66°Norður hlýtur viðurkenningu fyrir bestu fjárfestingu í hönnun á Hönnunarverðlaunum Íslands 2020 Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar 29. janúar 2021 11:20 66°Norður hlaut rétt í þessu viðurkenningu fyrir bestu fjárfestingu í hönnun á Hönnunarverðlaunum Íslands 2020. Aldís Pálsdóttir Hönnunarverðlaun Íslands 2020 voru afhent með rafrænum hætti rétt í þessu. Hönnunarfyrirtækið 66°Norður hlaut þar viðurkenningu fyrir bestu fjárfestingu í hönnun á Hönnunarverðlaununum 2020.
Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins veitti eigendum 66°Norður, Bjarneyju Harðardóttur og Helga Rúnari Óskarssyni ásamt hönnunarteymi fyrirtækisins viðurkenninguna. Meðfylgjandi myndband um verðlaunahafa var framleitt af Blóð Studio fyrir Miðstöðvar hönnunar og arkitektúrs. Klippa: Hönnunarverðlaun Íslands 2020 - 66°Norður Rökstuðningur dómnefndar: „Viðurkenningu fyrir bestu fjárfestingu í hönnun árið 2020 fær 66°Norður sem stofnað var árið 1926 til að mæta lífsnauðsynlegri þörf fyrir vinnufatnað fyrir sjómenn og síðar björgunarsveitafólk. Vörumerkið hefur þróast í áranna rás og nú sem útivistarfatnaður í hæsta gæðaflokki með sterka tengingu við arfleið fyrirtækisins og í takti við strauma tískunnar. 66 Norður Sérstaða 66°Norður er án efa fagmennska sem einkennir vörumerkið og hæfileiki til að lesa í samtímann hvort sem verið er að hanna tæknilegan útivistarfatnað, markaðsefni eða í tilraunakenndu samstarfi við íslenska og erlenda hönnuði. 66°Norður er skýrt dæmi um það þegar góð hönnun er leiðandi afl í vexti og þróun fyrirtækis, en um 15 manns starfa í hönnunarteymi þess.“ Besta fjárfesting í hönnun er viðurkenning sem veitt er fyrirtækjum sem hafa hönnun og arkitektúr að leiðarljósi frá upphafi verka til að auka verðmætasköpun og samkeppnishæfi. Öll fyrirtæki sem starfa á Íslandi koma til greina. Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins veitti eigendum 66°Norður, Bjarneyju Harðardóttur og Helga Rúnari Óskarssyni ásamt hönnunarteymi fyrirtækisins viðurkenninguna.Aldís Pálsdóttir Hvatning til fyrirtækja Það var Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins, sem afhenti viðurkenninguna og kom inn á það í ræðu sinni að með „þessari viðurkenningu er ætlunin að draga fram mikilvægi þess að hönnun sé höfð að leiðarljósi frá upphafi verka með það að markmiði að auka verðmætasköpun og styrkja samkeppnishæfni. Um leið er viðurkenningin hvatning til fyrirtækja að nýta hönnun til að ná forskoti í samkeppni. Við valið er horft til þess að hönnunin sé einstök og framúrskarandi.“ Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins.Aldís Pálsdóttir Fjárfestar trúa á íslenska hönnun Helgi Rúnar Óskarsson og Bjarney Harðardóttir, eigendur 66°Norður tóku við viðurkenningunni og í ræðu sinni kom Helgi Rúnar inn á þá miklu arfleifð sem fyrirtækið sækir í í sinni hönnun og þau tækifæri sem felast í skapandi greinum á Íslandi. „Við lítum svo á að það sé mikið tækifæri til að fá fjárfestingu erlendis frá í skapandi greinar. Fjárfestar trúa á íslenska hönnun og íslenskt handverk.“ Hönnunarverðlaun Íslands voru veitt í fyrsta sinn árið 2014 og varpa ljósi á mikilvægi og gæðum íslenskrar hönnunar og arkitektúrs, enda er vægi hönnunar í menningu, samfélagi og viðskiptalífi alltaf að aukast. Verðlaunin beina sjónum að því besta sem gert er á sviði hönnunar og arkitektúrs á Íslandi um leið og einstaka hönnuðum eða hópum hönnuða er veitt mikilvæg viðurkenning. 66 Norður Besta fjárfesting í hönnun er viðurkenning sem veitt var í fyrsta sinn 2015. Fyrirtæki sem eiga þess kost að hljóta viðurkenninguna Besta fjárfesting í hönnun hafa hönnun og arkitektúr að leiðarljósi frá upphafi verka til að auka verðmætasköpun og samkeppnishæfi. Öll fyrirtæki sem starfa á Íslandi koma til greina. Í dómnefnd Hönnunarverðlaun Íslands 2020 sátu: Sigríður Sigurjónsdóttir formaður, Hönnunarsafn Íslands Hildigunnur Sverrisdóttir, arkitekt, LHÍ Sigrún Unnarsdóttir, fatahönnuður MH&A Þorleifur Gíslason, grafískur hönnuður MH&A Paul Bennett, hönnunarstjóri IDEO, MH&A Margrét Kristín Sigurðardóttir, SI Hörður Lárusson, grafískur hönnuður MH&A Sigrún Birgisdóttir, arkitekt, LHÍ Það er Miðstöð hönnunar og arkitektúrs sem stendur að verðlaununum, í samstarfi við Hönnunarsafn Íslands, Listaháskóla Íslands, Landsvirkjun, Íslandsstofu og Samtök iðnaðarins.
Tíska og hönnun Mest lesið Ekki lengur smeykur við að deila kastljósinu með Katrínu Lífið Jón Jónsson selur glæsihús á Seltjarnarnesi Lífið Sjö hættulegar gryfjur fyrir hjón og pör að falla í Áskorun Heyrt kjaftasögurnar um eldri mennina sem stýri henni Lífið Suzuki mun flytja inn í höll Björgólfs Lífið Will Smith hrifinn af akureyrsku hjartaljósunum Lífið Logi Geirs og Inga Tinna eiga von á barni Lífið Japaninn sló heimsmet í Hlíðarfjalli Lífið Varð móðir sextán ára Lífið Frumsýning á Vísi: Fyrsta stiklan úr Snertingu Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir „Elska að hafa skipulagt kaos“ „Spyr mig oft hvort öll þessi vinna sé þess virði“ Listræn súkkulaðiupplifun og girnilegt smakk Menningarlífið iðar og HönnunarMars hefst á morgun Hefur hannað fyrir Miley Cyrus og Erykah Badu Íslensk skartgripahönnun á besta stað í New York Starfaði fyrir pólska herinn og sýnir nú skartgripi á Garðatorgi Kemur beint frá París með vistvæna tískustrauma „Frá naglalakki hjá ömmu í iðnaðarmann í skítugum fötum“ Myndavél frá afa algjör fjársjóður „Það mikilvægasta er að vera trúr sjálfum sér“ Munnskolið mikilvægt í förðunarstarfinu „Sjálfstraustið er besti fylgihluturinn“ „Martröð“ að spila í of síðu goth pilsi Er sannkölluð Mary Poppins þegar það kemur að töskunni Björk á forsíðu Vogue í fyrsta sinn „Vinkonur mínar eru allar með tölu mestu gellur landsins“ Forfallin húðumhirðuaðdáandi og sólarvarnarlögga Ekki sérlega litaglöð en glaðlynd að eðlisfari Týnir öllu þannig að flest staldrar stutt við í töskunni Sársaknar sérhannaðrar úlpu: „Þetta er bara listaverkið mitt“ Best klæddu stjörnurnar á Óskarnum Sparks peysan og brúnkukremið eftirminnilegt tímabil Louis Vuitton taskan sem bæði týndist og fannst í uppáhaldi „Leyfðu öðrum að njóta lífsins og klæða sig eins og það vill“ Tískudrottingin Iris Apfel látin Sjá meira