Bíó og sjónvarp

X-977 með sérstaka forsýningu á Foo Fighters myndinni Studio 666

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
David Grohl í kvikmyndinni Studio 666.
David Grohl í kvikmyndinni Studio 666. Skjáskot/Youtube

Útvarpsstöðin x-977 heldur í kvöld sérstaka forsýningu á Foo Fighters myndinni Studio 666 í Smárabíó. 

Goðsagnakennda rokkhljómsveitin Foo Fighters flutti inn í Encino setrið til að taka upp tíundu breiðskífu sína. Í myndinni Studio 666 fá áhorfendur að fylgjast með því þegar David Grohl þarf að berjast við erfið öfl til þess að bjarga hljómsveitinni og plötunni. 

Sýningin er kl 19.10 í lúxussalnum í Smárabíó og er verið að gefa hlustendum miða í loftinu á X-977. Athugið að myndin verður sýnd ótextuð. 

Hér fyrir neðan má sjá stikluna fyrir myndina Studio 666. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×