Tíska og hönnun

Endurskapar Bieber nafnið: Ein stærsta tískufyrirmynd sinnar kynslóðar

Elma Rut Valtýsdóttir skrifar
Hailey Bieber hefur vakið mikla athygli fyrir töffaralegan stíl sín.
Hailey Bieber hefur vakið mikla athygli fyrir töffaralegan stíl sín. Getty/GOTHAM-Buer-Griffin-Pierre Suu

Það er óhætt að segja að hin undurfagra Hailey Bieber sé ein helsta tískufyrirmynd ungra kvenna í dag. Stíll hennar er einstaklega töff en á sama tíma afslappaður og áreynslulaus, sem gerir það að verkum að auðvelt er fyrir hvern sem er að endurskapa hann.

Hailey sem er 25 ára gömul vakti fyrst athygli árið 2014 þegar fyrirsætuferill hennar fór á flug. Hún vann með tískurisum á borð við Ralph Lauren, Tommy Hilfiger og Guess.

Sviðsljósið var þó ekki nýtt fyrir Hailey þar sem hún er fædd inn í Baldwin leikarafjölskylduna. Faðir hennar er leikarinn Stephen Baldwin og er hún því bróðurdóttir stórleikarans Alec Baldwin.

Það var svo árið 2015 sem Hailey varð ein umtalaðasta stúlka heims, þegar hún stal hjarta poppstjörnunnar Justin Bieber. Parið gifti sig svo árið 2018 og hafa allra augu verið á Hailey síðan, enda er hún líklega að lifa draum margra stúlkna- að vera frú Bieber.

Tískudrottningin Bieber

Þrátt fyrir heimsfrægð eiginmannsins hefur Hailey með árunum tekist að setja nýja merkingu á bak við Bieber eftirnafnið. Nú er nafnið ekki eingöngu tengt við poppprinsinn, heldur einnig við tískudrottninguna Hailey Bieber.

Hailey er einstaklega töff þegar kemur að klæðaburði og er hún alltaf óaðfinnanleg til fara. Það sem gerir stíl Hailey þó einstakan er hve einfaldur hann er í raun og veru.

Það sem einkennir helst hversdagsstíl Hailey eru stórar yfirhafnir, blazer-jakkar, strigaskór og náttúrulegir litatónar. Þá sést hún sjaldan án sólgleraugna, sem eru eitt af hennar sérkennum.

Stórar yfirhafnir, strigaskór og sólgleraugu einkenna stíl hinnar glæsilegu Hailey Bieber.Getty/John Sciulli
Hvítir Nike Air Force 1 skór virðast vera í sérstöku uppáhaldi hjá Hailey.Getty/Buer-Griffin
Getty/Pierre Suu
Getty/GC Images
Hailey sést sjaldan án sólgleraugna.Getty/Bellocqimages
Getty/Pierre Suu
Hailey blandar gjarnan kósý flíkum eins og joggingbuxum saman við fínni flíkur.Getty/Rachpoot
Stórir blazer-jakkar eru eitt af sérkennum stíl hennar.Gett/Mega
Getty/Buer-Griffin

Keppast um að endurskapa stílinn

Þrátt fyrir að Hailey versli sínar flíkur í rándýrum hátískuhúsum, ætti að vera auðvelt að finna samskonar flíkur í nánast hvaða fatabúð sem er, ef þær eru ekki þegar til inni í fataskáp. Því hafa nú margar ungar konur tekið upp á því að endurskapa stíl Hailey.

Á samfélagsmiðlinum TikTok er að finna fjölmörg myndbönd af hinum ýmsu konum endurgera stílinn sem virðist klæða konur af öllum stærðum og gerðum.

 Hér að neðan má sjá nokkur slík myndbönd.

Hið eftirsóknarverða stílhreina lúkk

Það er þó ekki aðeins klæðaburður Hailey sem þykir töff, heldur þykir hún einstaklega smart þegar kemur að hári og förðun. Hailey er besta dæmi um „stílhreinu skvísuna“ (e. clean girl) sem er hugtak sem notað hefur verið til þess að lýsa ákveðnu útliti kvenna.

Um er að ræða stílhreint útlit þar sem mínimalísk förðun, náttúrulegar augabrúnir, ljómi og aftursleikt hár eru í forgrunni. Þetta er lúkk sem hefur verið afar eftirsóknarvert síðasta árið og þar er Hailey ein helsta fyrirmyndin.

Það má því með sanni segja að Hailey sé einn fremsti tískumógúll sinnar kynslóðar og skulum við leyfa myndunum hér að neðan að tala sínu máli.

Stíll Hailey er töff en afslappaður.Getty/Buer-Griffin
Alltaf óaðfinnanleg.Getty/Buer-Griffin
Getty/Marc Piasecki
Getty/Pierre Suu
Glæsileg í París.Getty/Marc Piasecki
Getty/MediaPunch/Bauer-Griffin
Getty/Marc Piasecki
Þegar Hailey er ekki í strigaskóm, klæðist hún gjarnan uppháum stígvélum.Getty/Pierre Suu

Getty/Buer-Griffin
Getty/Gotham
Getty/Bellocqimages
Sólgleraugun eru ómissandi fylgihlutur í Hailey Bieber lúkkinu.Getty/Bellocqimages
Töffari í New York.Getty/Jackson Lee
Getty/Donato Sardella
Hailey var einstaklega smart þegar hún fór út að borða þetta kvöld með eiginmanni sínum í New York.Getty/Robert Kamau
Getty/Gotham
Hailey klæðist oftast náttúrulegum litum, en hér má sjá hana í gulum jakka.Getty/Gotham
Getty/Buer-Griffin
Getty/Bellocqimages
Í gulu í tískuborginni París.Getty/Marc Piasecki
Getty/Rachpoot
Getty/Bellocqimages
Getty/Bellocqimages
Getty/Marc Piasecki


Tengdar fréttir

Justin Bieber óttast um eiginkonu sína Hailey

Hailey Bieber var lögð inn á spítala í síðustu viku vegna blóðtappa í heilanum og hefur eiginmaður hennar Justin Bieber varla getað sofið úr áhyggjum síðan. Henni heilsast vel í dag og vonandi er um einangrað atvik að ræða.

Hailey Bieber mögulega að setja á markað sitt eigið vörumerki

HI beauty teymið Heiður Ósk og Ingunn Sig, þáttastjórnendur Snyrtiborðsins, lifa og hrærast í heimi snyrtivara, förðunar og hárs. Í nýjasta pistlinum velta þær fyrir sér hvað sé að gerast hjá ofurfyrirsætunni Haylie Bieber, eiginkonu Justin Bieber. Við gefum þeim orðið.

Justin Bieber birtir fyrstu myndirnar úr brúðkaupinu

Kanadíski poppprinsinn Justin Bieber og fyrirsætan Hailey Baldwin trúlofuðu sig á Bahamaeyjum síðasta sumar og gengu síðan í það heilaga í september á síðasta ári með leynilegri athöfn.

Hailey Bieber svarar 73 spurningum

Kanadíski poppprinsinn Justin Bieber og fyrirsætan Hailey Baldwin gengu í það heilaga í september með leynilegri athöfn og bráðlega verður formlegt brúðkaupsveisla haldin vestanhafs.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×