Man. United tapaði gegn botnliðinu

Anton Ingi Leifsson skrifar
Leikmenn United svekktir eftir sigurmark Sheffield.
Leikmenn United svekktir eftir sigurmark Sheffield. Dave Thompson/Getty

Sheffield United, botnliðið í ensku úrvalsdeildinni, gerði sér lítið fyrir og vann 2-1 sigur á Manchester United á útivelli.

United var meira með boltann og réð ferðinni í kvöld en Ole Gunnar Solskjær hreyfði aðeins við United-liðinu. Alex Telles og Nemanja Matic fengu meðal annars byrjunarliðssæti.

Það var Kean Bryan sem kom Sheffield yfir á 23. mínútu en hann ólst upp hjá grönnum í Manchester City. 1-0 í hálfleik.

Fyrirliði Man. United, Harry Maguire - sem er einmitt uppalinn hjá Sheffield, jafnaði metin á 64. mínútu eftir hornspyrnu Alex Telles.

Það voru hins vegar gestirnir frá Sheffield sem tryggðu sér sigurinn stundarfjórðungi fyrir leikslok er Oliver Burke skoraði sigurmarkið. Lokatölur 2-1.

Mikið áfall fyrir Manchester United en þeir eru í öðru sæti deildarinnar, stigi á eftir City, sem á einnig leik til góða.

Þetta var einungis annar sigur Sheffield í deildinni. Þeir eru á botni deildarinnar, tíu stigum frá öruggu sæti.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira