„Ég notaði kókosolíu framan í mig og húðin mín stíflaðist“ Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar 3. febrúar 2021 07:00 Sunneva Einars sýndi það sem er í snyrtitöskunni sinni í þættinum Snyrtiborðið með HI beauty. HI beauty Áhrifavaldurinn Sunneva Einarsdóttir mætti í Snyrtiborðið með HI beauty og sagði frá öllum sínum uppáhalds snyrtivörum. Hún sagði frá því hvaða vörur hún notar alla daga og hvernig hún breytir til ef hún er að fara eitthvað sérstakt. „Ég fíla ekki að mála mig of mikið, það fer mér ekkert eitthvað það vel. Þannig að ég set eiginlega aldrei á mig augnskugga, nema kannski einhverja ljósa liti.“ Hún leggur því mikla áherslu á húðvörurnar og ljómi og sólarpúður spilar þar stórt hlutverk. Sunneva passar mikið upp á raka húðarinnar en hún hefur lært mikið af systur sinni Rebekku, sem er lærður snyrtifræðingur. Sápan best fyrir brúnirnar Í menntaskóla gerði Sunneva samt þau mistök að nota alltaf kókosolíu til að þrífa af sér farðann, sem var vinsæl aðferð hér á landi um tíma. „Ég lenti frekar illa í því í menntaskóla þegar kókosolíutrendið var. Ég notaði kókosolíu framan í mig og húðin mín stíflaðist. Þetta var fáránlegt, bara mín mistök.“ Sunneva er þekkt fyrir þykkar og fallegar augabrúnir og er einfalt leyndarmál á bak við þær. „Ég hef prufað alveg margar vörur. Ég hef prófað sápu og bursta og svo hef ég prófað nokkrar vörur sem eru svona tilbúnar en sápan er það besta sem ég hef prófað fyrir fluffy brows.“ Sunneva Einars heldur úti vinsælum Instagram reikningi.HI beauty Sunneva ræðir einnig um vörurnar sem hún tæki sér með á eyðieyju, lykilinn á bak við ljómandi förðun, góð ráð til að förðunin sé falleg á myndum og aðferðina sem hún notar til að vera „sólbrún“ allt árið með brúnkuvörum. Í þættinum gefa þær Heiður Ósk og Ingunn Sig líka góð ráð líkt og í hverjum þætti. Að þessu sinni talar Ingunn um „setting spray“ og Heiður talar um í hvaða röð hún notar hárvörurnar sínar. Hægt er að horfa þáttinn í heild sinni í spilaranum hér fyrir neðan. Klippa: Snyrtiborðið með HI beauty - Sunneva Einars Heiður Ósk og Ingunn Sig eigendur Reykjavík Makeup School eru þáttastjórnendur Snyrtiborðsins með HI Beauty. Þær eru farðaðar með vörum frá YSL beauty, Urban Decay og Lancome. Hárið þeirra er stíliserað með John Frieda hárvörum. Þættirnir eru teknir upp í Reykjavík Makeup School og verða sýndir vikulega hér á Vísi. Instagram: @the_hibeauty Förðun HI beauty Samfélagsmiðlar Tengdar fréttir „Fullkomið fyrir þá sem vilja öðlast færni í að farða sitt eigið andlit“ Reykjavík Makeup School fara af stað með tveggja vikna förðunarnámskeið þar sem þú lærir vinsælustu farðanirnar í dag. Við fengum að spurja Ingunni Sig og Heiði Ósk, tvo af eigendum Reykjavík Makeup School nánar út í þetta. 31. janúar 2021 10:01 Notar alltaf primer svo förðunin endist út daginn „Venjulega þegar ræktin er opin þá byrja ég þar og kem svo hingað heim og græja mig eldsnöggt út og fer á fyrsta fund dagsins sem byrjar oftast ekki seinna en níu, stundum aðeins fyrr.“ 27. janúar 2021 08:01 Elskar góðan blástur enda níræð inn við beinið „Það er rosalega gaman ef það eru förðunarfræðingar á setti og svona en alla jafna þá geri ég þetta mjög mikið sjálf,“ segir matgæðingurinn og fjölmiðlakonan Eva Laufey Kjaran. 20. janúar 2021 09:00 Smyglaði hárgreiðslumanni upp á hótel fyrir Miss World „Það sést alltaf svo vel húðinni okkar lífsstíllinn okkar,“ segir Linda Pétursdóttir, athafnakona og fyrrum Miss World. Sjálf segist hún hugsa vel um líkamann að innan sem utan. 13. janúar 2021 11:30 Mest lesið Krabbameinið sem týndist: „Fyrst sagði ég bara fokk!“ Áskorun Veltir fyrir sér hvort hann sé dottinn úr tísku Lífið Páll Óskar genginn í það heilaga: „Besti dagur lífs okkar“ Lífið Kastast í kekki milli Carragher og kærastans Lífið Líkt við apa og klappað eins og hundi Lífið Svar við spurningu lesanda: Hvað má fróa sér oft í viku? Lífið Sandler vinnur að Happy Gilmore 2 Bíó og sjónvarp Björk á forsíðu Vogue í fyrsta sinn Tíska og hönnun Tískan sýndi trúnaðarbrest í hruninu Lífið Er sannkölluð Mary Poppins þegar það kemur að töskunni Tíska og hönnun Fleiri fréttir Er sannkölluð Mary Poppins þegar það kemur að töskunni Björk á forsíðu Vogue í fyrsta sinn „Vinkonur mínar eru allar með tölu mestu gellur landsins“ Forfallin húðumhirðuaðdáandi og sólarvarnarlögga Ekki sérlega litaglöð en glaðlynd að eðlisfari Týnir öllu þannig að flest staldrar stutt við í töskunni Sársaknar sérhannaðrar úlpu: „Þetta er bara listaverkið mitt“ Best klæddu stjörnurnar á Óskarnum Sparks peysan og brúnkukremið eftirminnilegt tímabil Louis Vuitton taskan sem bæði týndist og fannst í uppáhaldi „Leyfðu öðrum að njóta lífsins og klæða sig eins og það vill“ Tískudrottingin Iris Apfel látin Finnur flottari flíkur í kvenmannsdeildunum „Yfirleitt er allt sem er gefandi líka krefjandi“ Alltaf með nasl í töskunni og þjáist af matarást á háu stigi Klæðir sig upp í þema fyrir öll möguleg tilefni Fyrirsæta fyrir tískurisa erlendis en lögfræðingur hér heima Nýtur þess að setja sig í fyrsta sætið Íslenskur hönnuður með fatalínu á tískuviku Best klæddu á Grammys: Laufey skein skært í Chanel „Ég hlakka til að klæða mig upp á hverjum morgni“ Sjá meira
„Ég fíla ekki að mála mig of mikið, það fer mér ekkert eitthvað það vel. Þannig að ég set eiginlega aldrei á mig augnskugga, nema kannski einhverja ljósa liti.“ Hún leggur því mikla áherslu á húðvörurnar og ljómi og sólarpúður spilar þar stórt hlutverk. Sunneva passar mikið upp á raka húðarinnar en hún hefur lært mikið af systur sinni Rebekku, sem er lærður snyrtifræðingur. Sápan best fyrir brúnirnar Í menntaskóla gerði Sunneva samt þau mistök að nota alltaf kókosolíu til að þrífa af sér farðann, sem var vinsæl aðferð hér á landi um tíma. „Ég lenti frekar illa í því í menntaskóla þegar kókosolíutrendið var. Ég notaði kókosolíu framan í mig og húðin mín stíflaðist. Þetta var fáránlegt, bara mín mistök.“ Sunneva er þekkt fyrir þykkar og fallegar augabrúnir og er einfalt leyndarmál á bak við þær. „Ég hef prufað alveg margar vörur. Ég hef prófað sápu og bursta og svo hef ég prófað nokkrar vörur sem eru svona tilbúnar en sápan er það besta sem ég hef prófað fyrir fluffy brows.“ Sunneva Einars heldur úti vinsælum Instagram reikningi.HI beauty Sunneva ræðir einnig um vörurnar sem hún tæki sér með á eyðieyju, lykilinn á bak við ljómandi förðun, góð ráð til að förðunin sé falleg á myndum og aðferðina sem hún notar til að vera „sólbrún“ allt árið með brúnkuvörum. Í þættinum gefa þær Heiður Ósk og Ingunn Sig líka góð ráð líkt og í hverjum þætti. Að þessu sinni talar Ingunn um „setting spray“ og Heiður talar um í hvaða röð hún notar hárvörurnar sínar. Hægt er að horfa þáttinn í heild sinni í spilaranum hér fyrir neðan. Klippa: Snyrtiborðið með HI beauty - Sunneva Einars Heiður Ósk og Ingunn Sig eigendur Reykjavík Makeup School eru þáttastjórnendur Snyrtiborðsins með HI Beauty. Þær eru farðaðar með vörum frá YSL beauty, Urban Decay og Lancome. Hárið þeirra er stíliserað með John Frieda hárvörum. Þættirnir eru teknir upp í Reykjavík Makeup School og verða sýndir vikulega hér á Vísi. Instagram: @the_hibeauty
Heiður Ósk og Ingunn Sig eigendur Reykjavík Makeup School eru þáttastjórnendur Snyrtiborðsins með HI Beauty. Þær eru farðaðar með vörum frá YSL beauty, Urban Decay og Lancome. Hárið þeirra er stíliserað með John Frieda hárvörum. Þættirnir eru teknir upp í Reykjavík Makeup School og verða sýndir vikulega hér á Vísi. Instagram: @the_hibeauty
Förðun HI beauty Samfélagsmiðlar Tengdar fréttir „Fullkomið fyrir þá sem vilja öðlast færni í að farða sitt eigið andlit“ Reykjavík Makeup School fara af stað með tveggja vikna förðunarnámskeið þar sem þú lærir vinsælustu farðanirnar í dag. Við fengum að spurja Ingunni Sig og Heiði Ósk, tvo af eigendum Reykjavík Makeup School nánar út í þetta. 31. janúar 2021 10:01 Notar alltaf primer svo förðunin endist út daginn „Venjulega þegar ræktin er opin þá byrja ég þar og kem svo hingað heim og græja mig eldsnöggt út og fer á fyrsta fund dagsins sem byrjar oftast ekki seinna en níu, stundum aðeins fyrr.“ 27. janúar 2021 08:01 Elskar góðan blástur enda níræð inn við beinið „Það er rosalega gaman ef það eru förðunarfræðingar á setti og svona en alla jafna þá geri ég þetta mjög mikið sjálf,“ segir matgæðingurinn og fjölmiðlakonan Eva Laufey Kjaran. 20. janúar 2021 09:00 Smyglaði hárgreiðslumanni upp á hótel fyrir Miss World „Það sést alltaf svo vel húðinni okkar lífsstíllinn okkar,“ segir Linda Pétursdóttir, athafnakona og fyrrum Miss World. Sjálf segist hún hugsa vel um líkamann að innan sem utan. 13. janúar 2021 11:30 Mest lesið Krabbameinið sem týndist: „Fyrst sagði ég bara fokk!“ Áskorun Veltir fyrir sér hvort hann sé dottinn úr tísku Lífið Páll Óskar genginn í það heilaga: „Besti dagur lífs okkar“ Lífið Kastast í kekki milli Carragher og kærastans Lífið Líkt við apa og klappað eins og hundi Lífið Svar við spurningu lesanda: Hvað má fróa sér oft í viku? Lífið Sandler vinnur að Happy Gilmore 2 Bíó og sjónvarp Björk á forsíðu Vogue í fyrsta sinn Tíska og hönnun Tískan sýndi trúnaðarbrest í hruninu Lífið Er sannkölluð Mary Poppins þegar það kemur að töskunni Tíska og hönnun Fleiri fréttir Er sannkölluð Mary Poppins þegar það kemur að töskunni Björk á forsíðu Vogue í fyrsta sinn „Vinkonur mínar eru allar með tölu mestu gellur landsins“ Forfallin húðumhirðuaðdáandi og sólarvarnarlögga Ekki sérlega litaglöð en glaðlynd að eðlisfari Týnir öllu þannig að flest staldrar stutt við í töskunni Sársaknar sérhannaðrar úlpu: „Þetta er bara listaverkið mitt“ Best klæddu stjörnurnar á Óskarnum Sparks peysan og brúnkukremið eftirminnilegt tímabil Louis Vuitton taskan sem bæði týndist og fannst í uppáhaldi „Leyfðu öðrum að njóta lífsins og klæða sig eins og það vill“ Tískudrottingin Iris Apfel látin Finnur flottari flíkur í kvenmannsdeildunum „Yfirleitt er allt sem er gefandi líka krefjandi“ Alltaf með nasl í töskunni og þjáist af matarást á háu stigi Klæðir sig upp í þema fyrir öll möguleg tilefni Fyrirsæta fyrir tískurisa erlendis en lögfræðingur hér heima Nýtur þess að setja sig í fyrsta sætið Íslenskur hönnuður með fatalínu á tískuviku Best klæddu á Grammys: Laufey skein skært í Chanel „Ég hlakka til að klæða mig upp á hverjum morgni“ Sjá meira
„Fullkomið fyrir þá sem vilja öðlast færni í að farða sitt eigið andlit“ Reykjavík Makeup School fara af stað með tveggja vikna förðunarnámskeið þar sem þú lærir vinsælustu farðanirnar í dag. Við fengum að spurja Ingunni Sig og Heiði Ósk, tvo af eigendum Reykjavík Makeup School nánar út í þetta. 31. janúar 2021 10:01
Notar alltaf primer svo förðunin endist út daginn „Venjulega þegar ræktin er opin þá byrja ég þar og kem svo hingað heim og græja mig eldsnöggt út og fer á fyrsta fund dagsins sem byrjar oftast ekki seinna en níu, stundum aðeins fyrr.“ 27. janúar 2021 08:01
Elskar góðan blástur enda níræð inn við beinið „Það er rosalega gaman ef það eru förðunarfræðingar á setti og svona en alla jafna þá geri ég þetta mjög mikið sjálf,“ segir matgæðingurinn og fjölmiðlakonan Eva Laufey Kjaran. 20. janúar 2021 09:00
Smyglaði hárgreiðslumanni upp á hótel fyrir Miss World „Það sést alltaf svo vel húðinni okkar lífsstíllinn okkar,“ segir Linda Pétursdóttir, athafnakona og fyrrum Miss World. Sjálf segist hún hugsa vel um líkamann að innan sem utan. 13. janúar 2021 11:30