Erlent

Drottning veitir Mette senni­lega um­boð til myndunar nýrrar stjórnar

Heimir Már Pétursson skrifar
Líklegt þykir að Margrét Þórhildur drottning danmerkur veiti Mette Frederiksen fyrst umboð til myndun nýrrar ríkisstjórnar.
Líklegt þykir að Margrét Þórhildur drottning danmerkur veiti Mette Frederiksen fyrst umboð til myndun nýrrar ríkisstjórnar. AP/Sergei Grits

Formaður Norræna félagsins telur líklegt að Margrét önnur Danadrottning muni veita Mette Frederiksen forsætisráðherra fyrstri umboð til myndun nýrrar stjórnarað loknum þingkosningum í Danmörku í dag. Enda hafi leiðtogi nýs miðjuflokks opnað á samstarf við vinstriflokkana.

Lars Lökke Rasmussen formaður Moderaterne og fyrrverandi forsætisráðherra og formaður Venstre er í lykilstöðu samkvæmt könnunum.AP/Sergei Grits

Kannanir benda til að hvorki hægri- né vinstriblokk flokka nái tilskyldum fjölda þingmanna til að mynda meirihluta á danska þinginu. Met fjöldi flokkka er í framboði í þingkosningunum í Danmörku eða 14. Fyrstu útgönguspár verða birtar klukkan sjö að íslenskum tíma en að lágmarki 90 þingmenn þarf til að styðja ríkisstjórn.

Mette Frederiksen forsætisráðherra Danmerkur fær rembingskoss frá Bo Tengberg eiginmanni sínum eftir að hafa greitt atkvæði í þingkosningunum í morgun.AP/Sergei Grits

Mette Frederiksen formaður danska Jafnaðarmannaflokksins og forsætisráðherra frá kosningum 2019 boðaði til snemmbúinna kosninga í haust eftir að Radikale Venstre, sem varði minnihlutastjórn Frederiksen falli. Flokkurinn hótaði að bera fram vantrauststillögu á stjórn hennar ef hún boðaði ekki til kosninga vegna deilna um ákvörðun stjórnarinnar að láta lóga öllum minkum í landinu á tímum kórónuveirufaraldursins.

Venjulega kjósa Danir milli tveggja blokka flokka til hægri og vinstri en nú benda kannanir til að hvorug blokkin fái tilskilinn meirihluta til að mynda stjórn. Lars Løkke Rasmussen fyrrverandi forsætisráðherra og formaður hægri flokksins Venstre gæti því verið í lykilstöðu. Hann stofnaði nýjan flokk, Moderatana eftir að hann tapaði formannsembættinu eftir kosningaósigur í síðustu kosningum og hefur opnað á samstarf bæði til hægri og vinstri.

Hrannar B. Arnarson formaður Norræna félagsins telur klókt hjá forsætisráðherra Danmerkur að hafa opnað á samstarf við nýjan miðjuflokk um myndun ríkisstjórnar.Vísir/Vilhelm

Hrannar B. Arnarson formaður Norræna félagsins segir það geta orðið mikið púsluspil að mynda nýja stjórn. Margir flokkar væru í framboði og margir þeirrar nýjir.

„Það sem manni sýnist einhvern vegin samt vera í kortunum er að það verði til einhvers konar miðjustjórn með Mette Fridreksen sem forsætisráðherra,“ segir Hrannar.

Það yrðu sannarlega tíðindi ef mynduð yrði slík stjórn með stuðningi Lars Løkke.

„En nýi flokkur Lars Løkke hefur sagt frá upphafi að hann vilji stjórn yfir miðjuna. Hægri blokkin hefur ekki haft vit á því að opna fyrir þann möguleika sem Mette Fredirksen hefur gert,“ segir Hrannar.

Lars Lökke Rasmussen fyrrverandi forsætisráðherra er gamall refur í dönskum stjórnmálum og hefur opnað fyrir samstarf bæði til hægri og vinstri með nýjum miðjuflokki sínum.AP/Martin Sylves

Ef að slíkri vinstri-miðjustjórn yrði mynduð væri samt ekki víst að allir þeir flokkar sem styddu þannig stjórn ættu ráðherra í nýrri stjórn sem yrði þá minnihlutastjórn.

„Þannig að þegar kemur að því að leiðtogarnir ræða við drottninguna og segja á hvern þeir bendi sem fyrsta leiðtoga til að reyna að mynda stjórn getur Lars Lökke í rauninni ekki annað en bent á Mette. Því hann þarf að vera trúr sinni afstöðu um stjórn yfir miðjuna,“ sagði Hrannar B. Arnarson.


Tengdar fréttir

Fær­eyingar kjósa nýja þing­menn sína á danska þinginu

Þingkosningar fara fram í Danmörku á morgun. Færeyingar munu þó kjósa um sína tvo fulltrúa á danska þinginu þegar í dag. Stjórnvöld í Færeyjum óskuðu eftir að kjósa sína fulltrúa á danska þinginu á öðrum degi en 1. nóvember þar sem um sé að ræða dag þar sem Færeyingar minnast látinna sjómanna.

Frederik­sen boðar til þing­kosninga 1. nóvember

Mette Fredriksen, forsætisráðherra Danmerkur, hefur boðað til þingkosninga í landinu þann 1. nóvember næstkomandi. Frá þessu greindi forsætisráðherrann á blaðamannafundi klukkan 11 í morgun.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×