Bíó og sjónvarp

Sýnishorn úr kvikmyndinni Skjálfta frumsýnt

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Aníta Briem fer með aðalhlutverkið í kvikmyndinni Skjálfti.
Aníta Briem fer með aðalhlutverkið í kvikmyndinni Skjálfti. Skjáskot/Skjálfti

Í dag er frumsýnt fyrsta sýnishornið í fullri lengd úr íslensku kvikmyndinni Skjálfta, sem erlendis verður kynnt undir nafninu Quake. Myndin verður heimsfrumsýnd síðar í mánuðinum en fer í sýningu hér á landi í janúar.

Eins og komið hefur fram hér á Vísi er þetta fyrsta kvikmynd Tinnu Hrafnsdóttur en hún skrifar bæði handrit og leikstýrir myndinni. Hún tilkynnti í dag að myndin verður heimsfrumsýnd á PÖFF - Tallinn Black Nights Film Festival þann 20. nóvember, þar sem hún var valin til sýningar. 

„Þetta er nefnilega alveg frábært þar sem samkeppnin er mikil í ár út af covid takmörkunum, færri myndir eru valdar inn á hverja hátíð,“ segir Tinna í samtali við Vísi. 

Sölufyrirtækið Alief hefur nú gengið til liðs við kynningarteymi kvikmyndarinnar og mun sjá um sölu á henni erlendis.  Framleiðandi myndarinnar er Hlín Jóhannesdóttir og með aðalhlutverk fara Aníta Briem, Edda Björgvinsdóttir og Jóhann Sigurðsson.

Sýnishornið má sjá í spilaranum hér fyrir neðan

Klippa: Skjálfti - Sýnishorn í fullri lengd

Skjálfti er byggð á skáldsögunni Stóra skjálfta eftir Auði Jónsdóttur. Skrifað var undir viljayfirlýsingu um gerð kvikmyndar upp úr metsölubókinni sumarið 2016. Það fagna því margir að nú sé þetta orðið að veruleika. Myndin fer í almenna sýningu á Íslandi snemma á næsta ári.

„Þegar Saga vaknar upp eftir heiftarlegt flogakast á Klambratúni man hún lítið sem ekkert hvað gerðist í aðdraganda þess. Í leit hennar að upplýsingum um sjálfa sig og sína nánustu fara minningar sem Saga bældi niður sem barn að koma upp á yfirborðið, minningar sem neyða hana til að horfast í augu við sjálfa sig og fjölskyldu sína sem tekist hafði að þegja ógnvænlegt leyndarmál í hel,“ segir um söguþráðinn.


Tengdar fréttir

Kvikmyndin Skjálfti valin til sýningar á TIFF

Tilkynnt hefur verið hvaða myndir verða sýndar á Toronto International Film Festival í ár og mun Ísland eiga sinn fulltrúa á hátíðinni. Mynd Tinnu Hrafnsdóttur, Skjálfti, tekur þátt í TIFF Industry Selects hluta hátíðarinnar í ár.

Fyrsta sýnishornið úr kvikmyndinni Skjálfti

Í dag var frumsýnt fyrsta sýnishornið úr íslensku kvikmyndinni Skjálfti. Með aðalhlutverk fara Aníta Briem, Edda Björgvinsdóttir og Jóhann Sigurðsson.

Stóri skjálfti verður að kvikmynd

„Þetta er gríðarlega sterk og áhrifamikil saga og margt við efnistök höfundar sem er mjög spennandi fyrir kvikmyndamiðilinn.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×