Erlent

Segir Rússa rétt að byrja í Úkraínu

Samúel Karl Ólason skrifar
Vladimír Pútín, forseti Rússlands, var vígreifur á fundi með þingmönnum í dag og manaði Vesturlönd til að reyna að sigra Rúsa á vígvellinum.
Vladimír Pútín, forseti Rússlands, var vígreifur á fundi með þingmönnum í dag og manaði Vesturlönd til að reyna að sigra Rúsa á vígvellinum. AP/Alexei Nikolsky

Vladimír Pútín, forseti Rússlands, segir að Rússar séu að „rétt að byrja“ í Úkraínu. Þetta sagði hann í samtali við rússneska þingmenn í dag og manaði hann einnig Vesturlönd til að reyna að sigra Rússland á vígvellinum.

Forsetinn var vígreifur í ummælum sínum og sakaði Vesturlönd um að ætla að berjast við Rússa „til hins síðasta Úkraínumanns“. Það er í takt við önnur ummæli forsetans og annarra ráðamanna í Rússlandi um að Vesturlönd eigi í óbeinum átökum við Rússa í gegnum Úkraínu.

„Við heyrum að þeir vilji sigra okkur á vígvellinum. Hvað getur maður sagt, reynið það bara,“ hefur fréttaveitan Reuters eftir forsetanum rússneska.

Rússar réðust inn í Úkraínu þann 24. febrúar, eftir að hafa haldið því fram um margra vikna skeið að engin innrás stæði til. Meðal annars gerðu Rússar atlögu að Kænugarði, höfuðborg Úkraínu, en sú sókn misheppnaðist.

Frá fundi Pútíns með þingmönnum í dag.AP/Alexei Nikolsky

Rússar hafa gefið margar ástæður fyrir innrásinni sem flestar halda litlu vatni og ber innrásin öll merki landvinningastríðs. Rússar ætluðu sér til að mynda að leggja undir sig allan suðurhluta landsins en voru stöðvaðir áður en þeir komust að hafnarborginni Odessa.

Mörg ummerki eru um að Rússar ætli sér að innlima þau landsvæði sem þeir hafa hertekið í Úkraínu. Pútín sjálfur sagði í síðasta mánuði að það væri réttur Rússa að stjórna Úkraínu og líkti hann sér við Pétur mikla. Þá hefur hann ítrekað sagt að Úkraína sé ekki raunverulegt ríki.

Sjá einnig: Rússar byrjaðir að innlima hluta Úkraínu í Rússland

Sagðir taka sér pásu eftir hernám Luhansk

Eftir mikil átök í grennd við Kænugarð hörfuðu hersveitir Rússa og síðan þá hafa Rússar einbeitt sér að Luhansk- og Donetsk-héruðum í austurhluta Úkraínu. Þar hafa Rússar sótt hægt og rólega fram með því að beita yfirburðum sínum í stórskotaliði með markvissum hætti.

Sjá einnig: Rússar halda uppi stöðugum árásum á íbúðahverfi

Vesturlönd hafa útvegað Úkraínumönnum vopn, þjálfun og upplýsingar, svo eitthvað sé nefnt.

Undanfarnar vikur hafa harðir bardagar geysað í austurhluta Úkraínu og eru bæði Rússar og Úkraínumenn sagðir hafa orðið fyrir gífurlegu mannfalli. Nú eru Rússar í austurhluta Úkraínu sagðir hafa tekið sér pásu og stöðvað sóknir sínar. Það hafi verið gert til að koma birgðum, hergögnum og liðsauka til þeirra hersveita sem hafa tekið þátt í átökunum skæðu síðustu vikur.

Hugveitan Institute for the study of war segir að í gær hafi varnarmálaráðuneyti Rússlands ekki gefið neitt út um nýjar sóknir eða landvinninga og að það hafi verið í fyrsta sinn í 133 daga, eða frá því innrásin hófst. Staðbundnar og misheppnaðar árásir hafi þó átt sér stað.

Tölur um mannfall eru á miklu reiki og hvorki Úkraínumenn né Rússar birta tölur um mannfall úr eigin röðum en báðar fylkingar eru taldar hafa misst þúsundir og jafnvel tugi þúsunda manna. Rússar hafa þar að auki misst um tíu herforingja. Þá hafa tugir þúsunda óbreyttra borgara einnig fallið í árásum Rússa.

Sagði Rússa eiga mikið inni

Þrátt fyrir hægagang innrásarinnar og fregnir af manneklu í rússneska hernum gaf Pútín í skyn að Rússar ættu mikið inni og hefðu í raun ekki beitt sér af fullum krafti enn.

„Allir ættu að vita að, í rauninni, erum við rétt að byrja,“ sagði Pútín. Hann staðhæfði einnig að ríkisstjórn hans væri tilbúin til viðræðna og sagði að erfiðara yrði að hefja viðræður á nýjan leik, því lengur sem stríðið héldi áfram.

Viðræður milli Úkraínumanna og Rússa fóru um þúfur fljótt eftir að Rússar hörfuðu frá Kænugarði og ódæði rússneskra hermanna gegn óbreyttum borgurum á svæðinu urðu ljós.

Í yfirlýsingu Mannréttindastofnunar Sameinuðu þjóðanna sem birt var í vikunni sagði að árásir Rússa á óbreytta borgara í Úkraínu væru gegn alþjóðalögum. Búið væri að staðfesta rúmlega tíu þúsund dauðsföll borgara en í rauninni væru þau líklegast mun fleiri.

Litlar líkur á viðræðum á næstunni

Litlar líkur eru taldar á því að viðræður muni hefjast að nýju á næstunni þar sem báðar fylkingar telja sig geta unnið stríðið. Úkraínumenn vonast til þess að fjölmargir nýþjálfaðir hermenn og ný vopn frá Vesturlöndum muni gera þeim kleift að reka Rússa á brott og ná aftur tökum á þeim svæðum sem Rússar hafa hernumið.

Sjá einnig: Vestræn þungavopn loks farin að draga úr mætti Rússa

Mykhailo Podolyak, aðal samningamaður Úkraínu, tísti í vikunni þar sem hann sagði að meðal skilyrða fyrir vopnahléi væri að rússneskir hermenn hörfuðu, rússneskir stríðsglæpamenn yrðu framseldir til Úkraínu, að Rússar viðurkenndu fullveldi Úkraínu og greiddu ríkinu bætur.


Tengdar fréttir

Hafa náð að standa af sér árásirnar hingað til

Úkraínski herinn hefur náð að standa af sér árásir Rússa á borgina Slóvíansk í austurhluta Úkraínu. Rússar hafa skotið á borgina í um það bil tvær vikur segir Vadym Lyakh, borgarstjóri Slóvíansk.

Rússar gerðu loftárásir um alla Úkraínu í gærkvöldi

Loftvarnaflautur hljómuðu um alla Úkraínu í gærkvöldi og nótt. Héraðsstjórinn í Donetsk héraði hefur skorað á alla íbúa héraðsins að flýja í vesturátt undan stórskotaliðs- og loftárásum Rússa.

Lysychansk fallin í hendur Rússa

Úkraínuher hefur staðfest að borgin Lysychansk í austurhluta Úkraínu er nú fallin í hendur Rússa. Eftir afar harða bardaga síðustu daga hafa úkraínskar varnarsveitir neyðst til að hörfa frá borginni en áður höfðu Rússar lýst því yfir að borgin væri nú þeirra.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×