Emery hrellti gömlu lærisveinana

Anton Ingi Leifsson skrifar
Ceballos fær sitt annað gula spjald og þar með rautt í kvöld.
Ceballos fær sitt annað gula spjald og þar með rautt í kvöld. Isabel Infantes/Getty

Unai Emery náði höggi á sinn fyrrum vinnuveitanda, Arsenal, er hann stýrði Villarreal til 2-1 sigurs gegn Lundúnarliðinu í fyrri undanúrslitaleik Evrópudeildarinnar.

Eftir einungis fimm mínútna leik voru heimamenn í Villarreal komnir yfir með marki Manuel Trigueros en Arsenal tapaði um helgina fyrir Everton.

Varnarmaðurinn Raul Albiol tvöfaldaði forystu Villarreal eftir hálftíma leik og útlitið ekki gott fyrir gestina.

Þeir héldu þó að þeir væru að fá vítaspyrnu skömmu síðar en eftir skoðun VARsjánnar kom í ljós að boltinn fór í hönd Nicolas Pepe í aðdragandanum og staðan því 2-0 í hálfleik.

Daniel Ceballos lét henda sér í sturtu á 57. mínútu er hann fékk sitt annað gula spjald en þrátt fyrir það minnkaði Arsenal muninn úr vítaspyrnu á 73. mínútu með marki Pepe.

Etienne Capoue vildi ekki vera minni maður en Ceballos og fékk tvö gul spjöld á tólf mínútna kafla og lét henda sér í sturtu. Liðin voru því jöfn síðustu tíu mínúturnar en lokatölur 2-1.

Síðari leikur liðanna fer fram á Emirates í næstu viku.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira