Stefnir ekki á að fara líka út í fatahönnun en útilokar ekkert Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar 9. desember 2021 15:31 Egill Fannar og Gauti Reynissynir hönnuðu inniskó sem fengið hafa góðar viðtökur. Samsett „Við bræður, ég og Gauti Reynisson, réðumst i þetta samstarf fyrir um þremur árum með skósmíðameistaranum Lárusi Gunnsteinssyni,“ segir Egill Fannar Reynisson einn eigenda Betra baks og einn þriggja hönnuða merkisins Kosy sem framleiðir inniskó og þar á meðal týpuna Stormur. „
Lárus hefur meðal annars unnið hjá Össur en hann lærði sjúkraskósmíði í Svíþjóð. Ef ég man rétt útskrifaðist á sínum tíma með hæstu einkunn sem gefin hafði verið við skólann sem hann var í.“ Aðspurður um hvers vegna þetta kom til segir Egill að þeir bræður hafi lengi leitað að vönduðum inniskóm til að selja í verslunum en hafi ekki dottið niður á neitt sem þeim leist báðum nógu vel á. „Þar sem við höfum nú alltaf verið nokkuð framkvæmdaglaðir lá auðvitað beinast við að gerast inniskóahönnuðir,“ segir Egill og hlær. „En svona að öllu gríni slepptu þá varð þetta að miklu stærra verkefni en við lögðum upp með og það að fá Lárus í lið með okkur var mikill happafengur.“ Í öðru sæti á eftir bókinni Egill segir að það sé auðvitað ekki nóg að inniskór líti vel út því þeir verði að gera sitt gagn líka og í því sambandi má nefna þægindi og eins að vera góðir fyrir heilsuna. Bræðurnir fundu ekki réttu inniskóna svo þeir ákváðu að hanna þá sjálfir.Kosy „Innleggin í skónum eru einmitt mjög vönduð og Lárus er auðvitað töframaður í sínu fagi og úr varð níu svæða nuddinnlegg sem dregur úr spennu og örvar blóðflæði. Er hægt að biðja eitthvað meira undir tréð eftir allt jólaamstrið? Ég held ekki, enda hefur það sýnt sig í gegnum árin að inniskór eru alltaf að skora hátt þegar jólagjöfum og oftar en ekki í öðru sæti á eftir bókinni,“ segir Egill. Náttföt og þægilegur fatnaður gera það víst líka og aðspurður segist Egill ekki hafa í hyggju að gerast fatahönnuður í ofanálag. „Það er nú samt aldrei að vita hvað við bræður tökum upp á.“
Tíska og hönnun Svefn Tengdar fréttir Ómetanleg menningarleg arfleifð Virgil Abloh Tísku mógúllinn, listamaðurinn og hönnuðurinn Virgil Abloh féll frá í gær, sunnudaginn 28. nóvember, einungis 41 árs gamall. 29. nóvember 2021 20:00 Íslenskri hönnun varpað á skjái um allt höfuðborgarsvæðið Í október fer í fyrsta sinn af stað einstakt átak sem ætlað er að vekja áhuga á íslenskri hönnun. 60 ólíkar hönnunarvörur, frá ferðavögnum yfir í flothettur og allt þar á milli, munu prýða ljósaskilti um allt höfuðborgarsvæðið þessa vikuna og sýna fjölbreytileika og fegurð íslenskrar hönnunar 18. október 2021 16:31 Mest lesið Drakk ógeðslega illa og hætti eftir blindafyllerí Lífið Einar fékk meira hár en Baldur Lífið „Aldrei grátið jafn mikið af gleði“ Lífið „Ég er sáttur við það dagsverk“ Menning „Öruggt athvarf fyrir hinsegin samfélagið“ Lífið Kynferðislega ófullnægður forstjóri finnur sér ungan graðfola Gagnrýni Glatkistunni lokað Menning Áslaug selur glæsiíbúð í Reykjavík Lífið Elliot Page frumsýndi nýju kærustuna á Skólavörðustígnum Lífið Martin Österdahl hættir hjá Eurovision Lífið Fleiri fréttir „Þetta kom mér jafnmikið á óvart eins og öðrum“ Stálu senunni í París Byrjaði fjögurra ára í búningaleik og hætti aldrei Katrín og Inga Rut í stjórn Miðstöðvar hönnunar og arkitektúrs Það allra heitasta í sumarförðuninni Sjá meira
Ómetanleg menningarleg arfleifð Virgil Abloh Tísku mógúllinn, listamaðurinn og hönnuðurinn Virgil Abloh féll frá í gær, sunnudaginn 28. nóvember, einungis 41 árs gamall. 29. nóvember 2021 20:00
Íslenskri hönnun varpað á skjái um allt höfuðborgarsvæðið Í október fer í fyrsta sinn af stað einstakt átak sem ætlað er að vekja áhuga á íslenskri hönnun. 60 ólíkar hönnunarvörur, frá ferðavögnum yfir í flothettur og allt þar á milli, munu prýða ljósaskilti um allt höfuðborgarsvæðið þessa vikuna og sýna fjölbreytileika og fegurð íslenskrar hönnunar 18. október 2021 16:31