Tíska og hönnun

MAGNEA - Made in Reykja­vík til­nefnt til Hönnunar­verð­launa Ís­lands 2021

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Made in Reykjavík fatalína Magneu Einarsdóttur fatahönnuðar hlýtur tilnefningu til Hönnunarverðlauna Íslands í ár.
Made in Reykjavík fatalína Magneu Einarsdóttur fatahönnuðar hlýtur tilnefningu til Hönnunarverðlauna Íslands í ár. Magnea

Fatalína fatahönnuðarins Magneu Einarsdóttur, Made in Reykjavík hlýtur tilnefningu til Hönnunarverðlauna Íslands 2021. Næstu daga munum við svipta hulunni af tilnefningum ársins 2021 hér á Vísi. 

Verðlaunaafhendingin  og málþing því tengt mun fara fram í Grósku þann 29. október næstkomandi.

Í umsögn dómnefndar segir:

„MAGNEA - made in reykjavík er fatalína eftir Magneu Einarsdóttur fatahönnuð. Um er að ræða vandaðar yfirhafnir hannaðar með tímalausum sniðum og framleiddar úr 100% íslenskri ull. Magnea hefur undanfarin ár vakið verðskuldaða athygli fyrir frumlega nálgun sína við prjón og efnismeðferð á íslenskri ull sem hún hefur þróað.

Fágað litaval og listræn framsetning undirstrika nýstárlega möguleika íslensku ullarinnar sem spennandi efnis í fatnað fyrir nútímafólk. Í framleiðsluferli Made in Reykjavík er lögð áhersla á atriði sem stuðla að aukinni sjálfbærni í tískuiðnaði – eins og rekjanleika, gagnsæi og staðbundna framleiðslu. Útkoman er einstaklega vel heppnuð, fáguð, nútímaleg og jafnframt tímalaus hönnun úr íslensku hráefni.“

Blóð Stúdíó framleiddi og leikstýrði myndbandi um öll verkefnin sem tilnefnd eru í ár og birtast þau hér á Vísi næstu daga. 

Klippa: Tilnefningar til Hönnunarverðlauna Íslands 2021: MAGNEA - made in Reykjavík

Made in Reykjavík

Made in Reykjavík er undirlína fatamerksins MAGNEA og samanstendur af yfirhöfnum úr íslenskri ull. Fatamerkið MAGNEA býður upp á fjölbreytt úrval prjónavöru úr náttúrulegum hráefnum. Yfirhafnir úr íslenskri ull eru hluti vöruúrvalsins og kynntar sérstaklega undir heitinu made in reykjavík sem vekur um leið athygli á uppruna vörunnar sem framleidd er í Reykjavík. Með verkefninu vill hönnuður stuðla að auknum rekjanleika og gegnsæi en þau atriði eru talin aflgjafi aukinnar sjálfbærni í tískuiðnaði. Það sem er einstakt við virðiskeðju verkefnisins er að allt ferli vörunnar gerist innan höfuðborgarsvæðisins. Sérstaða vörunnar er sú að hugvitið, hráefnið og framleiðslan er öll unnin á sama stað sem gefur gæðastimpil og minnkar kolefnisspor. Samhliða þróun vörumerkisins hefur sérhæfing hönnuðarins í prjóni nýst til að kanna framleiðslumöguleika og nýta hráefni hér á landi í hágæða tískuvöru.

Um hönnuðinn

Magnea Einarsdóttir er útskrifaður fatahönnuður með áherslu á prjón frá Central St Martins í London. Einnig lagði hún stund á nám í fatahönnun í Parsons Paris School of Design.

Í hönnun sinni leggur Magnea áherslu á nýstárleg efni, prjón og fleira. Fatalínur hönnuðarins eru byggðar á hugmyndafræði hennar um ferska og sjálfbæra nálgun á prjón og íslenska ull. Með áherslu á tilraunir og handverk, litasamsetningar og smáatriði skapar hönnuðurinn og þróar ný efni fyrir hverja línu og útfærir vandlega í einföld form og nútímalega hönnun fyrir konur á öllum aldri. MAGNEA er “slow fashion" tískumerki sem var stofnað árið 2015.

Magnea er einn eigenda íslensku hönnunarverslunarinnar Kiosk við Grandagarð 35 þar sem línan er fáanleg til sölu.

Magnea Einarsdóttir fatahönnuður.Magnea

Um verðlaunin

Hönnunarverðlaun Íslands varpa ljósi á mikilvægi og gæðum íslenskrar hönnunar og arkitektúrs, enda er vægi hönnunar í menningu, samfélagi og viðskiptalífi alltaf að aukast.

Hönnunarverðlaun Íslands beina sjónum að því besta sem gert er á sviði hönnunar og arkitektúrs á Íslandi um leið og einstaka hönnuðum eða hópum hönnuða er veitt mikilvæg viðurkenning.

Á afhendingunni verða veitt Hönnunarverðlaun Íslands, Heiðursverðlaun Hönnunarverðlauna Íslands og viðurkenning fyrir bestu fjárfestingu í hönnun ársins 2021.

Næstu daga verður hulunni svipt af tilnefningum ársins en afhending Hönnunarverðlauna Íslands 2021 fer fram þann 29. október í Grósku ásamt málþingi tengt verðlaunum. Nánari upplýsingar síðar en takið daginn frá.

Það er Miðstöð hönnunar og arkitektúrs sem stendur að verðlaununum, í samstarfi við Hönnunarsafn Íslands , Listaháskóla Íslands , Íslandsstofu , Landsvirkjun og Samtök iðnaðarins .


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×