Vopnaðir þjófar handjárnuðu Aubameyang og frú á heimili þeirra Sindri Sverrisson skrifar 29. ágúst 2022 10:48 Pierre-Emerick Aubameyang býr ásamt fjölskyldu sinni í glæsilegum híbýlum, í nágrenni við villur í eigu Luis Suárez og Lionels Messi. Getty/David Ramos Vopnaðir innbrotsþjófar réðust inn í hús Barcelona-stjörnunnar Pierre-Emerick Aubameyang og eiginkonu hans, Alysha Behague, í morgun.
Þjófarnir handjárnuðu hjónin og bundu þau föst, og þannig voru þau í nokkurn tíma á meðan að þjófarnir athöfnuðu sig. Samkvæmt upplýsingum frá Barcelona urðu hjónin þó ekki fyrir neinum líkamlegum áverkum. Þau eiga tvö börn, ellefu og sex ára gömul, en ekki er vitað hvort þau voru heima þegar brotist var inn. Aubameyang, sem er 33 ára gamall, var tiltölulega nýkominn heim eftir að hafa verið á varamannabekknum hjá Barcelona í 4-0 sigrinum gegn Real Valladolid í gærkvöld. EPSN segir að þjófarnir hafi meðal annars neytt framherjann til að opna peningaskáp og stolið þaðan skartgripum og fleiri verðmætum eigum. Þjófarnir ganga enn lausir, samkvæmt upplýsingum frá lögreglu. Í síðustu viku var 70.000 evra úri stolið af Robert Lewandowski, samherja Aubameyangs hjá Barcelona.
Spænski boltinn Fótbolti Mest lesið Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Enski boltinn Þurftu að biðja Infantino afsökunar Fótbolti Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United Fótbolti Svona missti Aron markið sögulega Fótbolti Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Fótbolti Er skrefareglan dauð í NBA? Körfubolti „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ Fótbolti Extraleikarnir: Nablinn og Tommi reyna fyrir sér í ballet Körfubolti Bestu byrjanir táninga í körfunni: Gerði betur en Tryggvi og Jón Arnór Körfubolti Fleiri fréttir Belgarnir láta Elísabetu fara Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Nagelsmann efstur á lista verði Carrick rekinn Sagði leikmönnum sínum að slaka á í lok leiksins Svona missti Aron markið sögulega Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United „Kevin sér opnar hraðbrautir þar sem aðrir sjá umferðarteppu“ Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Þurftu að biðja Infantino afsökunar „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ Diomande með frábært mark í sigri Real Madrid Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig „Þetta voru meira en vonbrigði“ „Það er þjálfarans og starfsliðsins að meta það, ekki mitt“ Hákon með stoðsendingu en Lille við botninn eftir tap Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Selma Sól skoraði í bikarsigri Íslenskir dómarar í Sambandsdeild en Danir horfa á skjáinn Messi klæddist Como-treyju Akranesvöllur sundurgrafinn og handónýtur Hólmar Örn hættur: „Þakklátur fyrir allt ferðalagið“ Appelsínugul viðvörun og leikur United í hættu ÍA fékk skömm í hattinn en undirbýr byltingu Missir af stórleik kvöldsins og verður í faðmi fjölskyldunnar Með slitið krossband og þarf að fara í aðgerð Vilja að Crystal Palace losi sig við lukkudýrið sitt Sá hann á æfingu og vissi að hann hefði fundið gull Meistaradeildin að slá markamet Dæma nokkra Egypta í bann vegna hegðunar á HM „Ég æfði tíu klukkustundir á dag en enginn sá mig“ Sjá meira