Segir að leikurinn í kvöld fari örugglega fram eins og staðan er núna Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 25. mars 2021 12:39 Frá æfingu þýska liðsins. epa/FRIEDEMANN VOGEL Talsmaður þýska knattspyrnusambandsins segir að eins og staðan sé núna fari leikur Þýskalands og Íslands í undankeppni HM 2022 í kvöld örugglega fram.
Í morgun bárust fréttir af því Jonas Hofmann, leikmaður Borussia Mönchengladbach, hafi fengið jákvæða niðurstöðu út úr kórónuveiruprófi sem þýska liðið fór í. Í frétt Bild kemur fram að Marcel Halstenberg, leikmaður RB Leipzig, þurfi að fara í sóttkví þar sem hann hafi verið í mestum samskiptum við Hofmann. Líklegt þykir að leikmenn þýska liðsins verði látnir gangast undir annað kórónuveirupróf strax til að fá niðurstöðu sem fyrst. Í samtali við Vísi í morgun sagði Klara Bjartmarz, framkvæmdastjóri KSÍ, að það væri í höndum UEFA að ákveða hvort leikurinn í kvöld færi fram. Samkvæmt reglum FIFA þarf lið að hafa fjórtán leikfæra leikmenn, þar af einn markvörð, til að leikur geti farið fram. Í hádeginu sagði Jens Grittner, talsmaður þýska knattspyrnusambandsins, að leikur kvöldsins færi „örugglega fram eins og staðan væri núna“. Framkvæmdastjóri þýska liðsins, Olivier Bierhoff, sagði erfitt að þessi staða hafi komið upp svona stuttu fyrir leik en var bjartsýnn á að ekki kæmu fleiri smit en þetta eina upp. Hann sagði jafnframt að þýska liðið hafi passað vel upp á sóttvarnir og muni hlýða öllum fyrirmælum þýskra yfirvalda. Joachim Löw, landsliðsþjálfari Þýskalands, valdi 26 leikmenn í sinn hóp. Eins og staðan er núna standa 23 leikmenn eftir. Hofmann og Halstenberg hafa hrokkið úr skaftinu eins og áður sagði og þá dró Toni Kroos sig út úr þýska hópnum vegna meiðsla.
HM 2022 í Katar Mest lesið Heppinn að vera á lífi eftir rosalegan 15 bíla árekstur Sport Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn Hver gæti tekið við af Carrick? Enski boltinn Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Körfubolti „Guð morning!“ Enski boltinn Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Enski boltinn „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Fótbolti Utan vallar: Fólk með ADHD má spila íþróttir Sport Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar Enski boltinn Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Enski boltinn Fleiri fréttir Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Katla tryggði Fiorentina sigur „Þetta snýst ekki um mig“ Hákon Arnar meiddist Guðlaugur Victor lagði upp mark í stórsigri í Íslendingaslag „Við verðum að líta í eigin barm“ Newcastle vann í London og sanngjarn jafntefli í Hull Siggi Raggi gerði NSÍ Runavík að meisturum Varð markahæstur í deildinni gegn bróður sínum. Mikael Egill var hetja Genoa í sigri Fékk tvö gul spjöld á innan við mínútu Ásdís Karen með tvennu í góðum sigri Liverpool - Brighton 2-0 | Góð byrjun kláraði mávana Manchester United - Bournemouth 0-3 | Niðurlægingin tekur engan endi Bruno settur á bekkinn Sjáðu rauða spjald Palmer og Arsenal jafna Man. City Sjáðu Aron bæta markametið og spennu hjá Þór „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Siggi Raggi getur gert NSÍ að Færeyjameisturum í dag Infantino segist njóta gríðarlegs stuðnings Sjá meira