Lífið

Stjörnulífið: Brúðkaup, afmæli og Íslandsheimsóknir

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Stjörnulífið er liður á Vísi en þar verður farið yfir það helsta sem þekktir Íslendingar hafa verið að gera undanfarna daga og jafnvel deila því með fylgjendum sínum á samfélagsmiðlum.
Stjörnulífið er liður á Vísi en þar verður farið yfir það helsta sem þekktir Íslendingar hafa verið að gera undanfarna daga og jafnvel deila því með fylgjendum sínum á samfélagsmiðlum. Samsett/Instagram

Íslendingar eru byrjaðir að halda upp á stóra viðburði aftur og svo eru einhverjir byrjaðir að ferðast meira, bæði erlendis og innanlands. 

Söngkonan Margrét Eir og maðurinn hennar, Jökull Jörgensen, gengu í það heilaga um helgina.

Eins og gefur að skilja þá kom söngur mikið við sögu í fallegri athöfninni en veislan fór fram í sal FÍH í Rauðagerði. 

Friðrik Ómar var veislustjóri í brúðkaupi Margrétar, klæddi sig upp í drag sem Hafdís Alda og dansaði á línunni í gríninu eins og honum einum er lagið.

Guðrún Gunnars og Hannes Friðbjörns skemmtu sér konungega í brúðkaupi Jökuls og Margrétar Eirar. Hannes mætti í skotapilsi og Guðrún flutti fallega ræðu í veislunni.

Útvarpsmaðurinn Egill Ploder hélt upp á 27 ára afmælið sitt um helgina.

Hjónin Jón og Hafdís fóru á Fimmvörðuháls ásamt góðum vinum.

Sunneva Einars, Birgitta Líf og Kristín Péturs náðu smá slökun um helgina. 

Nathalia Soliani, fyrrverandi kærasta Rúriks Gíslasonar, nýtur lífsins í Mexíkó þar sem hún hefur skorað pýramída og virðist njóta lífsins. Hún sakaði Rúrik á dögunum um framhjáhald og virðist ástin hafa kulnað hratt hjá parinu sem hefur verið í fjarbúð meðan Rúrik tók þátt í Lets Dance í Þýskalandi. Nathalia hefur fjarlægt allar myndir af knattspyrnukappanum af Instagram-síðu sinni.

Rúrik sjálfur telur niður í að samkomutakmörkunum ljúki og er spenntur að knúsa og sýna ást.

Annie Mist og Katrín Tanja undirbúa sig fyrir heimsleikana í Crossfit og hafa nú tryggt sér farseðil á mótið. Þær hafa sett sér markmið og stefna þangað mjög einbeittar.  Anníe Mist tryggði sér sæti á heimsleikunum í gær aðeins tíu mánuðum eftir að hún eignaðist dóttur sína Freyju Mist.

Björgvin Páll og Þuríður Erla tryggðu sér einnig pláss á heimsleikunum.

Erna Kristín hélt upp á þrítugsafmæli og útskrift. Hún var að ljúka diplómu í sálgæslu á meistarastigi.

Unnur Eggers fer aftur til Bandaríkjanna þar sem kærastinn er búsettur. Leikkonan kom heim í Covid en hefur haft í nógu að snúast á meðan dvölinni stóð.

Auðunn Blöndal hefur í nógu að snúast með tvö lítil börn.

Unnur Ösp Stefánsdóttir leikkona og leikstjóri er enn í skýjunum með gott gengi á Grímunni í síðustu viku ef marka má hennar samfélagsmiðla. Sýningin Vertu úlfur í hennar leikstjórn sópaði til sín verðlaunum. Unnur var valin leikstjóri ársins og Björn Thors fékk verðlaun fyrir leik í aðalhlutverki. 

Bríet átti góða helgi. Tónlistarkonan kom meðal annars fram á Sjáland í Garðabænum. 

Andrea Röfn og Arnór Ingvi eru sameinuð á ný í Boston, þar sem þau ætla að búa ásamt dóttur sinni. 

Söngkonan, leikstjórinn, veislustjórinn og athafnastjórnandinn Selma Björns fagnaði 47 ára afmæli sínu um helgina. Kveðjum rigndi yfir Selmu, meðal annars frá Gísla Erni Garðarssyni leikara sem birti eina gamla og góða af Selmu í Beverly Hills. „Hvar áttu heima annars staðar“ skrifaði Gísli við myndina.

Landsliðsfyrirliðinn Sara Björk Gunnarsdóttir fylgist með landsliðsstelpunum úr fjarlægð en Ísland vann Írland 3-2 á laugardag og mætir þeim írsku aftur í æfingaleik annað kvöld. Sara Björk er ólétt og er farin að fá langanir.

„Getting those cravings,“ segir Sara Björk.

Þjálfarinn Sara Snædís er í sóttkví á Íslandi og telur niður dagana þangað til hún getur hitt fjölskyldu og vini á Íslandi.

Dansarinn Ástrós er á ferðalagi í Frakklandi og deilir myndum og myndböndum úr ferðinni á Instagram.

Edda Björg Eyjólfsdóttir leikkona er svo glöð, hamingjusöm og full þakklætis fyrir verðlaun sín sem besta leikkona í aðalhlutverki á Grímunni í ár fyrir leik sinn í Haukur og Lilja - Opnun. 

„Það er gott að vera séður, heyrður og viðurkenndur. Ég er líka svo stolt af sýningunni okkar, Haukur og Lilja - Opnun sem hlaut sex tilnefningar, til hamingju elsku Elísabet, Svenni, María Reyndal, María Ólafs, Davíð, Ólafur Ágúst, Posi,Doddi, elsku Stebbi minn, Heiða og Ásmundarsalur og allir sem að sýningunni komu. Það er merkilegt hvernig lífið er, en þessi sýning var eiginlega á vergangi allt leikárið, fékk hvergi inni, beisikklí enginn staður til að sýna. Einhver heillastjarna skein samt alltaf yfir þessu öllu og við komumst að í Ásmundarsal. Það er lærdómur í öllu, jafnvel erfiðustu, ómögulegustu eða sárustu aðstæðum og maður má ekki gleyma að hlutirnir hafa tilhneigingu til að fara á besta veg ef maður bara treystir, elskar, gefst ekki upp, þakkar fyrir það góða og með æðruleysi lítur á björtu hliðarnar. Ást og hlýja yfir til ykkar allra elsku vinir í lífi og listum. Þið eruð algjört æði og ég elska ykkur. Og svo bara mantran hans Birtings ..

Allt er gott

Allt gengur vel

Allt miðar til hins besta“

Handboltakappinn Aron Pálmarsson varð Evrópumeistari í enn eitt skiptið með liði sínu Barcelona. Leikið var í Köln en Barcelona lauk ótrúlegu sextíu leikja tímabili með sigri í sextugasta leiknum. Aron söðlar nú um og gengur í raðir Álaborgar fyrir næstu leiktíð.

Birgitta Haukdal birti þessa rándýru dívumynd.

Svala Björgvins kíkti út á Lífið.

Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra hafði nokkra yfirburði í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Kraganum. Bjarni leiðir lista flokksins í kjördæminu í kosningunum í haust.

Pattra nýtur lífsins á Íslandi með fjölskyldunni í augnablikinu.

Söngkonan Jóhanna Guðrún birti af sér fallega sjálfsmynd. 

Skemmtanalíf landans virðist svo sannarlega á uppleið. Moses Hightower tróð upp á Græna hattinum um helgina þar sem stemmningin virðist hafa verið virkilega góð. Dísa Jakobs söngkona birti skemmtilega mynd þar sem fjölmörgu tónlistarfólki í góðum gír bregður fyrir. „Beljur að vori,“ segir Dísa með myndinni.

Fjölmiðlakonan Þórdís Valsdóttir var sumarleg þegar hún fór út að hitta samstarfsfólk sitt á Bylgjunni. 

Eva Ruza birti fallega fjölskyldumynd. Hún rifjaði upp eftirminnileg ferðalög á Instagram í gær sagðist meðal annars sakna þess að versla í Primark. 

Dagur B. Eggertsson opnaði listasýninguna Iðavelli í Listasafni Reykjavíkur um helgina, og mælir virkilega með. Þar sýna fjórtán myndlistamenn verk sín.

„Gaman að finna einlæga gleði og stemmningu og hitta fullt af fólki!“

Ferðabloggarinn og ljósmyndarinn Ása Steinars er umkringd lúpínum á Stokksnesi.

Bubbi Morthens undirbýr tónleika.

Binni Glee, Patrekur Jamie og Bassi Maraj tóku að sér verkefni fyrir Reykjavíkurborg. 

Myndbandið má sjá í spilaranum hér fyrir neðan. Um leikstjórn sá Jóhann Kristófer Stefánsson en Edda Kristín Óttarsdóttir sá um kvikmyndatöku.

Fótboltamaðurinn Andri Lúkas Gudjohnsen, sonur Eiðs Smára, sneri aftur á völlinn með Real Madrid eftir tíu mánaða fjarveru frá keppni vegna meiðsla.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×