Chelsea tryggði sér sæti í 16-liða úrslitum

Kai Havertz tryggði Chelsea sigurinn með glæsilegu marki.
Kai Havertz tryggði Chelsea sigurinn með glæsilegu marki. Sebastian Widmann/Getty Images

Enska úrvalsdeildarfélagið Chelsea er á leið í 16-liða úrslit Meistaradeildar Evrópu eftir 1-2 útisigur gegn Red Bull Sazburg í kvöld.

Gestirnir í Chelsea voru sterkari aðilinn í leiknum og þeir uppskáru mark á 23. mínútu þegar Mateo Kvacic nýtti sér mistök í vörn heimamanna og kom liðinu í forystu.

Þetta reyndist eina mark fyrri hálfleiksins og staðan var því 0-1 þegar liðin gegnu til búningsherbergja.

Heimamenn byrjuðu síðari hálfleikinn af miklum krafti og vildu fá vítaspyrnu aðeins rúmri mínútu eftir hálfleikshléið. Boltinn fór þá klárlega í hönd Mateo Kovacic innan vítateigs, en dómari leiksins dæmdi ekkert og gestirnir sluppu með skrekkinn.

Gestirnir voru þó ekki lengi að jafna sig á því að hafa ekki fengið víti því tveimur mínútum síðar jöfnuðu þeir metin þegar Chukwubuike Adamu batt endahnútinn á vel útfærða skyndisókn.

Það var hins vegar Kai Havertz sem kom gestunum yfir á nýjan leik með glæsilegu marki á 64. mínútu og þar við sat.

Niðurstaðan 1-2 sigur Chelsea og liðið er því búið að tryggja sér sæti í 16-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu. Chelsea trónir á toppi E-riðils með tíu stig eftir fimm leiki, fjórum stigum meira en FC Salzburg sem situr í öðru sæti. AC Milan og Dinamo Zagreb eru svo jöfn í þriðja og fjórða sæti riðilsins, en þau mætast síðar í kvöld.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira