Menning

Auka sýnileika hjá úkraínsku listafólki á Íslandi

Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar
Alexander Zaklynsky og Julia Mai Linnéa Maria, stofnendur ARTISTS4UKRAINE, í listgalleríinu á Laugavegi 12.
Alexander Zaklynsky og Julia Mai Linnéa Maria, stofnendur ARTISTS4UKRAINE, í listgalleríinu á Laugavegi 12. Ómar Sverrisson

Samtökin ARTISTS4UKRAINE opnuðu á dögunum listgallerí á Laugavegi 12, í sama húsi og Prikið er staðsett. Þar sýna úkraínskir listamenn verk sín ásamt öðrum og stefnt er að því að hafa galleríið gangandi í að minnsta kosti tvo mánuði til viðbótar. Blaðamaður ræddi við Alexander Zaklynsky, sem stofnaði ARTISTS4UKRAINE ásamt Juliu Mai Linnéu Mariu.

Tveir úkraínskir listamenn sýna verk sín í galleríinu um þessar mundir, þeir Eliash Strongowsky og Yevgen Samborsky. Samkvæmt Alexander verða nýjar sýningar settar upp á tveggja vikna fresti og stefnt er að því að halda viðburði í kringum opnanir. Í maí á meðal annars að vera pop up súpu viðburður með úkraínskri borscht súpu. Á döfinni er einnig að skipuleggja listasmiðju fyrir úkraínsk börn á Íslandi.

„Þetta gallerí er í stöðugri þróun og við vonumst til að geta nýtt okkur það sem upplýsingahlið og aukinn sýnileika fyrir úkraínskt listafólk og heimamenn sem vilja styðja við Úkraínu,“ segir Alexander og bætir við að þau séu að vinna að því að finna góðgerðasamtök úti til að styðja við. Viðburðirnir hafa hingað til stutt við ýmis úkraínsk góðgerðasamtök þar sem mannréttindi og menning mætast á öflugan hátt. Listamenn sem hafa áhuga á að vera með á sýningum gallerísins er velkomið að sækja um í gegnum heimasíðu samtakanna hér

Viðburðir í Bíó Paradís

ARTIST4UKRAINE eru með ýmislegt á döfinni og má þar á meðal nefna bíó sýningu annað kvöld í Bíó Paradís þar sem kvikmyndin Babushkas of Chernobyl verður sýnt í tilefni af því að 36 ár eru liðin frá hörmungunum í Chernobyl. Dagskráin hefst klukkan 19:00 og fyrir sýningu halda Gunnar Þorri Pétursson, þýðandi, og Valur Gunnarsson, rithöfundur og sagnfræðingur, erindi og umræður tengdar kvikmyndinni. Nánari upplýsingar má finna hér.


Tengdar fréttir

Góðgerðarmál og menning sameinast á kraftmikinn hátt til styrktar Úkraínu

Samtökin Artists4Ukraine standa að ýmsum menningartengdum viðburðum í Bíó Paradís þar sem allur ágóði frá viðburðunum rennur til fjölbreyttra góðgerðarfélaga í Úkraínu. Í kvöld, miðvikudaginn 6. apríl, munu Arists4Ukraine í samstarfi við úkraínska kvikmyndafyrirtækið MaGiKa films sýna kvikmyndina Ivan’s Land eftir úkraínska leikstjórann Andrii Lysetskyi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×