skært á kvikmyndahátíðinni í Tallinn. Paul Legras

Kvikmyndin Sumarljós og svo kemur nóttin var frumsýnd á Pöff, alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Tallinn um helgina og hlaut mikið lof. Elfar Aðalsteins, leikstjóri og handritshöfundur myndarinnar var viðstaddur ásamt framleiðandanum Heather Millard og stórum hluta leikhópsins.

Um er að ræða eina stærstu kvikmyndahátíð í Norður-Evrópu. Sumarljós og svo kemur nóttin er tilnefnd í flokknum Best of Fest, þar sem hún keppir við verðlaunamyndir frá öllum heimshornum.

Myndin er byggð á skáldsögu Jóns Kalman Stefánssonar sem hlaut Íslensku bókmenntaverðlaunin árið 2006. 

Stórskotalið íslenskra leikara

Meðal leikara í myndinni eru Ólafur Darri Ólafsson, Svandís Dóra Einarsdóttir, Sveinn Ólafur Gunnarsson, Heiða Reed, Sara Dögg Ásgeirsdóttir, Þorsteinn Bachmann, Jóhann Sigurðarson, Atli Óskar Fjalarsson, Sigurður Ingvarsson, Kristbjörg Kjeld, Anna María Pitt, Ebba Guðný Guðmundsdóttir, Víkingur Kristjánsson og fleiri.

Myndin hlaut mikið lof áhorfenda eftir frumsýninguna og gagnrýnandi Screen Daily skrifaði: 

„Efni saganna er lauslega ofið - en auga leikstjórans fyrir smáatriðum, sögusviði og samfélagi myndarinnar fleytir okkur áfram í gegnum ljúft og stundum hlykkjótt ferðalag. Ef það er rauður þráður í sögunum þá er hann líklegast ´leiðin að lífsfyllingu´“

Hér að neðan má sjá nokkrar vel valdar myndir frá hátíðinni.

Aðstandendur myndarinnar Sumarljós og svo kemur nóttin á alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Tallinn.Paul Legras
Svandís Dóra, Elfar Aðalsteins og Sara Dögg.Paul Legras
Aðstandendur myndarinnar skinu skært á hátíðinni.Paul Legras
Svandís Dóra og Sara Dögg.Paul Legras
Sveinn Ólafur og eiginkona hans, Jó­hanna Helga Þor­kels­dótt­ir.Paul Legras
Elfar Aðalsteins og Ólafur Darri.Paul Legras
Svandís Dóra, Sara Dögg og Elfar Aðalsteins.Paul Legras
Sara Dögg og Ebba Guðný.Paul Legras
Myndin hefur hotið góðar viðtökur.Paul Legras
Myndin er byggð á skáldsögu Jóns Kalman Stefánssonar sem hlaut Íslensku bókmenntaverðlaunin árið 2006.Paul Legras
Sumarljós og svo kemur nóttin var frumsýnd á hátíðinni um helgina.Paul Legras
Hluti af leikhópnum var viðstaddur.Paul Legras


Tengdar fréttir

Fyrsta sýnishornið úr Sumarljós og svo kemur nóttin

Lokamynd RIFF í ár er kvikmyndin Sumarljós og svo kemur nóttin. Leikstjóri og handritshöfundur er Elfar Aðalsteins. Myndin er byggð á skáldsögu Jóns Kalman Stefánssonar sem hlaut Íslensku bókmenntaverðlaunin árið 2006.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×