Bíó og sjónvarp

Tökur hafnar á House of the Dragon

Samúel Karl Ólason skrifar
MicrosoftTeams-image (1)
HBO

Tökur eru hafnar á þáttunum House of the Dragon, sem er úr smiðjum HBO og byggja á bókum George RR Martin, A Song of Ice and Fire og öðrum. Það eru sömu bækur og þættirnir vinsælu Game of Thrones byggðu á.

Nánar tiltekið gerast þættirnir um 300 árum fyrir Game of Thrones og fjalla um tímabil þar sem borgarastyrjöld geisaði innan Targaryen ættarinnar. Borgarastyrjöld þessi kallast Drekadansinn (Dance og Dragons).

Handrit þáttanna er skrifað af George RR Martin, Ryan Condal og Miguel Sapochnik en sá síðastnefndi leikstýrði stærstu orrustum Game of Thrones þáttaraðarinnar og mun meðal annars leikstýra fyrsta þætti þessarar þáttaraðar.

Þá mun Ramin Djawadi snúa aftur og gera tónlist fyrir House of the Dragon.

Alls verða tíu þættir í þáttaröðinni.

Fregnir bárust af því í síðasta mánuði að HBO væri með minnst þrjár þáttaraðir úr söguheimi Game of Thrones í vinnslu, til viðbótar við House of the Dragon. Hinar þáttaraðirnar bera titlana 9 Voygaes, Flea Bottom og 10.0000 Ships.

Frekari upplýsingar um þær má finna hér að neðan.

Tilkynnt var í byrjun vikunnar að framleiðsla House of the Dragon væri formlega hafin og voru birtar myndir af leikurum þáttaraðarinnar á Twittersíðu hennar.

Þeirra á meðal eru Paddy Considine sem leikur konunginn Viserys Tagaryen, Emma D’Arcy sem leikur prinsessuna Rhaenyra Targaryen og Matt Smith sem leikur Daemon Targaryen.

Frekari upplýsingar um helstu persónur þáttanna má finna hér á vef HBO.

Myndir náðust í gær af leikurum þáttanna og tökuliði nærri Newquay í Cornwall í Bretlandi. Þar mátti meðal annars sjá leikarana Matt Smith og Emmu d‘Arcy í fullum skrúða. BBC segir að tökulið hafi einnig sést á St Michael's Mount, sem er einnig í Cornwall, og talið er að þau tengist House of the Dragon sömuleiðis.

Til stendur að frumsýna þættina á næstu ári.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×