Menning

Myndaveisla: Forsætisráðherra gefur út glæpasögu

Dóra Júlía Agnarsdóttir og Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifa
Katrín Jakobsdóttir og Ragnar Jónsson
Katrín Jakobsdóttir og Ragnar Jónsson Vísir/Hulda Margrét

Það var líf og fjör í útgáfuteiti glæpasögunnar Reykjavík í Iðnó í gær og má með sanni segja að höfundar bókarinnar séu óvanalegt teymi en það eru þau Ragnar Jónasson, rithöfundur, og Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra. Lífið á Vísi tók púlsinn á þessu tvíeyki.

Skrif á milli leiðtogafunda

„Við erum búin að vera vinir lengi og ég sá alltaf í augunum á henni að hana langaði að skrifa glæpasögu, þótt hún hafi aldrei sagt það,“ segir Ragnar. Hann ákvað því að bera hugmyndina undir hana. 

„Í byrjun árs 2020 vorum við að fá okkur hádegismat saman eins og við gerum stundum og þá stakk ég bara upp á því að við myndum gera þessa bók saman. Ótrúlegt en satt þá samþykkti hún það en það er búið að taka svolítinn tíma að fá hana til að finna tíma í þetta, því hún er mjög upptekin. 

En hún hefur náð að skrifa þetta á milli leiðtogafunda með þjóðarleiðtogum heimsins.“

Vináttan hefur reynst þeim vel í skrifunum.

„Þetta er búið að vera frábært samstarf, hún er algjör snillingur að vinna með.“

Útgáfuhóf Katrínar Jakobs og Ragnars Jónassonar á glæpasögunni Reykjavík.

Hluti af erfðaefninu

Aðspurð hvað kom henni mest á óvart við skrifin segir Katrín:

„Ég hef náttúrulega lesið glæpasögur frá því ég byrjaði að lesa þannig að það er smá eins og þetta sé orðinn hluti af erfðaefninu, að vera í þessum glæpasagnaheimi.“

Þrátt fyrir að vera ekki örugg um viðbrögð lesenda var ferlið skemmtilegt að hennar sögn.

„Svo kannski er þetta ekkert voðalega góð bók þannig ég veit ekkert hvernig niðurstaðan er en mér fannst mjög gaman að skrifa þetta, það kom mér á óvart,“ segir Katrín brosandi.

„Auðvitað tekur þetta smá tíma og allt það. Aðrir fara bara til dæmis í golf eða veiða lax en ég var bara í þessum heimi í tvö ár og mér fannst þrælgaman að hafa að einhverju að hverfa.“

María Margrét Jóhannsdóttir, Kira Ragnarsdóttir, Ragnar Jónasson og Natalía RagnarsdóttirVísir/Hulda Margrét

Hér fyrir neðan má sjá nokkrar vel valdar myndir frá útgáfuhófinu.

Útgáfuhóf Katrínar Jakobs og Ragnars Jónassonar á glæpasögunni Reykjavík.Vísir/Hulda Margrét
Guðlaugur Þór Þórðarson umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra og Bára GuðmundsdóttirVísir/Hulda Margrét
Katrín Jakobsdóttir, Jónas Ragnarsson og Ragnar JónassonVísir/Hulda Margrét
Páll Valsson og Sverrir Norland og María Elísabet BragadóttirVísir/Hulda Margrét
Tómas Jónasson, Ari Karlsson, Stefán KristinssonVísir/Hulda Margrét
Ágúst Bjarnason og Ragnar JónassonVísir/Hulda Margrét
Þorbjörg Kristjánsdóttir, Ragnar og Halla Vilhjálmsdóttir.Vísir/Hulda Margrét
Margrét A. Markúsdóttir og Torfi Stefán JónssonVísir/Hulda Margrét
María Margrét Jónhannsdóttir og Jónas RagnarssonVísir/Hulda Margrét
Gústaf Adólf Bergmann Sigurbjörnsson og Kristín Magnúsdóttir.Vísir/Hulda Margrét
Bjarni Þorsteinsson útgáfustjóri hjá Veröld, Kjartan Gunnarsson og Sigríður SnævarrVísir/Hulda Margrét
Ragnheiður Elva Þorsteinsdóttir, Nanna Hlíf Ingvadóttir, Ugla EgilsdóttirVísir/Hulda Margrét

Tengdar fréttir

Hverfur í Viðey í ágúst árið 1956

Reykjavík – glæpasaga eftir Katrínu Jakobsdóttur forsætisráðherra og Ragnar Jónasson rithöfund kemur út þann 25. október næstkomandi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Veröld bókaútgáfu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×