Tíska og hönnun

Studio Granda hlýtur Hönnunarverðlaun Íslands 2020 fyrir verkefnið Dranga

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Studio Granda hlaut Hönnunarverðlaun Íslands 2020 fyrir verkefnið Drangar sem hlotið hefur verðskuldaða athygli. Arkitektarnir Margrét Harðardóttir og Steve Christer tóku við verðlaununum.
Studio Granda hlaut Hönnunarverðlaun Íslands 2020 fyrir verkefnið Drangar sem hlotið hefur verðskuldaða athygli. Arkitektarnir Margrét Harðardóttir og Steve Christer tóku við verðlaununum. Aldís Pálsdóttir

Hönnunarverðlaun Íslands 2020 voru afhent með rafrænum hætti í dag, 29. janúar. Studio Granda hlaut rétt í þessu Hönnunarverðlaun Íslands 2020 fyrir Dranga.

Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra afhenti arkitektunum Margréti Harðardóttir og Steve Christer frá Studio Granda Hönnunarverðlaun Íslands 2020 fyrir verkefnið Drangar. Verðlaunin voru afhent í beinni útsendingu hér á Vísi.

Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra afhenti arkitektunum Margréti Harðardóttir og Steve Christer frá Studio Granda Hönnunarverðlaun Íslands 2020 fyrir verkefnið Dranga.Aldís Pálsdóttir

Rökstuðningur dómnefndar:

„Drangar er metnaðarfullt hönnunarverkefni arkitektastofunnar Studio Granda og afar vel heppnuð birtingarmynd aðkallandi viðfangsefnis arkitekta i nútímasamhengi, endurhugsun og endurnýting gamalla bygginga. Hér er sérstaklega vel útfærð breyting á gömlu sveitabýli og útihúsum í gistihús fyrir ferðamenn. 

Veðraðar byggingarnar fá að njóta sín og halda útlitslegu yfirbragði með sterkri vísun í sögu og samhengi, en um leið er heildarmynd staðarins styrkt og efld. Dæmi um það er samspil útveggja gistihússins þar sem gömlu veggirnir standa hráir og opnir, án glugga og hurða og mynda áhrifaríkt samspil skugga og takts við nýja veggi. 

Innra rýmið markast af hlýlegri eik og litum dregið saman milli bygginga og rýma með hlýrri notkun timburs og lita. Mismunandi litatónar og áferð lita eru vísun í fyrri virkni býlisins, til dæmis í lit nautgripa eða gljástig vinnuvéla. 

Öll efnisútfærsla er sérlega vönduð og tengir rýmin saman í umlykjandi ramma um lífið innan byggingarinnar. Verkið er mikilvægt fordæmi og viðmið í ljósi vaxandi fjölda bygginga, ekki síst á landsbyggðinni, sem kalla á endurskilgreiningu og endurbyggingu vegna aldurs og annars konar nýtingar.“

DrangarNombre del Proyecto
DrangarNombre del Proyecto
DrangarNombre del Proyecto
DrangarNombre del Proyecto

Drangar er nýtt gistiheimili byggt á gömlum grunni, staðsett á Snæfellsnesi. Hannað af arkitektastofunni Studio Granda sem var stofnuð af þeim Margréti Harðardóttur og Steve Christer árið 1987.

Hér fyrir neðan má sjá myndband um verkefnið, sem framleitt var af Blóð stúdíó fyrir Miðstöð hönnunar og arkitektúrs. 

Klippa: Hönnunarverðlaun Íslands 2020 - Studio Granda

Hönnunarverðlaun Íslands voru veitt í fyrsta sinn árið 2014 og varpa ljósi á mikilvægi og gæðum íslenskrar hönnunar og arkitektúrs, enda er vægi hönnunar í menningu, samfélagi og viðskiptalífi alltaf að aukast. Verðlaunin beina sjónum að því besta sem gert er á sviði hönnunar og arkitektúrs á Íslandi um leið og einstaka hönnuðum eða hópum hönnuða er veitt mikilvæg viðurkenning. Að þessu sinni voru tilnefnd Studio Granda fyrir Drangar, Ýrúrarí fyrir Peysa með öllu og Flotmeðferð frá Flothetta.

Í dómnefnd Hönnunarverðlaun Íslands 2020 sátu: 

  • Sigríður Sigurjónsdóttir formaður, Hönnunarsafn íslands
  • Hildigunnur Sverrisdóttir, arkitekt, LHÍ
  • Sigrún Unnarsdóttir, fatahönnuður MH&A
  • Þorleifur Gíslason, grafískur hönnuður MH&A
  • Paul Bennett, hönnunarstjóri IDEO, MH&A
  • Margrét Kristín Sigurðardóttir, SI
  • Hörður Lárusson, grafískur hönnuður MH&A
  • Sigrún Birgisdóttir, arkitekt, LHÍ

Miðstöð hönnunar og arkitektúrs stendur að verðlaununum, í samstarfi við Hönnunarsafn Íslands, Listaháskóla Íslands, Landsvirkjun, Íslandsstofu og Samtök iðnaðarins.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×