Innlent

Dómurinn þyngdur yfir karlinum sem hrinti konu fram af svölum

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Það var í september 2019 sem Jón Rúnar hrinti konu fram af svölunum í íbúð í Hólahverfinu í Breiðholti.
Það var í september 2019 sem Jón Rúnar hrinti konu fram af svölunum í íbúð í Hólahverfinu í Breiðholti. Vísir/Vilhelm

Landsréttur þyngdi í dag dóm yfir Jóni Rúnar Péturssyni, rúmlega fertugum karlmanni, fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás gagnvart konu árið 2019. Jón Rúnar fékk 21 mánaða dóm í héraði í fyrra en Landsréttur þyngdi refsinguna í tvö og hálft ár.

Jón Rúnar var dæmdur fyrir að hafa í september 2019 veist með ofbeldi að konu á þrítugsaldri og hrint henni fram af svölum íbúðar hans á annarri hæð í Hólahverfi í Breiðholti.

Konan hlaut heilahristing, blæðingar og bólgur undir húð í andliti ásamt skurðum yfir kjálka, brot á tveimur stöðum í neðri kjálka, brot í kinnholu í efri kjálka, brotnar tennur og brot á mjaðmabeini.

Jón Rúnar var einnig dæmdur fyrir umferðar- og fíkniefnalagabrot. Hann var þann 27. maí 2019 tekinn á þungu bifhjóli, sviptur ökurétti og undir áhrifum ávana- og fíkniefna. Þar að auki var hann tekinn með 12,59 grömm af metamfetamíni þann 4. apríl 2020.

Jón Rúnar var dæmdur til að greiða konunni 1,8 milljónir króna í miskabætur, um tvö hundrað þúsund krónur í skaðabætur og áfrýjunarkostnað í kringum tvær milljónir króna.

Dómur Landsréttar.


Tengdar fréttir

Dæmdur í fangelsi fyrir að kasta konu fram af svölum

Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt mann í 21 mánaðar fangelsi. Hann var dæmdur fyrir að kasta konu fram af svölum sínum á annarri hæð í Breiðholti árið 2019. Gæsluvarðhald sem hann sætti frá 17. september til 13. október árið 2019 verður dregið frá dómnum.

Konu hrint fram af svölum í Breiðholti

Hún var flutt á sjúkrahús og er alvarlega slösuð en sá sem talinn er hafa hrint henni var handtekinn á vettvangi og vistaður í fangageymslu.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×