West Ham tapaði sínum fyrstu stigum

West Ham tapaði sínum fyrstu stigum í kvöld.
West Ham tapaði sínum fyrstu stigum í kvöld. Rico Brouwer/Soccrates/Getty Images

Enska knattspyrnufélagið West Ham tapaði sínum fyrstu stigum í Evrópudeildinni í fótbolta er liðið heimsótti Genk í kvöld. Lokatölur 2-2, en þetta voru fyrstu mörkin sem Lundúnaliðið fær á sig í keppninni.

Joseph Paintsil kom heimamönnum í Genk yfir strax á fimmtu mínútu eftir stoðsendingu frá Junya Ito, en þetta var fyrsta markið sem West Ham fær á sig í riðlakeppninni.

Þetta reyndist eina mark fyrri hálfleiks og staðan því 1-0 þegar gengið var til búningsherbergja.

Said Benrahma jafnaði metin fyrir gestina eftir tæplega klukkutíma leik, og hann var aftur á ferðinni á 82. mínútu þegar hann breytti stöðunni í 2-1.

Heimamenn fengu svo hjálp úr óvæntri átt á 88. mínútu þegar varamaðurinn Tomas Soucek varð fyrir því óláni að skora sjálfsmark. 

Niðurstaðan varð því 2-2 jafntefli, en West Ham er enn í góðum málum á toppi H-riðils með tíu stig eftir fjóra leiki, sex stigum meira en Genk sem situr í öðru sæti.



Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira