Lokatölur í Reykjavík: Meirihlutinn fallinn og stórsigur Framsóknar
Ritstjórn skrifar
Þessir 23 fulltrúar náðu kjöri í Reykjavík.Visir
Framsóknarflokkurinn er þriðji stærsti flokkurinn í Reykjavík eftir ótrúlegan árangur í kosningunum í nótt. Flokkurinn sem hafði engan borgarfulltrúa undanarin fjögur ár náði fjórum mönnum inn. Meirihlutinn í borginni er fallinn.
Á kjörskrá í Reykjavík eru 100.405. 23 borgarfulltrúar eiga sæti í borgarstjórn þar sem Samfylkingin, Píratar, Viðreisn og VG hafa starfað saman í meirihluta frá árinu 2018.
Sjálfstæðisflokkurinn var með átta fulltrúa, Sósíalistaflokkurinn og Flokkur fólksins með einn fulltrúa hvor hafa setið í minnihluta.
Fráfarandi meirihluti fær tíu fulltrúa af 23. Fróðlegt verður að fylgjast með þreyfingum flokkanna í borginni næstu daga við myndun nýs meirihluta.
Svona varð niðurstaðan í höfuðborginni:
Framsókn 11.227 atkvæði - fjórir fulltrúar
Viðreisn 3.111 atkvæði - einn fulltrúi
Sjálfstæðisflokkur 14.686 atkvæði - sex fulltrúar
Reykjavík – Besta borgin 134 atkvæði - núll fulltrúar
Flokkur fólksins 2.701 atkvæði - einn fulltrúi
Sósíalistar 4.618 atkvæði - tveir fulltrúar
Miðflokkur 1.467 atkvæði - núll fulltrúar
Píratar 6.970 atkvæði - þrír fulltrúar
Samfylking 12.164 atkvæði - fimm fulltrúar
Vinstri græn 2.396 atkvæði - einn fulltrúi
Ábyrg framtíð 475 atkvæði - núll fulltrúar
Að neðan má sjá grafíska framsetningu á úrslitunum í nótt.
Eftirfarandi náðu kjöri í borgarstjórn:
Einar Þorsteinsson (B)
Árelía Eydís Guðmundsdóttir (B)
Magnea Gná Jóhannsdóttir (B)
Aðalsteinn Haukur Sverrisson (B)
Þórdís Lóa Þórhallsdóttir (C)
Hildur Björnsdóttir (D)
Ragnhildur Alda María Vilhjálmsdóttir (D)
Kjartan Magnússon (D)
Marta Guðjónsdóttir (D)
Björn Gíslason (D)
Friðjón R. Friðjónsson (D)
Kolbrún Baldursdóttir (F)
Sanna Magdalena Mörtudóttir (J)
Trausti Breiðfjörð Magnússon (J)
Dóra Björt Guðjónsdóttir (P)
Alexandra Briem (P)
Magnús Davíð Norðdahl (P)
Dagur B. Eggertsson (S)
Heiða Björg Hilmisdóttir (S)
Skúli Þór Helgason (S)
Sabine Leskopf (S)
Hjálmar Sveinsson (S)
Líf Magneudóttir (V)
Alls eru 100.405 á kjörskrá í Reykjavík. Vísir/Rakel
Allt er óbreytt í Vestmannaeyjum eftir sveitarstjórnarkosningarnar í ár. Meirihluti Eyjalistans og Fyrir Heimaey hélt velli í kosningunum, hefur nú fimm fulltrúa af níu en hafði áður fjóra af sjö.
Ísafjarðarlistinn kom, sá og sigraði í sveitarstjórnarkosningunum í Ísafirði þetta árið. Flokkurinn náði fimm fulltrúum af níu og náði þar með meirihlutanum með því að stela fulltrúa af Sjálfstæðisflokknum.
Meirihlutinn í Reykjanesbæ styrkti stöðu sína að loknum sveitarstjórnarkosningunum. Samfylkingin fær þrjá fulltrúa, Framsókn sömuleiðis og Bein leið einn. Alls sjö fulltrúa af ellefu.
Framsóknarflokkurinn bætti við sig einum manni í bæjarstjórn á Akranesi í sveitarstjórnarkosningunum. Samfylkingin og Framsókn eru í meirihluta og halda honum örugglega.
Sjálfstæðisflokkurinn bættir við sig tveimur fulltrúum í sveitarfélaginu Árborg og er nú með hreinan sex fulltrúa meirihluta. Framsókn bættir sömuleiðis við einum fulltrúa og hefur nú tvo. Miðflokkurinn missir sinn eina bæjarfulltrúa en Samfylking og Áfram Árborg halda sínum mönnum.
Framsóknarflokkurinn er orðinn stærsti flokkurinn í Mosfellsbæ. Flokkurinn átti ekki fulltrúa í bæjarstjórn á síðasta kjörtímabili en fékk fjóra fulltrúa í kosningunum í nótt.
Sjálfstæðisflokkurinn heldur hreinum meirihluta í Garðabæ þrátt fyrir að tapa einum fulltrúa. Flokkurinn hefur sjö fulltrúa af ellefu að loknum kosningum.
Bæjarlistinn er í lykilstöðu þegar kemur að myndun meirihluta eftir kosningarnar. Flokkurinn bætir við sig fulltrúa og er stærstur í bæjarstjórn með þrjá fulltrúa.
Sjálfstæðisflokkurinn og Framsókn halda sex fulltrúa meirihluta í Kópavogi að loknum sveitarstjórnarkosningunum í nótt. Vinir Kópavogs, nýtt framboð, náði inn tveimur bæjarfulltrúum.
Samfylkingin bætti við sig tveimur bæjarfulltrúum í Hafnarfirði í sveitarstjórnarkosningunum. Flokkurinn er á pari við Sjálfstæðisflokkinn en hvor flokkur er með fjóra bæjarfulltrúa.
Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.