Bíó og sjónvarp

Byrjuð að framleiða Aulann mig 4

Magnús Jochum Pálsson skrifar
Skósveinarnir gulu eru vinsælir hjá yngstu kynslóðinni.
Skósveinarnir gulu eru vinsælir hjá yngstu kynslóðinni. Universal Pictures/AP

Framleiðsla er hafin á Aulanum mér 4 segir leikarinn Steve Carell sem talar fyrir illmennið Gru. Carell segir myndina rökrétt framhald af þriðju mynd seríunnar, hún fjalli um það hvernig fjölskylda þeirra Gru og Lucy virki sem heild nú þegar þau eru komin með börn.

Illmennið Gru og skósveinar hans hafa verið vinsælir meðal ungra áhorfenda frá því fyrsta myndin, Aulinn ég, kom út árið 2010. Síðan þá hafa tvær framhaldsmyndir komið út auk sjálfstæða framhaldsins Skósveinarnir sem kom út árið 2015. Stefnt er að því að fjórða myndin í röðinni komi út 2024.

Í júlí í ár er hins vegar væntanleg önnur mynd um skósveinana gulu, Skósveinarnir: Gru rís upp, sem fjallar um upphaf ferils Gru og skósveinanna.

Í samtali Carell við Digital Spy, sem talar fyrir Gru, sagði hann upptökur fyrir fjórðu myndina þegar hafnar og að myndin væri rökrétt framhald í sögunni um Gru og fjölskyldu hans.

Í viðtalinu sagðist Carrell ekki fyllilega hafa skilið hvað skósveinarnir væru eiginlega þegar þeir voru fyrst útskýrðir fyrir honum en þegar hann sá þá í myndinni hafi hann loks skilið þá. Hann sagði háttprýði, gæsku og ást vera undirliggjandi í allri þeirra hegðun auk þess sem þeir væru fyndnir.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×