Fótbolti

Guðrún getur ekki mikið kvartað yfir síðasta ári

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Guðrún Arnardóttir á æfingu með íslenska landsliðinu á æfingasvæði Crewe Alexandra.
Guðrún Arnardóttir á æfingu með íslenska landsliðinu á æfingasvæði Crewe Alexandra. Vísir/Vilhelm

Guðrún Arnardóttir er ekki bara í mikilvægu hlutverki hjá íslenska landsliðinu því hún er einnig í lykilhlutverki hjá besta liði Svíþjóðar.

Guðrún vann sér sæti í byrjunarliði íslenska landsliðsins eftir að Þorsteinn Halldórsson tók við liðinu og spilar þar við hlið Glódísar Perlu Viggósdóttur í miðri vörninni.

Það er ekki aðeins með landsliðinu sem Guðrún hefur tekið stór skref á undanförnum árum því hún skipti úr Djurgården yfir í Rosengård. Guðrún vann síðan sænska meistaratitilinn á síðasta tímabili og liðið er eins og er í efsta sæti deildarinnar.

Næst á dagskránni er að keppa á sínu fyrsta Evrópumóti. Vísir hitti Guðrúnu í gær þegar aðeins tveir dagar voru í fyrsta leik.

„Það er mikil spenna og við hlökkum bara til. Það er kominn fiðringur í mann að byrja þetta, við erum búin að horfa á tvo fyrstu leikina í mótinu og sjá stemmninguna þar. Maður er því spenntur að fá að byrja sjálfur,“ sagði Guðrún Arnardóttir.

„Þetta eru algjör forréttindi og ótrúlega skemmtilegt að fá að vera partur af þessu. Þetta er bara stemmning,“ sagði Guðrún. Það er öllum ljóst að stelpurnar njóta tímans samans.

„Þetta er mjög samheldinn hópur og góð blanda af alls konar leikmönnum, alls konar karakterum og týpum. Það eru allir í þessu saman,“ sagði Guðrún. Hún sjálf er ánægð með sitt hlutskipti.

„Ég er búin að fá tækifæri að spila og er mjög þakklát fyrir það. Ég reyni bara að nýta öll tækifæri sem ég fær og taka því hlutverki sem ég fær hverju sinn,“ sagði Guðrún.

„Ég get ekki mikið kvartað yfir síðasta árinu. Það er búið að ganga mjög vel bæði í félagsliðnu og í landsliðinu,“ sagði Guðrún.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×