Tíska og hönnun

„Fullkomið fyrir þá sem vilja öðlast færni í að farða sitt eigið andlit“

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Heiður Ósk og Ingunn eru með þættina Snyrtiborðið með HI beauty, sem sýndir eru á miðvikudögum hér á Vísi.
Heiður Ósk og Ingunn eru með þættina Snyrtiborðið með HI beauty, sem sýndir eru á miðvikudögum hér á Vísi. Vísir/Vilhelm

Reykjavík Makeup School fara af stað með tveggja vikna förðunarnámskeið þar sem þú lærir vinsælustu farðanirnar í dag. Við fengum að spurja Ingunni Sig og Heiði Ósk, tvo af eigendum Reykjavík Makeup School nánar út í þetta.

Ingunn og Heiður Ósk halda úti Instagram síðunni HI beauty og samnefndu hlaðvarpi en einnig eru þær með þættina Snyrtiborðið með HI beauty sem sýndir eru vikulega hér á Vísi. 

„Námskeiðið er fullkomið fyrir þá sem vilja öðlast færni í að farða sitt eigið andlit. Farið verður yfir húðumhirðu, grunnatriði í förðun, Beautyförðun, Smokeyförðun, Halo, Soft Glam og margt fleira.“

Ingunn og Heiður Ósk segja að námskeiðið henti byrjendum jafnt sem lengra komnum.

„Námskeiðið er einnig fullkomið fyrir þá sem hafa útskrifast sem förðunarfræðingar en vilja bæta við sig aukinni kunnáttu og læra meira. Við vildum auka úrval námskeiða í skólanum og er þetta fyrsta viðbótin. Við höfum fengið fjölda fyrirspurna frá einstaklingum sem vilja læra grunnförðun á sitt eigið andlit og þeim sem vilja auka við kunnáttu sína.“

Minna er meira

Námskeiðið inniheldur sex kennsludaga og lofa þær að nemendur læri þar heitustu farðanirnar í dag.

„Að loknu námskeiði ættu nemendur að hafa náð góðum tökum á grunnatriðum í förðun og kunnáttu á sitt eigið andlit.“

Þær segja að algengustu förðunarmistök sem konur geri sé að blanda ekki nóg, það sé betra að nota minna en meira og taka sér tíma í að blanda vörunum á húðina.

„Það er einnig mismunandi í hvaða röð fólk setur vörurnar á sig en það er lykilatriði að raða þeim rétt ef þú vilt að förðunin endist. Það er einnig algengt að einstaklingar farði sig með lokuð augun sem leiðir oft til þess að förðunin hverfur eða sést ekki þegar þú ert með opin augu. Það hefur verið mikil hræðsla við fljótandi farða en fljótandi farði, eða meik eins og það er oft kallað, eru orðin mun betri í dag og gefa þér fallega, náttúrulega þekju. Við segjum það síðan aldrei of oft að undirbúningur húðarinnar er algjört lykilatriði. Að nota góð krem og/eða primer er ótrúlega mikilvægt skref og svo þarf einnig að muna að draga farða niður á háls og út á eyru svo það komi engin skil.“

Hér fyrir neðan má sjá nýjasta þáttinn þeirra Ingunnar og Heiðar af Snyrtiborðið með HI beauty. 


Tengdar fréttir

Notar alltaf primer svo förðunin endist út daginn

„Venjulega þegar ræktin er opin þá byrja ég þar og kem svo hingað heim og græja mig eldsnöggt út og fer á fyrsta fund dagsins sem byrjar oftast ekki seinna en níu, stundum aðeins fyrr.“

Elskar góðan blástur enda níræð inn við beinið

„Það er rosalega gaman ef það eru förðunarfræðingar á setti og svona en alla jafna þá geri ég þetta mjög mikið sjálf,“ segir matgæðingurinn og fjölmiðlakonan Eva Laufey Kjaran.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×