Innlent

Ættu að geta reitt sig á dómskerfið en ekki „hvísl“ til að tryggja öryggi

Margrét Helga Erlingsdóttir skrifar
Lenya Rún Taha Karim varaþingmaður Pírata vill heildarendurskoðun á refsilöggjöf þar sem sjónarmið þolenda eru höfð að leiðarljósi. Hún hefur sjálf hug á því að leggja fram slíka þingsályktunartillögu næst þegar hún fer á þing. Hún er bjartsýn á að það verði mögulega í næsta mánuði.
Lenya Rún Taha Karim varaþingmaður Pírata vill heildarendurskoðun á refsilöggjöf þar sem sjónarmið þolenda eru höfð að leiðarljósi. Hún hefur sjálf hug á því að leggja fram slíka þingsályktunartillögu næst þegar hún fer á þing. Hún er bjartsýn á að það verði mögulega í næsta mánuði.

Lenya Rún Taha Karim, varaþingmaður Pírata, furðar sig á því að ekki sé sjálfstætt refsiákvæði um byrlun í refsilöggjöf ekki síst í ljósi þess að athæfið hafi verið stundað í árafjöld. Aragrúi frásagna kvenna sem ná langt aftur í tímann eru til vitnis um það.

Í svari dómsmálaráðherra við fyrirspurn Lenyu Rúnar kom í ljós að byrlun sem slík er ekki skilgreind sem sjálfstætt brot í refsilöggjöf á Íslandi. Sökum þessa eru engum tölfræðiupplýsingum fyrir að fara um byrlun. Lenya Rún hafði ekki áttað sig á þessu þegar hún lagði fyrirspurnina fram síðasta haust. Þetta kom fram í hádegisfréttum Bylgjunnar. Hægt er að hlusta á fréttatímann í heild neðst í fréttinni.

„Nei, ég lagði þessa fyrirspurn fram þegar fólk opnaði sig um byrlunarfaraldurinn sem var þá í gangi. Þetta var einhvern tímann í september eða október. […] Það var því í sjálfu sér alveg borðleggjandi að leggja fram þessa fyrirspurn því við þurfum að fá tölfræðigögn um byrlanir því þær eru miklu algengari en við almennt höldum.“

Var byrluð ólyfjan síðasta sumar

Lenyu Rún var sjálfri byrluð ólyfjan síðasta sumar án þess þó að verða fyrir frekara ofbeldi. Þessi reynsla var henni afar þungbær.

„Það gerðist ekkert meira en það. Ég vissi strax hvað væri að gerast og fór bara beint heim. Þetta er ógeðsleg tilfinning og mér leið eins og brotið hefði verið á mér. Ég hef heyrt það nákvæmlega sama frá mjög mörgum í kringum mig.“

Lenya Rún hyggst leggja fram þingsályktunartillögu um þolendamiðaða heildarendurskoðun hegningarlaga. Hún leggur til hegningaraukaákvæði þegar brot eru framin þegar þolanda hefur verið byrluð ólyfjan en vill einnig sjá sjálfstætt refsiákvæði er varðar byrlunina sjálfa.

„Það eina sem ég er að biðja um er að dómsmálaráðherra endurskoði þessi lög með hagsmuni þolenda í fyrirrúmi og út frá sjónarmiðum þeirra.“

Konur eigi að geta treyst dómskerfinu

Lenya Rún telur að þetta byrlunarmál sé enn einn liðurinn í því að margar konur vantreysti dómskerfinu. Þær hafi neyðst til að fara óhefðbundnari leiðir til að tryggja öryggi sitt og kynsystra sinna.

„Við tölum gjarnan um „hvísl“ á milli kvenna en það er eitthvað sem hjálpar okkur rosalega mikið, sem er rosalega sorglegt því við ættum að geta reitt okkur á dómskerfið í landinu okkar þegar kemur að byrlun.“

Ævar Pálmi Pálmason, aðstoðaryfirlögregluþjónn á kynferðisbrotadeild lögreglunnar, sagði í samtali við RÚV þegar frásagnir af byrlun komust í hámæli að hann vissi ekki til þess að nokkrun tímann hafi verið sakfellt fyrir að fólki sé byrluð ólyfjan hér á landi.

Hann sagði að miðað við umræðu á samfélagsmiðlum væri mögulega aukning á þessu athæfi – í minnsta lagi væri vakning um það en líkt og fram kom í þessari frétt er erfitt að öðlast yfirsýn í þessum málaflokki því ekki er hægt að styðjast við neina tölfræði. Hún er hreinlega ekki til.


Tengdar fréttir

Engin töl­fræði til um byrlanir

Byrlun er ekki skilgreind sem sjálfstætt brot í refsilöggjöf á Íslandi og því eru engar tölfræðiupplýsingar um byrlanir eða tilraunir til byrlana til hér á landi. Þetta kemur fram í svari dómsmálaráðherra við fyrirspurn Lenyu Rúnar Taha Karim varaþingmanns Pírata.

Grunur um að þremur hafi verið byrlað

Grunur leikur á að þremur hafi verið byrluð ólyfjan á Akureyri í nótt, tveimur konum og einum karlmanni. Önnur kvennanna fannst nær rænulaus fyrir utan skemmtistað í bænum en vinir hinna tveggja komu þeim á slysadeild.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×