Sport

Anderson og Wade örugglega áfram í undanúrslit

Arnar Geir Halldórsson skrifar
Fer Gary Anderson alla leið í ár?
Fer Gary Anderson alla leið í ár? vísir/Getty

James Wade og Gary Anderson tryggðu sér sæti í undanúrslitum á HM í pílukasti í Alexandra Palace í dag.

Englendingurinn Wade mætti landa sínum, Mervyn King, í fyrri leik dagsins og er óhætt að segja að aldrei hafi verið spurning hvoru megin sigurinn myndi lenda.

Wade hefur verið að spila af mikilli festu og hann gerði sér lítið fyrir og sópaði King út með 5-0 sigri.

Meiri spenna var í síðari viðureign dagsins þar sem Skotinn síkáti, Gary Anderson, atti kappi við Luke Humphries. 

Eftir skemmtilegan leik hafði reynsluboltinn Anderson nokkuð öruggan 5-2 sigur.

Í kvöld kemur í ljós hverjir verða með þeim Anderson og Wade í undanúrslitunum á morgun en einvígi kvöldsins eru á milli Peter Wright og Callan Rydz annars vegar og Gerwyn Price og Michael Smith hins vegar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×