Óskar Hrafn sannfærður um að Venesúelamaðurinn hitti í mark Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 20. nóvember 2021 10:31 Juan Camilo Pérez leikur í grænu næstu tvö árin. breiðablik Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari Breiðabliks, bindur miklar vonir við nýjasta leikmann liðsins, Juan Camilo Pérez frá Venesúela.
Í gær var greint frá því að Pérez, sem er 22 ára, væri búinn að skrifa undir tveggja ára samning við Breiðablik. Hann kemur til Íslands fljótlega eftir áramótin. | Exclusive Interview: Juan Camilo|We spoke to Venezuelan-Colombian midfield creator Juan Camilo Perez about: His best ever teammate Career ambitions His favourite food And much, much more!The 22yo will sign for @BreidablikFC in January 2022. #futve pic.twitter.com/ahyAoT15Nr— FUTVE English (@FUTVEEnglish) November 19, 2021 „Þetta er leikmaður sem við erum búnir að fylgjast með í nokkurn tíma og býr yfir eiginleikum sem nýtast okkur,“ sagði Óskar í samtali við Vísi. „Hann er leikinn, góður pressumaður, duglegur, hlédrægur, jarðbundinn, ungur fjölskyldumaður. Hann hakar í rosalega mörg box. Hann er örvfættur og gefur okkur nýja vídd í sóknarleiknum.“ En hvernig datt Pérez inn á radarinn hjá Blikum? „Ég þekki góða menn sem fylgjast vel með. Svo leiðir eitt af öðru. Þetta er bara þannig. Svo snýst þetta um að finna hverjir passa inn. Við vorum að leita að svona leikmanni,“ sagði Óskar. „Ég hef séð fjölmarga leiki með honum og við vitum hvað við erum fá.“ Óskar Hrafn Þorvaldsson hefur þjálfað Breiðablik í tvö ár.vísir/vilhelm Í gegnum tíðina hafa íslensk lið ekki leitað mikið á suður-amerísk mið og leikmennirnir sem hafa komið þaðan hafa fæstir slegið í gegn hér á landi. Óskar hefur ekki áhyggjur af því með Pérez. „Ég er sannfærður um að hann hitti í mark. Það er líka á ábyrgð okkar þjálfaranna, liðsfélaganna og félagsins að búa þessum strákum sem koma í nýtt umhverfi samastað og láta þeim líða vel. Menn hafa verið misjafnlega góðir í því í gegnum tíðina,“ sagði Óskar. Hann segir að Blikar séu alltaf að horfa í kringum sig eftir leikmönnum sem geti styrkt liðið. „Við erum að skoða okkar mál og ég hef áður sagt að leikmannahópurinn er hreyfanlegt afl. Við reynum að styrkja hann með réttum leikmönnum eða réttum karakterum. Hlutirnir geta tekið stuttan tíma og langan tíma. Það er alltaf eitthvað í gangi en ekkert sem hægt er að greina frá á þessari stundu,“ sagði Óskar. Óvíst er hvort Árni Vilhjálmsson leikur með Breiðabliki á næsta tímabili. Hann er nýbakaður faðir en kærasta hans, landsliðsfyrirliðinn Sara Björk Gunnarsdóttir, eignaðist sitt fyrsta barn á þriðjudaginn. „Þau eru bara í bríma fæðingarinnar og nýbúin að fá drenginn í hendurnar. Maður gefur þeim þann tíma sem þau þurfa,“ sagði Óskar. „Árni er leikmaður Breiðabliks í dag en hvað gerist þegar þau fara að huga að næstu skrefum verður bara að koma í ljós. Það hefur ekkert verið rætt í þaula. Sama hver ákvörðunin verður skilja allir ástæðurnar sem liggja að baki því ef hann þarf að fara og vera með konu og barni. Árni var frábær fyrir okkur í sumar og við munum sakna hans gríðarlega mikið ef við missum hann.“ Árni skoraði ellefu mörk í 21 deildarleik á síðasta tímabili og var næstmarkahæstur í Pepsi Max-deildinni. Þá skoraði hann þrjú mörk í Sambandsdeild Evrópu.
Pepsi Max-deild karla Breiðablik Mest lesið Sakna Orra enn sárt og vandræðin aukast Fótbolti Fimmtugur og fúlskeggjaður Svíi stal senunni á HM Sport Körfuboltakvöld: Tilþrif tímabilsins til þessa Körfubolti Spara margar milljónir vegna ráðningar Rúnars Handbolti Salah snýr aftur eftir sáttafundinn Enski boltinn „Held að ég gæti ekki hætt í fótbolta“ Enski boltinn Brasilíumenn byrja vel undir stjórn Menezes - myndband Fótbolti Álftanes - Tindastóll 78-137 | Metin slegin í stórsigri Stólanna Körfubolti Algjörir yfirburðir Noregs halda áfram Handbolti Dagskráin í dag: Salah, Doc Zone og auðveld bráð Arsenal Sport Fleiri fréttir Axel verður áfram hjá Aftureldingu Kveður pabba sinn í Laugardalnum og fer til FH „Félag sem var í basli með að ná endum saman og greiða laun á réttum tíma“ Skrýtið og taktlaust: „Ég er ekkert sátt með niðurstöðuna“ Fanndís kveður sviðið: „Ég er búin að fella nokkur tár“ Gylfi með tvö og Víkingar byrja á sigri Frá Akureyri til Danmerkur Markadrottningin heldur að landsliðið sé búið spil Strákarnir í 2. flokki Vals þeir einu sem ekki spila fyrir áramót Dæturnar vildu norður: „Mun alltaf gera allt fyrir þær“ Stjarnan sækir markvörð í 3. deildina „Ég var orðinn algjörlega bugaður“ Jónatan áfram á Hlíðarenda: „Var alltaf jákvæður fyrir því að framlengja“ Óli Jó kallar ráðninguna á Jóa Kalla algjört bull „Ég elska þig Ísland, takk fyrir allt!“ Sextán ára með fernu fyrir meistara Víkings Valur dregur sig úr Bose-bikarnum „Sagði bara við hann: Djöfulsins fíflið þitt“ Yngir upp í allt of gamalli deild Þróttur keypti Adam Árna frá Grindavík Ástæðan fyrir því að Þorlákur hætti: „Ég var ekki hrifinn af þessu“ Þorlákur sagði upp störfum hjá ÍBV Þrjár ungar KR-konur leggja skóna á hilluna Murielle elti Óskar í Garðabæinn Segir dökk ský yfir íslensku knattspyrnuhreyfingunni Rúnar sækir gamlan félaga sinn inn í þjálfarateymið Fór frá því að mæta á landsliðsæfingu í það að vera fárveikur í öndunarvél Jasmín kom til að vinna titla og er farin frá Val Framlengir við Breiðablik og nálgast fimm hundruð leikina KSÍ skiptir um mótakerfi og smíðar nýjan vef Sjá meira