Skipuleggja femíníska kvikmyndahátíð í Reykjavík Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar 7. september 2021 10:01 Sólrún Freyja Sen, einn skipuleggjenda hátíðarinnar RVK Feminist Film Festival. Aðsent RVK Feminist Film Festival (RVK FFF) verður haldin í þriðja sinn 13.-16. janúar 2022. Opið er nú fyrir umsóknir í stuttmyndakeppnina Sister awards og einnig verður í ár keppni fyrir nemendur í grunn- og framhaldsskólum.
Sýndar verða myndir eftir kvenkyns leikstjóra en sérstök áhersla verður lögð á hinsegin málefni, kvikmyndagerðarkonur af öðrum kynþætti en hvítum, „visual effect makeup“, kvikmyndatónlist eftir konur, nýja Metoo byltingu á Íslandi og kynbundið ofbeldi í nánum samböndum. „Þökk sé Reykjavíkurborg, Sendinefnd ESB á Íslandi, Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, Kvikmyndamiðstöð, Franska sendiráðinu, Trans Ísland, Reykjavík Icelandair Marina Hótel, Kvikmyndasafni Íslands, Norræna Húsinu og Allianz Francais á Íslandi getum við haldið RVK FFF 2022. Hátíðin er í lifandi mótun og mjög margt sem á eftir að koma á óvart þegar nær dregur. Frá upphafi hefur hátíðin vakið mikla lukku meðal kvikmyndaunnenda á Íslandi og hvaðanæva úr heiminum. Myndir á hátíðina hafa komið frá öllum heimsálfum og sýnt fjölbreytileika alþjóðasamfélagsins,“ segir í tilkynningu um hátíðina. Frá RVK FFF hátíðinni á þessu ári.RVK FFF „Okkur finnst mikilvægt að sýna myndir frá mismunandi menningarheimum og að gefa áhorfendum tækifæri á að rýna í þá frá sjónarhóli kvenna,“ segir Sólrún Freyja Sen, einn skipuleggjenda hátíðarinnar. „Þó allar konur deila svipuðum reynsluheim vegna kyns síns, eru konur allskonar fólk með allskonar upplifanir og við viljum sýna það.“ Opið fyrir umsóknir Eins og áður verða veitt verðlaun á hátíðinni í stuttmyndakeppninni ,,SYSTIR”. Öll sem skilgreina sig sem konur eða kynsegin er velkomið að senda inn mynd í keppnina. Keppt verður um bestu tilraunakenndu myndina, bestu heimildarmyndina, bestu fiction myndina og bestu animation myndina. Opnað verður fyrir umsóknir 9. September inni á Filmfreeway. Hægt verður að senda inn stuttmyndir til 24 des. Eftir það mun dómnefnd skipuð reynsluboltum úr kvikmyndabransanum velja úr myndum. „Við erum komin á skrið og byrjuð að undirbúa hátíðina á fullu. Við verðum með allskonar skemmtilega viðburði, í samstarfi við stuðningsaðila héðan og þaðan.“ Í samstarfi við Allianz Francais á Íslandi mun RVK Feminist Film Festival standa fyrir keppni grunnskóla og framhaldsskólanema að franskri fyrirmynd sem hefst 20. september. Keppnin heitir Zero Cliche en hugmyndin er fengin að láni frá stofnun að nafni Clemi en hún sinnir fræðslu á hvers kyns miðlun og fjölmiðlalæsi innan franska skólakerfisins. Nemendurnir fá fræðslu um birtingarmyndir staðalímynda kynja í fjölmiðlum, þeir fá síðan frjálsar hendur við að skapa verkefni sem ögrar þessum staðalímyndum eða gagnrýnir þær. Frá RVK FFF á þessu ári. Hátíðin verður næst haldin í janúar.RVK FFF Staðalímyndir kynja „Nemendur mega velja að gera allskonar. Innsendingarnar geta verið hlaðvarpsþáttur, lag eða fréttagrein til dæmis. Svo lengi sem nemendur velja sér ákveðinn fjölmiðil til að vinna sitt verkefni.“ Einu fyrirmælin eru að innsendingarnar sýni óhefðbundna birtingarmynd kyns og kynvitundar. Veitt verða fyrstu verðlaun í hverjum aldursflokki og svo fá sigurverkin að njóta sín á viðburði á vegum RVK Feminist Film Festival og heimasíðu hátíðarinnar. Tilgangur keppninnar er að fá nemendur til að hugsa gagnrýnið um hvernig staðalímyndir kynja birtast okkur í fjölmiðlum. „Það má í raun segja að hátíðin sjálf þjóni svipuðum tilgangi, allavega að hluta til. Konur túlka kynin í kvikmyndum á annan hátt en karlar gera. Kvenhlutverk og karlhlutverk eru oft sýnd í allt öðru ljósi en við erum vön að sjá í myndum eftir karla. Það sama má segja ef við horfum á mynd eftir svarta konu, þá fáum við innsýn inn í allt annan reynsluheim kynþátta, eða ef við horfum á mynd eftir hinsegin manneskju. Þess vegna græða allir á því að styðja við konur og minnihlutahópa í kvikmyndagerð. Fleiri kvikmyndagerðarkonur fá að uppfylla sína drauma og áhorfendur fá tækifæri á að sjá önnur sjónarhorn en sjónarhorn hvítra, gagnkynhneigðra karla.“
Bíó og sjónvarp Hinsegin Mest lesið Leitin á Svínafellsjökli sem hefur enn ekki skilað árangri Lífið Eru þetta ljótustu og fallegustu nýbyggingar ársins? Menning „Sat í átta klukkutíma á dag og horfði út um gluggann“ Menning Bestu, stærstu, slökustu og verstu myndir ársins 2025 Bíó og sjónvarp Bandalag listamanna lýsir yfir stuðningi við Dóru Menning Frægir fundu ástina 2025 Lífið „Ég heyrði þá kalla á mig en gat engu svarað“ Lífið „Það jafnar sig enginn eftir svona og við munum aldrei gera það“ Lífið Best klæddu Íslendingarnir 2025 Tíska og hönnun Krakkatía vikunnar: Ísskápastríð, Eivör og Grafarvogur Lífið Fleiri fréttir Eru þetta ljótustu og fallegustu nýbyggingar ársins? „Sat í átta klukkutíma á dag og horfði út um gluggann“ Bandalag listamanna lýsir yfir stuðningi við Dóru Flýta jólasýningunni um klukkutíma vegna lengdar Vangreiðslugjald orð ársins 2025 Fólk eigi ekki að vera hrætt við að skilja ekki „Ef einhver telur að ég hljóti að vera sjúkur, þá verður að hafa það“ Konungur bóksölunnar á í vök að verjast Að gluða tómatsósu yfir sushi-ið Auður segir skilið við Gímaldið Ráðherra tekur sjálfur viðtöl Hvert er mest óþolandi orð íslenskunnar? Heigulsleg ákvörðun Rúv, hörundsárir listamenn og versta bók flóðsins Sigurður Sævar fyllti Landsbankahúsið „Versta hljómsveit Íslandssögunnar“ segir rappara vera með sig á heilanum Kanónur í jólakósí „Djúp menning sem hefur átt sér stað og enginn telur sig ábyrgan“ Brjálað að gera á „Brjálað að gera“ Vilja minnka allt þetta neikvæða suð Munur er á manviti og mannviti Vatn og brauð íslenskra fanga: Hvað elda menn í íslenskum fangelsum? Gefur út bók um reynsluna af því að vera útilokuð Einn heitasti listamaður landsins heldur þræði Sýnilegri í senunni á meðgöngunni Það skrítnasta á djamminu: Amfetamín inni á klósetti og fólk að ríða Þetta er fólkið sem fær listamannalaun 2026 Björk og James Merry opna sýningar á Listahátíð í Reykjavík Bjó hjá Trumpara í búddistabæ í Kaliforníu Lyktarlítill dans, Lux og „metnaðarlaus stefna í íslensku“ Skilaði Kommúnistaávarpinu hálfri öld of seint en sleppur við sekt Sjá meira