Innlent

Boðaður í yfir­heyrslu vegna um­fjöllunar um Sam­herja

Vésteinn Örn Pétursson skrifar
Lögreglan á Norðurlandi hefur boðað Aðalstein í yfirheyrslu í næstu viku.
Lögreglan á Norðurlandi hefur boðað Aðalstein í yfirheyrslu í næstu viku. Vísir/Vilhelm

Aðalsteinn Kjartansson, blaðamaður á Stundinni, hefur verið boðaður í yfirheyrslu hjá lögreglunni á Norðurlandi eystra í næstu viku vegna umfjöllunar sinnar um aðferðir hinnar svokölluðu „skæruliðadeildar Samherja.“

Þetta kemur fram hjá Stundinni, sem kveðst hafa heimildir fyrir því að minnst einn annar blaðamaður hafi verið boðaður í yfirheyrslu. Þeir séu grunaðir um að hafa með umfjöllun sinni brotið gegn ákvæðum hegningarlaga um friðhelgi einkalífs.

Í boðun frá lögreglu komi fram að Aðalsteinn muni við skýrslutökuna fá réttarstöðu sakbornings og hann hafi rétt til þess að mæta með lögmann með sér, sem lögregla muni tilnefna honum við rannsókn málsins.

Telur skilaboðin skrýtin

Í samtali við Vísi segist Aðalsteinn hissa á málinu.

„Það kemur náttúrulega bara ótrúlega á óvart að lögreglan skuli ekki vera betur að sér í hvaða lög gilda um störf blaðamanna og fjölmiðla. Það gæti ekki verið skýrara að það er lögbrot fyrir mig að gefa nokkra vísbendingu um þau gögn sem ég fjalla um. Um það gilda lög um vernd heimildamanna,“ segir Aðalsteinn.

Hann skilji því hreinlega ekki hvað búi að baki ákvörðun lögreglustjórans á Norðurlandi um að boða hann í yfirheyrslu, en lögreglumaður að norðan verður sendur til Reykjavíkur til þess að annast yfirheyrslurnar.

„En þetta er einhver vegferð sem lögreglustjórinn þarna fyrir norðan hefur áhuga á og ég fæ náttúrulega engu um það ráðið, sama hversu ótrúlega skrýtin skilaboð mér finnst það senda til blaðamanna, fjölmiðla og almennings.“

Spenntur að sjá um hvað málið snýst

Aðalsteinn segist ekki hafa fengið upplýsingar um hvaða hluti umfjöllunar hans um Samherja það sé sem lögreglan telur að geti varðað við lög. Í boðun til hans komi einfaldlega fram að grunur leiki á um að hann hafi gerst brotlegur við lagaákvæði um friðhelgi einkalífs.

„Það verður bara spennandi að heyra hvað í ósköpunum ég á að hafa gert.“

Aðalsteinn segist litlar áhyggjur hafa af málinu. Hann búi svo vel að vinna á vinnustað sem hafi lögfræðinga á sínum snærum.

Líkt og áður sagði greindi Stundin frá því að tveir blaðamenn hið minnsta hafi verið boðaðir í yfirheyrslu, en Aðalsteini er ekki kunnugt um hver hinn blaðamaðurinn er.

Uppfært klukkan 18:50: Í umfjöllun Kjarnans kemur fram að tveir starfsmenn miðilsins, ritstjórinn Þórður Snær Júlíusson og blaðamaðurinn Arnar Þór Ing­ólfs­son, hefðu verið boðaðir í yfirheyrslu hjá lögreglunni á Norðurlandi. Þeir hafi verið boðaðir í yfirheyrslu af sömu ástæðu og Aðalsteinn; vegna umfjöllunar um „skæruliðadeild Samherja.“

Uppfært klukkan 20:07: Sigríður Dögg Auðunsdóttir, formaður Blaðamannafélags Íslands, hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna málsins. Hana má lesa hér.


Tengdar fréttir

„Skæru­liða­deild“ Sam­herja reyndi að hafa á­hrif á for­manns­kjör BÍ

Skæruliðadeild Samherja, svokölluð, gerði tilraunir til þess að hafa áhrif á formannskjör Blaðamannafélags Íslands, sem fór fram í apríl, í von um að koma í veg fyrir að Sigríður Dögg Auðunsdóttir, fréttamaður á RÚV, yrði nýr formaður félagsins. Formaður BÍ segir tilraunina ólíðandi og alvarlega.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×