Tíska og hönnun

Íslensk hönnun valin sú besta fyrir útihlaupin

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Straumnes jakkinn er mjög vinslæll á meðal hlaupara hér á landi og þykir henta veðráttunni vel.
Straumnes jakkinn er mjög vinslæll á meðal hlaupara hér á landi og þykir henta veðráttunni vel. 66°Norður

Jakkinn Straumnes frá 66°Norður var valinn besti útvistarjakkinn fyrir konur af dagblaðinu Independent. Jakkinn er skel og er bæði vatnsheld og andar vel.

Straumnes jakkinn var valinn besti hlaupajakkinn í umfjöllun Independent og fékk 10/10 í einkunn og var eini jakkinn sem komst á lista sem fékk fullt hús stiga. Jakkarnir voru allir prófaðir í rigningu og erfiðum hlaupaaðstæðum. Aðrir jakkar sem komust á lista Independant voru frá Lulumon, Columbia, New Balance, The North Face og fleiri merkjum. 

„Straumnes jakkinn er hannaður fyrir mikla hreyfingu. Hann hentar vel í hlaup, hjólreiðar og hraðar göngur. Jakkinn er úr GORE-TEX-INFINIUM sem andar einstaklega vel en er vindhelt. Efnið teygist mjög vel og er mjúkt og þægilegt að vera í. Tveir vasar á hliðum og endurskinsrenndur á ermum. Jakkinn er fáanlegur bæði í kvenna- og karlasniði,“ segir um jakkann á vef 66°Norður. 

66°Norður

Í umfjöllun Independent er Straumnes jakkinn valinn besti alhliða hlaupajakkinn. Í umsögn þeirra segir meðal annars að jakkinn sé sannarlega hannaður til þess að takast á við rok og rigningu. 

„Íslenskir hlauparar þekkja einstaklega vel kaldar aðstæður.“

Íslensk hönnun er svo sannarlega að gera góða hluti í Bretlandi þessa dagana. Eins og kom fram hér á Lífinu um helgina sló hönnun Hildar Yeoman í gegn á tískuvikunni í London.


Tengdar fréttir

Hönnun Hildar Yeoman vakti athygli á tískuvikunni í London

Söngkonan Kehlani vakti athygli í hönnun Hildar Yeoman í opnunarhófi tískuvikunnar í Bretlandi, London Fashion Week. Fjölmiðlar hafa fjallað um fataval Bandarísku stjörnunnar þetta kvöld og birtust meðal annars myndir af henni í settinu á vef Vogue.

Rækta yndisskóg við Úlfljótsvatn

66°Norður hefur gert samning við Skógræktarfélag Íslands um afnot af landi við Úlfljótsvatn til næstu fjörutíu ára til að byggja upp Yndisskóg 66°Norður. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×