Fótbolti

Fram­tíð tveggja leik­manna sem fóru á EM og HM í ó­vissu vegna meintra of­beldis- og kyn­ferðis­brota

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Rúnar Már og Sverrir Ingi í leik með íslenska landsliðinu.
Rúnar Már og Sverrir Ingi í leik með íslenska landsliðinu. Vísir/Vilhelm

Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins er framtíð Rúnars Más Sigurjónssonar og Sverris Inga Ingasonar með íslenska karlalandsliðinu í fótbolta í mikilli óvissu.

Þetta kemur fram í frétt mbl.is í gær, miðvikudaginn 20. apríl. Þar segir að mál leikmannanna tveggja hafi verið sent á borð Sigurbjargar Sigurpálsdóttur, samskiptaráðgjafa íþrótta- og æskulýðsstarfs, síðasta haust. Ástæðurnar eru meint ofbeldis- og kynferðisbrot.

Ómar Smárason, deildarstjóri samskiptadeildar Knattspyrnusambands Íslands, staðfesti í samtali við íþróttadeild að sambandinu hefði borist bréf þann 27. september síðastliðinn.

Sverrir Ingi í leik með íslenska landsliðinu.Vísir/Vilhelm

Hvorki Ómar né ein af stjórnarkonum Öfga gat staðfest hvað var í bréfinu en samkvæmt heimildum mbl.is innihélt bréfið nöfn á sex leikmönnum íslenska landsliðsins sem og dagsetningar yfir meint brot þeirra.

Þeir sem hafa verið nafngreindir af leikmönnunum sex eru Aron Einar Gunnarsson, Gylfi Þór Sigurðsson, Kolbeinn Sigþórsson og Ragnar Sigurðsson. Hvorki hinn 31 árs gamli Rúnar Már né hinn 28 ára gamli Sverrir Ingi höfðu verið nafngreindir, fyrr en nú.

Ekki gefið kost á sér að undanförnu

Bæði Rúnar Már og Sverrir Ingi voru í leikmannahópum Íslands sem fór á Evrópumótið í Frakklandi sumarið 2016 og heimsmeistaramótið í Rússlandi tveimur árum síðar. Alls hefur Rúnar Már spilað 32 leiki fyrir A-landslið Ísland og skorað 2 mörk á meðan Sverrir Ingi hefur spilað 39 leiki og skorað 3 mörk.

Komið er rúmt ár síðan leikmennirnir tveir voru hluti af íslenska landsliðshópnum. Þeir léku leik Íslands og Liechtenstein ytra í mars á síðasta ári en hafa ekki gefið kost á sér að undanförnu. Ástæðurnar hafa þó aldrei verið gefnar upp.

Sérsamböndin bíða eftir niðurstöðu ÍSÍ

Í frétt mbl.is um málið er velt því fyrir sér hvort leikmenn sem gerist sekir um brot af einu eða öðru tagi eigi afturkvæmt í landsliðið. Ómar staðfesti að KSÍ, sem og önnur sérsambönd Íslands, bíði nú eftir regluverki frá Íþrótta- og Ólympíusambandinu.

„Það var samþykkt á síðasta ársþingi ÍSÍ að stofna starfshóp sem átti að koma með tillögu að reglum fyrir alla íþróttahreyfinguna. Þeirri vinnu átti að ljúka 1. mars en það náðist ekki. Niðurstöðurnar komu svo í hús nokkrum vikum síðar en við, og öll hin sérsamböndin bíðum enn.“

Andri Stefánsson, framkvæmdastjóri ÍSÍ var til tals á RÚV nýverið vegna máls Eggerts Gunnþórs Jónssonar, leikmanns FH. Hann er sem stendur undir lögreglurannsókn vegna meints kynferðisbrots sem átti sér stað í Kaupmannahöfn fyrir rúmum áratug.

Í viðtalinu við RÚV fór Andri yfir stöðu mála varðandi starfshópinn sem Ómar ræðir um.

„Við erum að skoða niðurstöðurnar sem komu frá starfshópnum rétt fyrir páska; hvaða aðgerðir getur íþróttahreyfingin gert, hvernig eiga aðilar að bregðast við. Oft er ekki farið í viðbrögð því fólk veit ekki hvernig viðbrögðin eiga að vera. Við viljum vanda okkur og hafa þetta í lagi þannig að þetta stríði ekki á móti lögum í landinu, en þetta er mjög flókið mál. Þetta er akkúrat það sem íþróttahreyfingin hefur verið að kalla eftir, að ÍSÍ setji línu sem félögin geta farið eftir,“ sagði Andri í viðtali við RÚV.

„Fyrir mitt leyti, ef ég tala fyrir sjálfan mig, þá finnst mér eðlilegt að þegar að það koma upp svona mál - sem vekja óvissu - að aðilar stígi til hliðar þegar að svona mál eru skoðuð. Það er samt undir hverjum aðila fyrir sig að setja þannig reglur,“ sagði Andri að endingu er RÚV leitaðist svara vegna máls Eggerts Gunnþórs.


Tengdar fréttir

Martin Hermannsson gagnrýnir liðsval FH-inga

Martin Hermannsson, landsliðsmaður í körfubolta, setur stórt spurningarmerki við það að Eggert Gunnþór Jónsson sé í byrjunarliði FH-inga gegn Víkingum í opnunarleik Bestu-deildarinnar sem nú fer fram.

Þögn ríkir hjá FH um málefni Eggerts

Fundað var um stöðu knattspyrnumannsins Eggerts Gunnþórs Jónssonar hjá FH í Kaplakrika í gær vegna gagnrýni á veru hans í liði FH á sama tíma og embætti héraðssaksóknara er með mál hans til skoðunar.

Hafa rætt við fjölda fólks við rannsókn málsins

Ný gögn hafa komið fram í máli Arons Einars Gunnarssonar og Eggerts Gunnþórs Jónssonar. Frá þessu er greint í ítarlegri grein The Athletic um kynferðis- og ofbeldisbrot landsliðsmanna Íslands.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×