Tíska og hönnun

Handgerð flík úr íslenskri ull þolir vætu og kulda

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Baltasar Kormákur á tökustað klæddur í úlpuna.
Baltasar Kormákur á tökustað klæddur í úlpuna. Lilja Jónsdóttir

Íslensk hönnun úr íslenskri ull er að vekja athygli út fyrir landsteinana. Sæunn Þórðardóttir og Vala Melstað sáu um að uppfæra útlitið á hinni klassísku gæruúlpu sem 66°Norður framleiddi á fimmta áratugnum. Nýja línan kallast Sölvóll.

„Hér er dæmi um vöru sem er hringrás í verki þar sem hér er verið að vinna með sjálfbærni að leiðarljósi,“ segir Sæunn hönnuður um verkefnið. 

„Sölvóll samanstendur af hágæðaefni handgerðu á Íslandi og fáanlegt í takmörkuðu upplagi þar sem verið er að endurnýta efni frá sauðkindinni sem hefur þraukað í árþúsundir á Íslandi og þróað með sér sérstaka tegund af ull sem þolir vætu og kulda vel.“

Baltasar Kormákur hefur starfað með 66°Norður í gegnum árin og hefur meðal annars verið andlit fyrirtækisins.Lilja Jónsdóttir

Það má sannarlega segja að það séu órjúfanleg bönd á milli Íslendinga og sauðkindarinnar, meðal annars þar sem ullargæran var eini hlífðarfatnaður Íslendinga þar til nútímaefni litu dagsins ljós á 20. öldinni. 

„Stór þáttur í framleiðslu 66° Norður er að fullnýta allt hráefni sem endurspeglar þetta verkefni sem felst í því að nýta gæruna sem fellur til við sauðfjárræktun á sem bestan hátt. Allar gærur sem notaðar eru, eru aukaafurð úr mannúðlegri rækt lausagöngufjár á fjölskyldubýlum og skinnin eru sútuð samkvæmt ströngustu evrópsku stöðlum um vistvæna sútun,“ segir Sæunn.

 

„Þetta er tímalaus og sígild lúxusvara með eiginleika sem jafnast á við háþróaðan og tæknilegan útivistarfatnað. Á sama tíma hefur flíkin sterka skírskotun til menningar og sögu þjóðarinnar. Til að fullnýta allt hráefnið var einnig framleidd mittistaska og kerrupoki.“

Allt afgangsefni var nýtt í mittistöskur og kerrupoka fyrir ungbörn.

Í myndbandinu hér fyrir neðan má sjá framleiðsluferlið.

Klippa: Framleiða úlpur og töskur úr íslenskri ull

Tengdar fréttir

Íslenskri hönnun varpað á skjái um allt höfuðborgarsvæðið

Í október fer í fyrsta sinn af stað einstakt átak sem ætlað er að vekja áhuga á íslenskri hönnun. 60 ólíkar hönnunarvörur, frá ferðavögnum yfir í flothettur og allt þar á milli, munu prýða ljósaskilti um allt höfuðborgarsvæðið þessa vikuna og sýna fjölbreytileika og fegurð íslenskrar hönnunar

Þekkja öll vel baráttuna við þennan sjúkdóm

Stefán Svan Aðalheiðarson og Dúsa Ólafsdóttir hjá Stefánsbúð/p3 hönnuðu boli í samstafi við hönnuðinn og teiknarann Lindu Loeskow til styrktar Bleiku Slaufunni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×