Viðskipti innlent

Stjórnvöld þurfi að grípa hratt inn í ástandið

Tryggvi Páll Tryggvason og Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifa
Ragnar Þór Ingólfsson formaður VR.
Ragnar Þór Ingólfsson formaður VR. Vísir/Vilhelm.

Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, segir að stjórnvöld verði að grípa hratt inn í vegna ástandsins á húsnæðismarkaði hér á landi.

Staðan er á húsnæðismarkaðinum er þung. Verðbólga mælist nú 5,7 prósent og hefur ekki verið meiri í áratug. Húsnæðisliðurinn vegur einna þyngst en á sama tíma og greiðslubyrði lána hefur hækkað um allt að 14 prósent hefur meðalíbúðaverð hækkað á höfuðborgarsvæðinu hækkað verulega.

Ragnar Þór segir að stjórnvöld þurfi að bregðast við þessu ástandi og nefnir hann dæmi af leigumarkaðinum máli sínu til stuðnings.

„Við höfum verið í sambandi við fjölskyldur sem hafa verið að leigja til dæmis íbúðir á 280 þúsund á mánuði fyrir svona 24 mánuðum síðan. Núna er leigan farin að fara yfir 310 þúsund á mánuði og þetta er að gerast á skömmum tíma. Þetta ástand á bara eftir að versna,“ sagði Ragnar Þór í kvöldfréttum Stöðvar 2 í kvöld.

Orð Ragnars eru þau sömu og koma fram í umsögn VR um nýtt frumvarp Flokks fólksins þar sem lagt er til að húsnæðisliðurinn verði tekinn út úr vísitölu neysluverðs. Er markmið frumvarpsins að sporna gegn áhrifum verðbólgunnar á heimili landsins.

Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra sagði í kvöldfréttum Stöðvar 2 í kvöld að verðbólgustaðan væri áhyggjuefni, ekki síst vegna þess að það væri tekjulægra fólk sem fyndi fyrst fyrir áhrifum verðbólgunnar.

Ragnar Þór segir að ef ekkert verði gert nú muni staðan hafa mikil áhrif á kjaraviðræður í haust.

„Hjá fólki sem hefur lítið á milli handanna eða lítið afgangs þá skipta þrjátíu þúsund krónur hækkun gríðarlega máli. Til að setja það í samhengi þá þurfum við í verkalýðshreyfingunni að semja um ríflega fimmtíu þúsund króna launahækkun bara til að standa undir þessum kostnaði,“ sagði Ragnar.

„Ef það verður ekki gripið inn í, ef stjórnvöld ætla bara að sitja á hliðarlínunni og gera ekki neitt að þá endar þetta bara á borðinu hjá okkur, aðilum vinnumarkaðarins, þegar kjarasamningar losna núna í haust. Það er í rauninni alveg ótrúlegt að horfa upp á aðgerðarleysið vegna þess að við erum búin að benda á þetta mánuðum saman frá því í haust,“ sagði Ragnar ennfremur.


Tengdar fréttir

Í­búða­markaður með krónískan há­þrýsting

Húsnæðisverð á höfuðborgarsvæðinu hækkaði um 1,8% í desember 2021 sem þýðir að húsnæðisverð hefur hækkað um 18,4% á einu ári. Þetta er 4% meiri hækkun á árinu en Greiningardeild Húsaskjóls spáði í apríl sl.

Hækkandi húsnæðisverð vegi þyngst

Hækkun verðbólgu er ekki séríslenskt fyrirbæri heldur færist hún einnig í aukana erlendis, segir aðalhagfræðingur Landsbankans. Frá aldamótum hafi dregið verulega úr sveiflum hér á landi þó að verðbólga hafi verið óstöðugari á Íslandi en í okkar helstu viðskiptalöndum. 

Óttast frekari hækkun verð­bólgu

Fjármálaráðherra og forsætisráðherra segja mikla hækkun verðbólgu að undanförnu mikið áhyggjuefni. Sama staða sé uppi á teningnum úti í heimi en taka verði hækkun hérlendis alvarlega.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×