Bíó og sjónvarp

Dýrið sankaði að sér verðlaunum

Ólafur Björn Sverrisson skrifar
Valdimar Jóhannsson, leikstjóri Dýrsins.
Valdimar Jóhannsson, leikstjóri Dýrsins. Hulda Margrét Óladóttir

Það er óhætt að segja að kvikmyndin Dýrið í leikstjórn Valdimars Jóhannssonar hafi verið sigurvegari kvöldsins á Edduverðlaununum þetta árið en myndin hlaut alls 12 verðlaun. Þar á meðal hlaut myndin verðlaun fyrir handrit og leikstjórn ársins en myndin var einnig valin kvikmynd ársins.

Hátt í 700 manns mættu á Edduverðlaunin í Háskólabíói og var glatt á hjalla þar sem rúm þrjú ár eru liðin frá því að fólk úr sjónvarps- og kvikmyndageiranum gat fagnað uppskeru liðins árs í sameiningu. Hér í lok fréttarinnar má sjá lista yfir þá sem hlutu verðlaunin 2022.

Hilmir Snær Guðnason var valinn leikari ársins í aðalhlutverki og var Björn Hlynur Haraldsson valinn leikari ársins í aukahlutverki, fyrir Dýrið.

Hilmir Snær Guðnason hlaut verðalun fyrir leik sinn í kvikmyndinni Dýrinu. Sigurður Sigurjónsson og Karl Ágúst Úlfsson veittu honum verðlaunin.Hulda Margrét Óladóttir

Þá fengu Margrét Einarsdóttir verðlaun fyrir búninga, Agnieszka Glinska fyrir kvikmyndatöku, Ingvar Lundberg og Björn Viktorsson fengu verðlaun fyrir hljóð, Frederik Nord og Peter Hjorth fengu verðlaun fyrir brellur og Snorri Freyr Hilmarsson fékk verðlaun fyrir leikmynd. Eli Arenson fékk einnig verðlaun fyrir kvikmyndatöku og Þórarinn Guðnason fékk verðlaun fyrir tónlist. Allt ofantalið fyrir kvikmyndina Dýrið.

Hrönn Kristinsdóttir og Sara Nassim voru á meðal framleiðenda Dýrsins.Hulda Margrét Óladóttir

Sjónvarpsþáttaröðin Systrabönd fékk flest verðlaun í flokki leikins sjónvarpsefnis, með þrenn verðlaun. Jóhanna Friðrika Sæmundsdóttir var valin leikkona ársins í aðalhlutverki og María Heba Þorkelsdóttir var valin leikkona ársins í aukahlutverki.

Jó­hanna Friðrika Sæ­munds­dótt­ir var valin leik­kona árs­ins í aðal­hlut­verki fyrir leik sinn í Systraböndum.Hulda Margrét Óladóttir

Menningarþáttur ársins var Tónlistarmennirnir okkar og sjónvarpsmaður ársins var Helgi Seljan. Valið á sjónvarpsefni ársins fór fram í opinni kosningu og fékk leikritið Benedikt Búálfur flest atkvæði.

Allan Sigurðsson, Hannes Þór Arason og Auðunn Blöndal hlutu verðlaun fyrir þáttaröðina Tónlistarmennirnir okkar sem sýnd var á Stöð 2.

Þá hlaut Þráinn Bertelsson kvikmyndagerðarmaður verðlaun fyrir brautryðjendastarf í þágu íslenskrar kvikmyndamenningar.

„Mig langar til að geta þess að það er fjölmargt í lífinu sem maður hefur enga stjórn á en maður getur ráðið sínum eigin viðbrögðum við því sem gerist. Ég hvet fólk innilega til að sýna æðruleysi frekar en að væla því að ég held að hvort tveggja skili, að minnsta kosti, jafn góðum árangri,“ sagði Þráinn í þakkarræðu sinni

Þráinn Bertelsson hlaut heiðursverðlaun.Hulda Margrét Óladóttir

Samkvæmt tilkynningu var síðasta ár metár í útkomu leikins sjónvarpsefnis og kvikmynda í fullri lengd en aldrei hafa jafn mörg verk komið til sýninga á einu ári í sögu íslenskrar sjónvarps- og kvikmyndagerðar. Alls sendu framleiðendur 138 verk. Að auki voru 369 innsendingar til fagverðlauna. 

Hér að neðan má sjá sigurvegara verðlaunanna feitletraða:

Kvikmynd ársins

  • Dýrið / Go To Sheep
  • Leynilögga / Pegasus
  • Wolka / Sagafilm

Leikið sjónvarpsefni ársins

  • Katla
  • Systrabönd
  • Vegferð

Leikstjóri ársins

  • Árni Ólafur Ásgeirsson fyrir Wolka
  • Hannes Þór Halldórsson fyrir Leynilögga
  • Óskar Þór Axelsson & Þóra Hilmarsdóttir fyrir Stella Blómkvist II
  • Silja Hauksdóttir fyrir Systrabönd
  • Valdimar Jóhannsson fyrir Dýrið

Leikari ársins í aðalhlutverki

  • Björn Thors fyrir Katla
  • Egill Einarsson fyrir Leynilögga
  • Hilmir Snær Guðnason fyrir Dýrið
  • Ólafur Darri Ólafsson fyrir Vegferð
  • Víkingur Kristjánsson fyrir Vegferð

Leikkona ársins í aðalhlutverki

  • Ilmur Kristjánsdóttir fyrir Systrabönd
  • Íris Tanja Flygenring fyrir Katla
  • Jóhanna Friðrika Sæmundsdóttir fyrir Systrabönd
  • Lilja Nótt Þórarinsdóttir fyrir Systrabönd
  • Olga Boladz fyrir Wolka

Leikari ársins í aukahlutverki

  • Björn Hlynur Haraldsson fyrir Dýrið
  • Björn Hlynur Haraldsson fyrir Leynilögga
  • Hlynur Atli Harðarson fyrir Katla
  • Jónas Björn Guðmundsson fyrir Harmur
  • Sveinn Geirsson fyrir Systrabönd

Leikkona ársins í aukahlutverki

  • Anna Moskal fyrir Wolka
  • Halldóra Geirharðsdóttir fyrir Systrabönd
  • María Heba Þorkelsdóttir fyrir Systrabönd
  • Sólveig Arnarsdóttir fyrir Katla
  • Vivian Ólafsdóttir fyrir Leynilögga

Búningar ársins

  • Brynja Skjaldardóttir fyrir Wolka
  • Margrét Einarsdóttir fyrir Dýrið
  • Margrét Einarsdóttir fyrir Lille Sommerfugl

Gervi ársins

  • Guðbjörg Huldís Kristinsdóttir fyrir Ófærð 3
  • Kristín Júlla Kristjánsdóttir fyrir Dýrið
  • Ragna Fossberg fyrir Katla

Leikmynd ársins

  • Lásló Rajk fyrir Alma
  • Marta Luiza Macuga fyrir Wolka
  • Rollin Hunt fyrir Stella Blómkvist II
  • Snorri Freyr Hilmarsson fyrir Dýrið
  • Sunneva Ása Weisshappel fyrir Katla

Brellur ársins

  • Frederik Nord & Peter Hjorth fyrir Dýrið
  • Monopix, ShortCut, NetFx & Davíð Jón Ögmundsson fyrir Katla
  • Rob Tasker fyrir Systrabönd

Handrit ársins

  • Jóhann Ævar Grímsson, Jónas Margeir Ingólfsson, Snjólaug Lúðvíksdóttir & Dóra Jóhannsdóttir fyrir Stella Blómkvist II
  • Jóhann Ævar Grímsson, Silja Hauksdóttir, Björg Magnúsdóttir & Jóhanna Friðrika Sæmundsdóttir fyrir Systrabönd
  • Nína Petersen, Sverrir Þór Sverrisson & Hannes Þór Halldórsson fyrir Leynilögga
  • Sigurður Pétursson & Einar Þór Gunnlaugsson fyrir Korter yfir sjö
  • Valdimar Jóhannsson & Sjón fyrir Dýrið

Frétta- og viðtalsþáttur ársins

  • Kompás
  • Kveikur
  • Leitin að upprunanum
  • Martröðin á barnaheimilinu á Hjalteyri
  • Ofsóknir

Skemmtiþáttur ársins

  • Áramótaskaupið 2021
  • Blindur Bakstur
  • Hraðfréttajól
  • Stóra Sviðið
  • Vikan með Gísla Marteini

Íþróttaefni ársins

  • EM í dag
  • Pepsi Max deildin (Karla & kvenna)
  • Skólahreysti
  • Undankeppni HM karla í fótbolta
  • Víkingar: Fullkominn endir

Mannlífsþáttur ársins

  • Allskonar kynlíf
  • Dagur í lífi
  • Gulli Byggir / Stöð 2
  • Heil og sæl? / Pegasus
  • Missir / Republik

Menningarþáttur ársins

  • Framkoma 3
  • Fyrir alla muni 2
  • Lesblinda
  • Menningin
  • Tónlistarmennirnir okkar

Heimildamynd ársins

  • Hvunndagshetjur / Kvikmyndafélag Íslands
  • Hækkum rána / Sagafilm
  • Tídægra/Apausalypse / Elsku Rut ehf, Lokaútgáfan, Ground Control Productions, Ursus Parvus 

Kvikmyndataka ársins

  • Andri Haraldsson fyrir Tídægra / Apausalypse
  • Anton Karl Kristensen fyrir Harmur
  • Bergsteinn Björgúlfsson fyrir Þorpið í bakgarðinum
  • Eli Arenson fyrir Dýrið
  • Marek Rajca PSC fyrir Wolka

Tónlist ársins

  • Frank Hall fyrir Stella Blómkvist II
  • Högni Egilsson fyrir Katla
  • Jófríður Ákadóttir fyrir Þorpið í bakgarðinum
  • Sunna Gunnlaugsdóttir fyrir Ísland: Bíóland
  • Þórarinn Guðnason fyrir Dýrið

Klipping ársins

  • Agnieszka Glinska fyrir Dýrið
  • Guðni Hilmar Halldórsson & Hannes Þór Halldórsson fyrir Leynilögga
  • Jakob Halldórsson fyrir Hækkum rána
  • Mateusz Rybka PSM fyrir Wolka
  • Valdís Óskarsdóttir & Marteinn Þórsson fyrir Þorpið í bakgarðinum

Hljóð ársins

  • Björn Viktorsson fyrir Lille Sommerfugl
  • Huldar Freyr Arnarson fyrir Katla
  • Ingvar Lundberg & Björn Viktorsson fyrir Dýrið

Barna- og unglingaefni ársins

  • Benedikt búálfur / Trabant
  • Birta / H.M.S. Production
  • Krakkafréttir / RÚV
  • Stundin okkar / RÚV
  • Tilraunir með Vísinda Villa / Trabant

Upptöku- eða útsendingarstjóri ársins

  • Björn Emilsson fyrir Ljótu hálfvitarnir
  • Gísli Berg & Samúel Bjarki Pétursson fyrir Kappsmál
  • Salóme Þorkelsdóttir fyrir Straumar
  • Salóme Þorkelsdóttir fyrir Tónaflóð á Menningarnótt
  • Þór Freysson fyrir Tilraunir með Vísinda Villa

Stuttmynd ársins

  • Blindhæð / Majestic Productions
  • Heartless / Reykjavík Rocket, Sagafilm
  • When We Are Born / Akkeri Films, Mercury Studios, Petites Planetes, Ólafur Arnalds

Sjónvarpsmaður ársins

  • Edda Sif Pálsdóttir
  • Guðrún Sóley Gestsdóttir
  • Helgi Seljan
  • Kristjana Arnarsdóttir
  • Sigrún Ósk Kristjánsdóttir

Sjón­varps­efni árs­ins (­kosn­ing á ruv.is)

  • Benja­mín búálf­ur

Heiður­sverðlaun

  • Þrá­inn Bertels­son





Fleiri fréttir

Sjá meira


×