Fótbolti

Fyrstu kynni stelpnanna af Academy Stadium full af sól og gleði: Myndir

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Sara Björk Gunnarsdóttir var mjög hress og kát á æfingunni í kvöld.
Sara Björk Gunnarsdóttir var mjög hress og kát á æfingunni í kvöld. Vísir/Vilhelm

Það var kátt að vanda hjá stelpunum okkar þegar fjölmiðlamenn fengu að fylgjast með þeim í upphafi æfingar á rennisléttum keppnisvelli þeirra í Manchester í dag.

Ísland spilar sinn fyrsta leik á EM í fótbolta í Englandi á móti Belgíu á morgun sunnudag. Leikurinn fer fram á Academy Stadium í Manchester sem er heimavöllur kvennaliðs Manchester City.

Academy Stadium stendur aðeins í 400 metra fjarlægð frá Ethiad leikvanginum, heimavelli karlaliðs Manchester City. Ethiad völlurinn tekur 53 þúsund manns en sjö þúsund komst á Academy leikvanginum.

Það komast kannski miklu færri fyrir á vellinum en á heimavelli karlanna en það er ekki hægt að kvarta mikið yfir grasvellinum sjálfum. Augljóslega hefur verið hugsað mjög vel um hann í sumar.

Stelpurnar okkur fengu þannig sín fyrstu kynni af leikvanginum i kvöld þegar liðið æfði þar en þetta var síðasta æfing íslenska liðsins fyrir opnunarleikinn. Fram til þess að hafa þær verið að æfa á æfingasvæði Crewe.

Líkt og hjá íslenska fjölmiðlahópnum þá þurftu stelpurnar að ferðast í klukkutíma frá hótelinu á leikvanginn og þær voru því greinilega spenntar fyrir því að fá að prófa grasið þar sem mögulega örlög þeirra ráðast á þessu móti. Það er einmitt hér sem leikirnir mikilvægu á móti Belgíu og Ítalíu fara fram.

Vilhelm Gunnarsson, ljósmyndari Vísis, var með myndavélina á lofti að venju og náði þessum flottu myndum hér fyrir neðan.

Karólína Lea Vilhjálmsdóttir og félagar hennar voru einbeitta á æfingunni i dag en það var þó alltaf stutt í fjörið.Vísir/Vilhelm
Svava Rós Guðmundsdóttir var skælbrosandi þótt að hún hafi hér endað í grasinu.Vísir/Vilhelm
Vísir/Vilhelm
Vísir/Vilhelm
Vísir/Vilhelm
Vísir/Vilhelm
Vísir/Vilhelm
Vísir/Vilhelm
Vísir/Vilhelm
Vísir/Vilhelm
Vísir/Vilhelm



Fleiri fréttir

Sjá meira


×