Varnar­mennirnir sáu um West Ham og fjór­tándi deildar­sigur City í röð

Anton Ingi Leifsson skrifar
Stones og Zinchenko fagna sigurmarki þess fyrrnefnda.
Stones og Zinchenko fagna sigurmarki þess fyrrnefnda. Clive Brunskill/Getty Images

Manchester City vann sinn þrettánda deildarleik í röð er liðið vann 2-1 sigur á West Ham í fyrsta leik dagsins í enska boltanum. Þetta var tuttugasti sigur City í röð í öllum keppnum.

City komst yfir með sínu fyrsta skoti á marki í leiknum eftir hálftímaleik. Kevin de Bruyne gaf þá frábæra fyrirgjöf fyrir markið þar sem Ruben Dias var mættur og stangaði hann boltann í netið.

Þetta var hans fyrsta úrvalsdeildarmark fyrir City en einungis þrettán mínútum síðar var allt orðið jafnt á ný. Michail Antonio hafði skotið í stöng skömmu áður en nú jafnaði hann metin sem fylgdi á eftir skoti Jesse Lingad.

Staðan var 1-1 í hálfleik en sigurmarkið kom á 68. mínútu. Hornspyrna City var hreinsuð frá en Riyhad Mahrez kom boltanum aftur fyrir markið þar sem John Stones kom boltanum í netið. Þriðja mark hans á árinu.

City er á toppi deildarinnar með 62 stig, þrettán stigum meira en Manchester United, sem á þó leik til góða. West Ham er í fjórða sætinu með 45 stig.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira