Nketiah tryggði Skyttunum sigurinn

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
FC Zürich v Arsenal FC: Group A - UEFA Europa League ST GALLEN, SWITZERLAND - SEPTEMBER 08: Eddie Nketiah of Arsenal celebrates after scoring their team's second goal during the UEFA Europa League group A match between FC Zürich and Arsenal FC at Kybunpark on September 08, 2022 in St Gallen, Switzerland. (Photo by Christian Kaspar-Bartke/Getty Images)

Arsenal er talið líklegasta liðið til að vinna Evrópudeildina í fótbolta á þessari leiktíð og Skytturnar hófu tímabilið á 1-2 sigri gegn FC Zurich í kvöld.

Nýi maðurinn Marquinhos kom gestunum í Arsenal í forystu með marki á 17. mínútu leiksins eftir stoðsendingu frá Eddie Nketiah.

Heimamenn jöfnuðu þó metin þegar Mirlind Kryeziu skoraði af vítapunktinum á lokaandartökum fyrri hálfleiksins og staðan því 1-1 þegar liðin gengu til búningsherbergja.

Stutt töf varð á síðari hálfleiknum eftir að fréttir bárust af því að Elísabet II Englandsdrottning væri látin. Liðin söfnuðust saman á miðjunni áður en leikurinn hófst á ný og minntust drottningarinnar með mínútu þögn.

Það var svo áðurneffndur Eddie Nketiah sem tryggði Arsenal sigurinn með marki eftir rúmlega klukkutíma leik og niðurstaðan því 1-2, Arsenal í vil.

Arsenal er því með þrjú stig eftir fyrstu umferð A-riðils Evrópudeildarinnar, en FC Zurich er enn án stiga. Þá má einnig minnast á það að Alfons Sampsted og félagar hans í Bodö/Glimt eru með eitt stig í riðlinum eftir 1-1 jafntefli gegn PSV Eindhoven.

Bein lýsing

Leikirnir

    Fleiri fréttir

    Sjá meira