Bað Messi um að árita á sér bakið Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 28. september 2022 11:00 Allir vilja fá eitthvað frá Lionel Messi. getty/Elsa Lionel Messi hefur eflaust fengið margar óvenjulegar beiðnir í gegnum tíðina. Ein sú óvenjulegasta kom í nótt þegar aðdáandi bað hann um að árita bakið á sér.
Messi skoraði tvö mörk í 3-0 sigri Argentínu og Jamaíku í vináttulandsleik í Bandaríkjunum í nótt. Þetta var fyrsti leikur jamaíska liðsins undir stjórn Heimis Hallgrímssonar. Messi var slappur fyrir leik og byrjaði því á bekknum. Hann kom inn á sem varamaður í upphafi seinni hálfleiks. Á 87. mínútu kom Messi Argentínu í 2-0 með langskoti og tveimur mínútum síðar skoraði hann með skoti beint úr aukaspyrnu. Eftir annað markið hljóp aðdáandi að Messi sem var greinilega brugðið. Aðdáandinn sneri sér við og benti Messi á að árita á sér bakið. Messi tók pennann af manninum og byrjaði að skrifa áður en öryggisverðir skárust í leikinn. Lionel Messi about to sign an autograph for a pitch invader.pic.twitter.com/rfh8xOC3Xc— Mundo Albiceleste (@MundoAlbicelest) September 28, 2022 Messi hefur nú skorað níutíu landsliðsmörk í 164 leikjum. Hann skoraði einnig tvö mörk þegar Argentína sigraði Hondúras, 3-0, í vináttulandsleik á laugardaginn. Argentína hefur unnið sjö af átta leikjum sínum á þessu ári og er taplaust í síðustu 35 leikjum sínum. Argentínumenn eru í riðli með Sadí-Aröbum, Mexíkóum og Pólverjum á HM.
Fótbolti Heimir Hallgrímsson þjálfar landslið Jamaíku Mest lesið Tindastóll - Stjarnan 96-95 | Ótrúlegur endir á Króknum Körfubolti Grafalvarleg staða: „Þurfum að fara í sársaukafullar aðgerðir“ Handbolti Fram þvertekur fyrir metnaðarleysi og leitar að nýjum þjálfurum Íslenski boltinn Ógeðslega erfitt og ógeðslega vont en brosir oft í viku á eftir Sport Jóladagskráin klár: Hefðin brotin og aðeins einn leikur annan í jólum Enski boltinn ÍR - Ármann 96-83 | Nýliðarnir enn í leit að fyrsta sigrinum Körfubolti Gísli semur við Skagamenn Íslenski boltinn Nefna greinar Íslandsmótsins í CrossFit í höfuðið á íslenskum íþróttakonum Sport „Nú er nóg komið“ Fótbolti Arnór Snær snýr aftur heim Handbolti Fleiri fréttir Kóngarnir í Færeyjum: Töpuðu ekki leik allt tímabilið Haaland fór sem Jókerinn að versla bleyjur Fullkomin þrenna kom Lampard úr sjöunda himni Jóladagskráin klár: Hefðin brotin og aðeins einn leikur annan í jólum Sandra hélt áfram að fagna eftir landsleikina Ísland fær eitt lakara lið í sinn riðil Sjáðu besta liðið í föstum leikatriðum leika listir sínar Barcelona skuldar mest en Tottenham er númer tvö Tölur úr Bestu: Bjartur Bjarmi fór í flestar tæklingar af öllum Gísli semur við Skagamenn Óskar Smári tekur við Stjörnunni Mikilvægt fyrir United að hamra járnið meðan það er heitt Félagið í greiðslustöðvun en borgaði öll laun degi fyrr Bretinn ráðinn tæknilegur ráðgjafi hjá Val Fram þvertekur fyrir metnaðarleysi og leitar að nýjum þjálfurum Nýr þjálfari Juventus er með Napoli-húðflúr „Nú er nóg komið“ Skortir Liverpool breidd þrátt fyrir gríðarleg fjárútlát síðasta sumar? Sádar eru ekki að fara að byggja HM-leikvang ofan á skýjakljúfi Hetja Englands á EM sleit krossband Lofar frekari fjárfestingum Juventus ræður Spalletti út tímabilið Meistaradeildin skiptir um bjór og Heineken snýr sér að padel Aron Einar kominn á toppinn Tölur úr Bestu: Hallgrímur Mar bjó til langflest færi Fantasýn: „Þessi vörn er eitthvað skrímsli“ Scholes hættir og setur einhverfan son sinn í fyrsta sætið Rúmar tvær milljónir í boði ef þú finnur hundinn hans Aarons Ramsey Carrick í einkaviðtali: Sigurinn á Anfield stór stund fyrir Man. Utd Hefur spilað 16 mínútur og fengið tvö rauð spjöld Sjá meira