Torres tryggði Börsungum jafntefli

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Ferran Torres skoraði jöfnunarmark Börsunga í kvöld.
Ferran Torres skoraði jöfnunarmark Börsunga í kvöld. David S. Bustamante/Soccrates/Getty Images

Ferran Torres skoraði jöfnunarmark Börsunga af vítapunktinum er liðið gerði 1-1 jafntefli gegn Napoli í stórleik kvöldsins í Evrópudeildinni í fótbolta.

Það voru gestirnir frá Napoli sem voru fyrri til að brjóta ísinn, en þar var að verki Piotr Zielinski eftir tæplega hálftíma leik.

Ekki urðu mörkin fleiri í fyrri hálfleik og staðan var því 1-0 þegar gengið var til búningsherbergja.

Aftur dró til tíðinda á 59. mínútu þegar Börsungar fengu vítaspynu. Ferran Torres fór á punktinn fyrir heimamenn og setti boltann í netið fram hjá Alex Meret í marki Napoli.

Heimamenn voru sterkari aðilinn það sem eftir lifði leiks, en ekki tókst þeim að finna sigurmarkið og niðurstaðan varð því 1-1 jafntefli.

Liðin mætast á ný að viku liðinni á Ítalíu í leik þar sem allt er undir. Liðið sem ber sigur úr býtum í þeim leik tryggir sér sæti í 16-liða úrslitum Evrópudeildarinnar, en það lið sem tapar situr eftir með sárt ennið.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira