Tíska og hönnun

Áríðandi tilraunir á raunveruleikanum tilnefnt til Hönnunarverðlauna Íslands 2022

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Screenshot 2022-10-20 at 23.42.28

Verkefnið Áríðandi tilraunir á raunveruleikanum eftir Sól Hansdóttur er tilnefnt til Hönnunaverðlauna Íslands 2022. Verðlaunin fara fram í Grósku þann 17. nóvember.

Þessa viku munum við birta eina tilnefningu á dag til Hönnunarverðlauna Íslands 2022 í samstarfi með Hönnunarmiðstöð Íslands.

Rökstuðningur dómnefndar

Á grunni skapandi hugmyndafræði er fléttað saman nútímalegri hönnun og frumlegri notkun á ull í bland við hrosshár í Áríðandi tilraunum á raunveruleikanum. Fatalína sem er fyrsta verk hönnuðar eftir útskrift og samanstendur af frumlegum flíkum þar sem aðaluppistaðan er ull. Fatalínan er framleidd á vinnustofu hönnuðarins í Reykjavík.

Ullin er annarsvegar íslensk, frá Ístex, og hinsvegar frá danska vefnaðarframleiðandanum Kvadrat. Einnig er hluti af efninu keyptur notaður eða úr lager afgangsefna. Hönnuðurinn, Sól Hansdóttir, varpar fram spurningum um aðfangakeðju textílefna í fataframleiðslu auk þess að vinna með ímynd tískuborgarinnar með því að starfa jöfnum höndum í Reykjavík og í London.

Efnisval og frumleg hönnun er hér í því hlutverki að ögra hefðinni og vekja okkur til umhugsunar um vistvæna hönnun og nýtingu staðbundinna hráefna. Útkoman eru frumlegar hátískuflíkur sem eru á mörkum fatnaðar og skúlptúrs.

Um verkefnið

Áríðandi tilraunir á raunveruleikanum er frumraun Sólar Hansdóttur eftir útskrift úr Central Saint Martins. Fatalínan kannar aðstæður til framleiðslu á nútímafatalínu, með áherslu á nýtingu auðlinda hérlendis. Verkefnið er framhald af fyrri rannsókn og útskriftarlínu hönnuðar við Central Saint Martins háskóla í London vorið 2021. Línan var unnin í samstarfi í Textílmiðstöð Íslands, Ístex og Glófa með sérstakri áherslu á að nýta íslensku ullina sem hráefni. Markmið er að efla textílþróun og framleiðslu fatnaðar á Íslandi ásamt því að nýta innlendar auðlindir.

Með því að kanna aðstæður til framleiðslu á nútímafatalínu fyrir alþjóðamarkað sem leggur áherslu á nýtingu auðlinda hérlendis skapast þekking og reynsla sem mun í framhaldi geta nýst íslenskum hönnuðum.

Um hönnuðinn

Sól Hansdóttir útskrifaðist með meistaragráðu í Womenswear Fashion Design frá Central Saint Martins í London árið 2021. Sól hlaut mikið lof fyrir útskriftarlínu sína sem veitti henni meðal annars útskriftarverðlaunin „L’oréal Creative Awards.“ Hönnuðurinn frumsýndi haustlínu á London Fashion Week í febrúar 2022.

Klippa: Áríðandi tilraunir á raunveruleikanum - Tilnefningar til Hönnunarverðlauna Íslands 2022

Dómnefnd Hönnunarverðlauna Íslands skipa þau Sigríður Sigurjónsdóttir, hönnuður og safnstjóri Hönnunarsafns Íslands sem er formaður dómnefndar, María Kristín Jónsdóttir, hönnuður, varaformaður, Ragna Fróðadóttir, hönnuður, Þorleifur Gunnar Gíslason, hönnuður, Arna Sigríður Mathiesen, arkitekt, Margrét Kristín Sigurðardóttir fyrir Samtök Iðnaðarins og Daniel Byström, hönnuður og stofnandi Design Nation.

Um verðlaunin:

„Hönnunarverðlaun Íslands varpa ljósi á mikilvægi og gæðum íslenskrar hönnunar og arkitektúrs, enda er vægi hönnunar í menningu, samfélagi og viðskiptalífi alltaf að aukast.

Hönnunarverðlaun Íslands beina sjónum að því besta sem gert er á sviði hönnunar og arkitektúrs á Íslandi um leið og einstaka hönnuðum eða hópum hönnuða er veitt mikilvæg viðurkenning.

Verðlaunaafhendingin fer fram þann 17. nóvember næstkomandi ásamt samtali tengdum verðlaununum. Þar verða veitt Hönnunarverðlaun Íslands, Heiðursverðlaun Hönnunarverðlauna Íslands og viðurkenning fyrir bestu fjárfestingu í hönnun ársins 2022. Taktu daginn frá!“

Það er Miðstöð hönnunar og arkitektúrs sem stendur að verðlaununum, í samstarfi við Hönnunarsafn Íslands, Listaháskóla Íslands, Íslandsstofu og Samtök iðnaðarins.


Tengdar fréttir

Sjáið tvöfalt og fjórfalt í verkinu

Hönnuðurinn Sól Hansdóttir og ljósmyndarinn Anna Maggý eru með sýningu í Ásmundarsal yfir Hönnunarmars þar sem gestir geta séð tvöfalt og fjórfalt í videóverki.

Íslensk hönnun, vintage flíkur og skrjáfandi jakki á Söngvakeppninni

Það fór varla framhjá neinum að Söngvakeppnin var haldin hátíðleg á dögunum þar sem þær Ey systur fóru með sigur á hólmi mörgum til mikillar ánægju. Keppendur voru hver öðrum glæsilegri og þar sem ég var á staðnum nýtti ég tækifærið og fékk að gluggast í hverju keppendur klæddust. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×