Fótbolti

Sigling á Vålerenga og mikilvægur sigur Guðrúnar

Anton Ingi Leifsson skrifar
Ingibjörg Sigurðardóttir fagnar marki í leik með Vålerenga.
Ingibjörg Sigurðardóttir fagnar marki í leik með Vålerenga. mynd/vålerenga

Ingibjörg Sigurðardóttir og stöllur hennar eru með fullt hús stiga í norska boltanum eftir 2-1 sigur á Kolbotn á útivelli.

Vålerenga er með níu stig eftir fyrstu þrjá leikina en þær lentu undir í fyrri hálfleik.

Gestirnir jöfnuðu metin úr vítspyrnu á 61. mínútu og skoruðu sigurmarkið fjórum mínútum síðar. Lokatölur 2-1.

Guðbjörg Gunnarsdóttir sat allan tímann á bekknum er Arna Björnar tapaði 0-2 fyrir Rosenborg á heimavelli.

Guðrún Arnardóttir spilaði allan leikinn fyrir Djurgården sem vann 1-0 sigur á Eskilstuna á heimavelli.

Þetta var einungis annar sigur Djurgården í fyrstu átta leikjunum og er liðið í 11. sæti af tólf mögulegum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×