Tíska og hönnun

Auðvelda fólki að koma íslenskri hönnun undir jólatréð

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Álfrún Pálsdóttir kynningarstjóri Miðstöðvar hönnunar og arkitektúrs.
Álfrún Pálsdóttir kynningarstjóri Miðstöðvar hönnunar og arkitektúrs. Aldís Páls

„Nú er helsti tími verslunar fram undan og við viljum að fólk sé meðvitað um allt það fjölbreytta úrval íslenskrar hönnunar sem er á boðstólnum hér heima - fyrir heimilið, fataskápinn og undir tréð,“ segir Álfrún Pálsdóttir kynningarstjóri Miðstöðvar hönnunar og arkitektúrs-

Á vefnum þeirra má sjá lista yfir allar þær verslanir sem selja íslenska hönnun. Það er því kjörið að skoða listann, bæði til áminningar og til að uppgötva eitthvað nýtt og spennandi.

„Okkur fannst borðleggjandi, þegar við gerðum nýja heimasíðu fyrir Miðstöð hönnunar og arkitektúrs í fyrra, að þar væri að finna greinagott yfirlit yfir verslanir og vefsíður sem selja íslenskar hönnunarvörur,“ segir Álfrún um listann. Hann er þó ekki bara opinn í desember.

„Það skiptir máli allt árið um kring að auka vitund almennings á grósku íslenskrar hönnunar og því frábæra starfi sem sístækkandi og fjölbreyttur hópur hönnuða hér á landi er að vinna.“

Netverslunum fjölgað í Covid

Álfrún segir að á síðunni ættu allir að geta fundið eitthvað við sitt hæfi.

„Nú erum við búin að uppfæra síðuna með það að markmiði að einfalda og auka aðgengi að íslenskri hönnun, og sömuleiðis vekja athygli á fjölbreytni og grósku íslenskrar hönnunar, hugvits og nýsköpunar. Allt frá fatnaði, heimilisvörur, lífsstíll, skartgripum og að verslunum sem selja fjölbreytta hönnun. Sömuleiðis er bæði að finna stærri verslanir og minni og netverslanir þar sem hægt er að versla frá hönnuðunum beint.“

Álfrún segir að úrvalið sé stöðugt að aukast og vefsíðan sjálf er líka í stöðugri uppfærslu. 

„Það má segja að síðustu tvö ár hefur aðgengi að íslenskri hönnun, bæði í verslunum og á netinu, verið sífellt að stækka. Mögulega er það jákvæð þróun faraldursins að ýta við mörgum að gera góðar netverslanir og verða sýnilegri fyrir almenning með þeim hætti.“

Íslenskir neytendur líta sér nær

Íslenskir hönnuðir hafa upplifað mikinn meðbyr síðustu misseri þrátt fyrir að færri ferðamenn hafi heimsótt landið. 

„Það er oft þannig að þegar kreppir að, eða heimurinn gengur í gegnum krísur eins og hefur verið síðustu tvö ár, þá fer fólk að líta sér nær og opna augun fyrir því sem er að gerast í nærumhverfinu. Neytendur eru líka orðnir miklu meðvitaðri um kaupa hluti og fatnað sem stenst tímans tönn og á sér einhverja sögu. Umhverfið, áhersla á hringrás og sjálfbærni eru líka mörgum hugleikið og þar getur verið best að velja hluti sem auðvelt er að rekja uppruna og fylgjast með gagnsæi í framleiðsluferli og efnisnotkun.“

Listinn er uppfærður reglulega og bætast sífellt fleiri verslanir í hópinn.

„Við hvetjum alla þá sem selja íslenska hönnun og telja sig eiga erindi á þessa upplýsingasíðu að senda okkur línu á info@honnunarmidstod.is. Við hjá Miðstöð hönnunar og arkitektúrs hvetjum alla til að kíkja við á síðunni og kynna sér fjölbreytt úrval íslenskrar hönnunar.“


Tengdar fréttir

Handgerð flík úr íslenskri ull þolir vætu og kulda

Íslensk hönnun úr íslenskri ull er að vekja athygli út fyrir landsteinana. Sæunn Þórðardóttir og Vala Melstað sáu um að uppfæra útlitið á hinni klassísku gæruúlpu sem 66°Norður framleiddi á fimmta áratugnum. Nýja línan kallast Sölvóll.

Íslenskri hönnun varpað á skjái um allt höfuðborgarsvæðið

Í október fer í fyrsta sinn af stað einstakt átak sem ætlað er að vekja áhuga á íslenskri hönnun. 60 ólíkar hönnunarvörur, frá ferðavögnum yfir í flothettur og allt þar á milli, munu prýða ljósaskilti um allt höfuðborgarsvæðið þessa vikuna og sýna fjölbreytileika og fegurð íslenskrar hönnunar






Fleiri fréttir

Sjá meira


×