The Guardian segir yfir 6.500 verkamenn hafa látist í Katar frá því að landið fékk HM Sindri Sverrisson skrifar 23. febrúar 2021 13:01 Stjórnvöld í Katar réðu fjölda fólks til vinnu við gerð knattspyrnuleikvanga og fleiri mannvirkja svo hægt væri að halda HM. Getty/Etsuo Hara Yfir 6.500 verkamenn hafa látist í Katar frá árinu 2011, eftir þá umdeildu ákvörðun FIFA að leyfa Katar að halda HM karla í fótbolta árið 2022. Deilt er um hve mörg andlát megi rekja beint til undirbúnings mótsins.
Íslenska landsliðið sem og öll önnur lið Evrópu hefja eftir mánuð leik í undankeppni HM sem öll fer fram á þessu ári. Ísland leikur í riðli með Þýskalandi, Rúmeníu, Norður-Makedóníu, Armeníu og Liechtenstein, og fær efsta liðið farseðilinn til Katar. Næstefsta liðið fer í umspil um að komast á stærsta svið fótboltans, lokakeppni HM þar sem 32 bestu landslið heims spila. Valið á Katar sem gestgjafa hefur verið lengi umdeilt, bæði vegna gruns um spillingu og mútur við valið, og vegna þess að ekki er hægt að halda HM um sumar í Katar. Því fer mótið fram 21. nóvember til 18. desember á næsta ári. Revealed: 6,500 migrant workers have died in Qatar as it gears up for World Cup https://t.co/ENKDyqmJqb— The Guardian (@guardian) February 23, 2021 Samkvæmt úttekt breska blaðsins The Guardian hafa svo þúsundir verkamanna látið lífið við gerð mannvirkja svo hægt sé að halda HM. Um er að ræða fólk frá Indlandi, Pakistan, Nepal, Banglades og Sri Lanka. The Guardian bendir á að stórir hópar verkamanna hafi komið til Katar frá öðrum löndum, til að mynda Filippseyjum og Kenía, en ekki hafist upplýsingar um fjölda látinna frá þeim löndum. Segir mjög marga hinna látnu aðeins í landinu vegna HM Katar hafði betur gegn Bandaríkjunum árið 2011 í baráttunni um að halda HM. The Guardian hefur eftir Nick McGeehan, formanni FairSquare verkefnisins sem berst fyrir réttindum verkafólks við Persaflóa, að á þeim tæpa áratug sem liðinn sé síðan þá sé líklegt að margir hinna 6.500 látnu hafi unnið við verkefni tengd HM. „Mjög stór hluti þeirra verkamanna sem hafa dáið síðan 2011 voru aðeins í landinu vegna þess að Katar fékk réttinn til að halda heimsmeistaramótið,“ sagði McGeehan. The Guardian hefur safnað upplýsingum sínum frá heimalöndum hinna látnu. Mótshaldarar í Katar segja að 37 manns, sem unnið hafi við gerð knattspyrnuleikvanga vegna HM, hafi látist en þar af séu 34 andlát sem „tengist ekki vinnunni“. Sérfræðingar hafa sett spurningamerki við þessa fullyrðingu um að andlát tengist ekki vinnu, þar sem hún hafi meðal annars verið notuð um menn sem hafi hnigið niður og látist á vinnusvæði. HM í Katar hefst í nóvember á næsta ári.Getty/Etsuo Hara Í opinberum skýrslum í Katar er dánarorsök verkafólksins í langflestum tilvikum sögð af náttúrulegum orsökum. Mannréttindasamtök hafa kallað eftir nánari útskýringum á því hvers vegna svo margt verkafólk hafi látist og vilja að lögum verði breytt svo krufning sé leyfð vegna allra óvæntra eða óútskýrðra dauðsfalla. Stjórnvöld í Katar segja að í ljósi þess hve margt verkafólk sé í landinu sé dánartíðnin eðlileg, þó að hvert andlát sé sorgaratburður. Allt sé reynt til að koma í veg fyrir að fólk látist. Öllum standi frí heilbrigðisþjónusta til boða og að dánartíðni verkafólks hafi lækkað á síðustu árum. Í yfirlýsingu frá FIFA segir að slys við gerð knattspyrnuleikvanga fyrir HM séu fá miðað við aðrar stórar byggingaframkvæmdir í heiminum, án þess þó að þeirri fullyrðingu fylgdu gögn því til sönnunar.
HM 2022 í Katar Katar Mest lesið Hættu við giftingu eftir sameiginlegt steggja- og gæsapartí Sport Eiður flutti dapurleg tíðindi af Andra Lucasi Fótbolti Sakar konung síðustu Vetrarólympíuleika um svindl Sport „Þetta er ógeðslegt starf“ Körfubolti Vill að Messi segi sannleikann Fótbolti Þakklátur eftir drauminn sem breyttist í martröð Enski boltinn Rosaleg lokaumferð: Þrjú lið geta unnið titil og þrjú í fallhættu Handbolti Annar tónn í Trump sem ráðleggur Íran að halda sig fjarri HM Fótbolti Ráðþrota Verstappen vonast til að Formúlan „verði skemmtilegri“ Formúla 1 Þór - KA | Mikið í húfi í Akureyrarslag Handbolti Fleiri fréttir Logi og Gísli í slæmri stöðu Leikurinn snerist hjá Sverri en Hákon hafði heppnina ekki með sér Bikardraumurinn lifir góðu lífi hjá Íslendingaliðinu Inter Annar tónn í Trump sem ráðleggur Íran að halda sig fjarri HM Potter framlengdi við Svíþjóð áður en HM-örlög landsliðsins ráðast Blint val á bestu tilþrifum: Unaðslegar snertingar og samloka í stúkunni Neymar svaraði gagnrýnendum sínum: „Mjög erfitt að vera ég“ Hver er þessi Valverde sem allir eru að missa sig yfir? Hörmuleg vika fyrir ensku liðin í Meistaradeildinni Þakklátur eftir drauminn sem breyttist í martröð „Það er kannski einn sem má svindla“ Missti af Barcelona-leiknum af því að hann mætti ekki á réttan St James Park „Gátum ekki látið hann stjórna því“ Sjáðu þrennu þess vanmetna, Bodö-gleði, horn í síðu Arsenal og markaveislu í París Sagði 35 sinnum fyrirgefðu við boltastrákinn „Vanmetnasti knattspyrnumaður heimsins“ Vill að Messi segi sannleikann Tottenham geti fallið: „Allt við hans líkamstjáningu sem var vonlaust“ Eiður flutti dapurleg tíðindi af Andra Lucasi Norska ævintýrið ætlar engan endi að taka Kvaradona kom Chelsea í skelfileg mál Magnaður Valverde kom Real í kjörstöðu Baldé snýr aftur til bikarmeistaranna Sjáðu ótrúlega þrennu Valverde í fyrri hálfleik Thelma skoraði og Fanney hélt hreinu í bikarsigri Fylkir á barmi undanúrslita eftir sigur á ÍBV Erfið veikindi Kötlu og bikardraumurinn dofnar Íran ætlar ekki á HM en hvaða þjóð fengi sætið? Sindri út til Guðrúnar og kveður Keflavík Madueke og Havertz sáu um að brjóta múrinn á síðustu stundu Sjá meira