Tíska og hönnun

#íslenskflík: „Skór eru undirstaðan okkar“

Elísabet Hanna skrifar
Katrín Alda.
Katrín Alda. Anna Kristín Óskarsdóttir.

Katrín Alda Rafnsdóttir er eigandi KALDA og þriðji viðmælandinn #Íslenskflík sem er verkefni Fatahönnunarfélags Íslands sem miðar að því að kynna íslenska fatahönnun og vekja athygli á því framúrskarandi hugviti og þeim fjölbreyttu vörum sem hér er að finna.

Hver ert þú sem hönnuður?

Katrin Alda, eigandi skómerkisins KALDA.

Hvenær byrjaðir þú að hanna?

Ég byrjaði að hanna skó fyrir 6 árum og er ný byrjuð að hanna töskur núna.

Hvað er spennandi framundan hjá merkinu.

Við erum að kynna okkar fyrstu tösku línu núna á föstudaginn á HönnunarMars sem við erum mjög spennt yfir.

Hver er helsti munurinn á því að hanna skó og töskur?

Maður þarf að taka tillit til fleiri þátta þegar maður hannar skó, bæði fagurfræðilegra og með notagildi. Skór eru undirstaðan okkar og því mjög margt sem þarf að íhuga í hönnunarferlinu. Mér finnst t.d mjög mikilvægt að skór séu þægilegir. 

„Jafnvel þó þeir séu támjóir með 9 cm háum hæl er hægt að ná því fram með réttum efnum og handverki og það er eitthvað sem maður hugsar stanslaust út í.“

Töskur eru minna krefjandi þegar kemur að þessum þáttum en mig langaði samt að hugsa áfram um bæði fagurfræði og notagildi við hönnunar þeirra og því eru allar töskunar með tvíþætt notagildi, þ.e.a.s hægt sð vera með þær á amk tvo vegu.

Veistu hver hannaði þína flík?Anna Kristín Óskarsdóttir.

Fatahönnunarfélag Íslands teflir fram þriðju herferð verkefnisins #íslenskflík á Hönnunarmars í ár. Með verkefninu vill Fatahönnunarfélag Íslands vekja athygli fólks á því að staldra við og skoða íslenska fatahönnun næst þegar það fjárfestir í flík og á sama tíma fagna því fólki sem vinnur í faginu á Íslandi. 

Verkefnið er unnið af Blóð studio fyrir HönnunarMars. Listrænn stjórnandi verkefnisins er Ási Már Friðriksson og Anna Kristín Óskarsdóttir ljósmyndari fangar hönnuði í sínu náttúrulega umhverfi.

Fólk er hvatt til þess að taka þátt í verkefninu með því að pósta sinni íslenskri flík á samfélagsmiðla og merkja með #íslenskflík.


Tengdar fréttir

#íslenskflík: „Ég sá hana ljóslifandi fyrir mér í höfðinu“

Helga Lilja Magnúsdóttir hjá BAHNS er fyrsti viðmælandinn í #íslenskflík sem er verkefni Fatahönnunarfélags Íslands sem miðar að því að kynna íslenska fatahönnun og vekja athygli á því framúrskarandi hugviti og þeim fjölbreyttu vörum sem hér er að finna.

#íslenskflík: Saga 66°Norður stöðugur innblástur

Rakel Sólrós Jóhannsdóttir er partur af hönnunarteymi 66°Norður og er annar viðmælandinn í #Íslenskflík sem er verkefni Fatahönnunarfélags Íslands sem miðar að því að kynna íslenska fatahönnun og vekja athygli á því framúrskarandi hugviti og þeim fjölbreyttu vörum sem hér er að finna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×