Hæstánægður með kollspyrnu Dagnýjar en sagði markið hafa komið of snemma Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 29. september 2022 08:31 Dagný Brynjarsdóttir stangar boltann í net Chelsea. getty/Steve Bardens Þjálfari West Ham United var sérstaklega ánægður með markið sem Dagný Brynjarsdóttir skoraði gegn Chelsea í ensku ofurdeildinni í gær.
Dagný kom West Ham yfir strax á 3. mínútu. Hún skallaði þá hornspyrnu Skotans Kirstys Smith í netið. Markið virtist kveikja í Englandsmeisturum Chelsea sem sneru dæminu sér í vil og unnu á endanum 3-1 sigur. Paul Konchesky, þjálfari West Ham, hrósaði Dagnýju fyrir markið eftir leik en sagði að það hefði ef til vill ekki komið á besta tímanum. „Ég held að markið hafi komið aðeins of snemma fyrir okkur. En þvílíkur skalli,“ sagði Koncheskey sem tók við West Ham fyrir tímabilið. „Við héldum að við gætum farið með forystuna inn í hálfleikinn en því miður gerðist það ekki. Miðað við hvernig við spiluðum héldum við að við gætum fengið eitthvað út úr leiknum en það var súrt að fá á sig mörk eftir föst leikatriði.“ Eftir að hafa unnið Everton, 1-0, í 1. umferð deildarinnar hefur West Ham tapað síðustu tveimur leikjum sínum. Dagný var gerð að fyrirliða West Ham fyrir tímabilið. Hún hefur leikið með liðinu frá því í ársbyrjun 2021. Rangæingurinn hefur alls leikið fjörutíu leiki fyrir Hamrana og skorað sjö mörk. Þrjú þeirra hafa komið á þessu tímabili.
Enski boltinn Mest lesið Af hverju vildu Messi og félagar fá Ísland? Fótbolti Arnar pirraður: „Hræddir að sækja úrslit“ Fótbolti Löggan þorði ekki að þiggja miða Fótbolti Andrea opnar sig eftir sjálfsniðurrrif: „Andskotinn hafi það“ Sport „Ég var rosalega veik þegar sá leikur átti sér stað“ Fótbolti Ögmundur í Víking og Ingvar hlaut lengri samning Íslenski boltinn Segir Eriksen ekki spila aftur sem atvinnumaður Fótbolti Tuchel næstum tekinn við Íslendingaliði Fótbolti Eriksen hneig aftur niður og leikurinn blásinn af Fótbolti Náði loksins titlinum sem hana dreymdi um Golf Fleiri fréttir „Ég verð að spila“ Standa á krossgötum og eigendaskipti líkleg Brighton slær félagsskiptamet í Svíþjóð Slot hefur engan áhuga á starfinu hjá Fulham Formaður West Ham segir af sér vegna „falskra ásakana“ sem verða opinberaðar Þrír Arsenal-leikmenn tilnefndir sem leikmaður ársins „Verður svolítið hissa á því hversu mikil áhrif þetta mun hafa á líf hans“ Iraola kynntur til leiks hjá Liverpool Ruben Dias segir að nú sé nóg komið: „Ég hélt ekki framhjá“ Forsetaframbjóðandi lofar að kaupa Haaland en faðirinn svarar Chelsea-goðsögnin Bobby Tambling látinn Vill nota Liverpool-strákinn í annarri stöðu en hann er vanur „Það er tilfinningaþrungið að kveðja Old Trafford“ Á að endurvekja þungarokksfótboltann og ánægjuna á Anfield Segir að Real Madrid sé með munnlegt samkomulag við Konaté Rodri ætlar ekki að ræða framtíð sína fyrr en eftir HM Fer frá Fulham og tekur við Benfica Dalglish greindi óvart frá baráttu sinni við krabbamein „Öfundsýki alls staðar“ „Ef þú gerir þetta aftur drepurðu mig“ Hefja formlegar viðræður við Iraola Gripinn í PSG-treyju í skrúðgöngu Arsenal Stóru liðin á eftir Kroupi Óvíst hvort Arsenal-maðurinn geti verið með á HM Keegan með fjórða stigs krabbamein Slot segist skilja Liverpool eftir nákvæmlega þar sem liðið á heima Milner hættur í fótbolta Aðeins framúrskarandi stjóri hefði getað lagað Liverpool Taka gleði sína á ný í meistararútu í London Van Dijk sendi Slot kveðju Sjá meira