Viðskipti innlent

Gæti stefnt í lengri og þrálátari verðbólgu en áður var talið

Fanndís Birna Logadóttir skrifar
Hagfræðideild Landsbankans varar við alvarlegri stöðu á húsnæðismarkaði. 
Hagfræðideild Landsbankans varar við alvarlegri stöðu á húsnæðismarkaði.  Foto: Vilhelm Gunnarsson/Vilhelm Gunnarsson

Hagfræðideild Landsbankans varar við því að koma þurfi böndum á húsnæðismarkaðinn til að hemja verðbólgu almennt en íbúðaverð heldur áfram að hækka hratt. Staðan sé alvarleg og gæti stefnt í lengri og þrálátari verðbólgu en áður var talið ef íbúðamarkaður fer ekki að róast.

Vísitala íbúðarverðs heldur áfram að hækka milli mánaða en í janúar 2022 mældist hún 823,7, sem er 1,7 prósentustiga hækkun milli mánaða. Síðustu sex mánuði hefur vísitalan hækkað um 8,7 prósent og um 20,3 prósent síðustu tólf mánuði. Þetta kemur fram í nýbirtum tölum Þjóðskrár Íslands.

Að því er kemur fram í Hagsjá hagfræðideildar Landsbankans lítur ekki út fyrir að markaðurinn róist á næstunni. Þá geri sú staðreynd að verðbólga sé mun almennari nú en áður það að verkum að afleiðingar af hækkandi húsnæðisverði eru alvarlegri en áður.

„Verðbólga mældist 5,7% í janúar og hafði ekki verið meiri síðan 2012. Horft til undirliða sést að húsnæði skýrir hátt í helming verðbólgunnar. Því er mikilvægt að koma böndum á húsnæðismarkaðinn ef hemja á verðbólguna almennt,“ segir í Hagsjánni.

Þetta er annar mánuðurinn í röð sem að vísitala íbúðaverðs hækkar mikið en í desember hækkaði hún um 1,8 prósentustig, sem kom á óvart þar sem verðþróun mánuðina á undan hafði gefið tilefni til að ætla að markaðurinn væri farinn að róast.

Raunverð hækkar ekki jafn hratt og nafnverð

Fjölbýli hækkaði um 1,8 prósent milli mánaða og sérbýli um 1,1 prósent. Tólf mánaða hækkun fjölbýlis mælist nú 19,6 prósent, sérbýlis 22,5 prósent og vegin hækkun alls íbúðarhúsnæðis mældist 20,3 prósent. Tólf mánaða hækkun sérbýlis hefur ekki mælst meiri síðan í mars 2006.

„Síðast þegar hækkanir á húsnæðismarkaði voru áþekkar og nú var spennan meiri á markaði fyrir fjölbýli sem hækkaði um allt að 24,4% þegar mest lét í maí 2017. Núna virðist spennan vera meiri á markaði fyrir sérbýli sem hækkar meira en fjölbýli horft til 12 mánaða þróunar,“ segir í Hagsjánni.

Þá hækkaði raunverð íbúða um 1,5 prósent milli mánaða en þetta er annar mánuðurinn í röð þar sem hækkunin mælist 1,5 prósent, sem er talsvert meiri hækkun en mánuðina þar áður. Raunverð hækkar þó ekki jafn hratt og nafnverð.

Þróun raunverðs er þó rólegri en í síðustu hækkunarhrinu á íbúðamarkaði. Samkvæmt hagfræðideildinni virðist staða kaupenda ekki jafn slæm og á árunum 2016 til 2018.

„Staðan er engu að síður orðin nokkuð alvarleg og gæti stefnt í lengri og þrálátari verðbólgu en áður var talið ef íbúðamarkaður fer ekki að róast. Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands tók nokkuð stórt skref í síðustu viku þegar stýrivextir voru hækkaðir um 0,75 prósentustig til þess að slá á eftirspurn á íbúðamarkaði og í hagkerfinu almennt. Nýjustu gögn benda þó til þess að mögulega þurfi að stíga enn stærri skref ef kæla á markaðinn meira,“ segir í Hagsjánni.


Tengdar fréttir

Sumarhús seldust sem aldrei fyrr

Metsala var á sumarhúsum á síðasta ári. Hinn aukni áhugi er rakinn til lægri vaxta, aukins sparnaðar og færri ferðalaga vegna kórónuveirufaraldursins.

Munur á þróun leigu- og kaupverðs aldrei mælst meiri

Spenna á leigumarkaði hefur dregist saman síðustu misseri og leiguverð þróast með rólegasta móti, að sögn Hagfræðideildar Landsbankans. Hefur leiguverð nánast staðið í stað frá því að faraldurinn hófst og aðeins hækkað um 1,9% síðan í janúar 2020.

Fyrstu kaup­endur hafa aldrei verið fleiri

Tæplega 34 prósent allra kaupenda íbúðarhúsnæðis á höfuðborgarsvæðinu á þriðja ársfjórðungi voru að kaupa sína fyrstu íbúð. Hlutfallið hefur aldrei verið hærra.

Meðal­kaup­verð íbúða í landinu átta milljónum hærra en fyrir ári

Meðalkaupverð íbúða á landinu var 58,5 milljónir króna í nóvember síðastliðinn samanborið við 50,8 milljónir króna nóvember árið áður. Á höfuðborgarsvæðinu var meðalkaupverð 67,6 milljónir króna en þar af var það 58 milljónir króna fyrir íbúðir í fjölbýli og 98 milljónir fyrir sérbýli.

Aldrei selst fleiri í­búðir en í fyrra og verðið hækkaði mikið

Metfjöldi íbúða seldist á síðasta ári og var fjölgunin milli ára töluvert yfir meðaltali fyrri ára á þessari öld og íbúðaverð hækkaði um 18,4 prósent. Fasteignasali reiknar með áframhaldandi skorti á íbúðarhúsnæði á allra næstu misserum.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×